Tíminn - 01.12.1974, Blaðsíða 33
Sunnudagur 1. desember 1974.
TÍMINN
33
auðséð. að henni þótti
það gott. Hún greip
brauðið með báðum
höndum og reif það i sig
af mikilli græðgi, eins og
soltið dýr.
Þrir af mönnunum
tóku að sér að flytja
stúlkuna til hreppstjór-
ans i næsta þorpi, sem
hét Búsesti. Þeir urðu að
iáta hana ganga, svo að
hún gæti haldið á sér
hita. Vegurinn var lika
svo vondur, að hvorki
varð komið við sleða né
öðrum farartækjum.
Stúlkan var fim og
snör i snúningum, og
oftar en einu sinni var
hún rétt sloppinn frá
þeim. Hún klifraði eins
og köttur upp i hæstu
tré, og hljóp eins og ekk-
ert væri eftir örmjóum
klettasyllum, þar sem
þeim virtist að hverjum
manni væri bráður bani
vis.
Hreppstjórinn vissi
ekki, hvað hann átti að
gera við þessa einkenni-
legu mannskepnu, sem
ekki gat talað og virtist
ekki kunna neina
mannasiði. Hún ætlaði
að stökkva út um glugg-
ann, þegar hún kom inn,
en þegar mennirnir
vörnuðu henni útgöngu
þá leið, henti hún sér á
veggina, sparkaði i þá
og barði þá með hnefun-
um eins og hún ' ætlaði
að brjóta húsið niður.
Hreppstjórinn taldi
stúlkuna vitskera og
sendi hana til yfirvald-
anna i næstu borg (Plo-
seti). Nokkrir hermenn
voru sendir með hana,
og áttu þeir fullt i fangi
með að gæta hennar á
leiðinni.
Stúlkunni var komið
fyrir á geðveikaspitala
Yfirvöldin sendu lýsingu
af henni i hverja sveit i
Rúmeniu, i þeirri von,
að einhver gæti skýrt
frá, hvaðan stúlkan
væri.
Hjúkrunarkonurnar
urðu þess brátt visar, að
stúlkan var ekki geð-
veik. Þeim virtist hún
meira að segja bráðgáf-
uð. Eftir nokkra daga
fór hún að herma eftir
þeim, þegar þær töluðu
við hana, og að fáum
vikum liðnum hafði hún
lært að tala. Hún talaði
hægt og hikandi i fyrstu,
og var oft hugsi, eins og
hún reyndi að rifja upp
hálfgleymda og löngu
liðna atburði.
Hún var kölluð villta
stúlkan frá skógunum,
þvi að enginn vissi hvað
hún hét. Illa gekk fyrst
framan af að klæða
hana, en eftir nokkra
daga þótti henni gaman
að vera i hreinum og
fallegum fötum, og leit
þá út eins og aðrar ung-
ar stúlkur. Allt var gert,
sem mönnum datt i hug,
til að komast að þvi,
hver hún væri. En það
bar lengi vel engan
árangur. Loks kom sú
frétt frá Súgag, að þetta
væri ef til vill sama
stúlkan, sem týndist þar
fyrir sjö árum.
Þegar Jón bóndi kom i
spitalann, sá hann undir
eins, að stúlkan frá
skógunum var Jóna
dóttir hans. Hún var
auðþekkt á fæðingar-
bletti, sem hún hafði á
hægri öxlinni. Auk þess
var hún ákaflega lik
móður sinni.
Jóna þekkti ekki
pabba sinn, og kannaðist
hvorki við nöfn foreldra
né systkina. Hún fór
samt með föður sinum
og sýndi engan mótþróa,
þó að hún kannaðist ekk-
ert við hann. En þegar
þau nálguðust kofann,
sem foreldrar Jónu
bjuggu i, þekkti hún allt
i einu umhverfið, þar
sem hún lék sér sem
barn.
Siðan fékk hún minnið
aftur smátt og smátt.
Þegar Jóna hafði ver-
ið heima hjá foreldrum
sinum i tvo mánuði,
hafði hún á ný vanizt
lifnaðarháttum siðaðra
manna. Foreldrar henn-
ar þorðu samt ekki ann-
að en gæta hennar vel.
Þau voru hrædd um að
hún reyndi að strjúka
aftur út i skógana, þvi að
þar kunni hún bezt við
sig.
Hún mundi eftir blóm-
unum, sem hún sá forð-
um á leiðinni til þorps-
ins. Hún villtist, þegar
hún fór aftur að leita að
þeim, og gat siðan
hvorki ratað heim né til
þorpsins. Hún varð ekk-
ert hrædd, þvi að hún
var vön að vera ein i
skógunum. Siðan flakk-
aði hún um skógana og
hefur alltaf farið lengra
og lengra frá átthögum
sinum.
Hún mjólkaði ær og
geitur og drakk úr þeim
mjólkina. Einnig hafði
hún ber og rætur til mat-
ar. Á vetrum hafði hún
einkum lifað á trjáberki
og grenikönglum. Hún
forðaðist menn, þvi að
þeir höfðu einu sinni
hlegið að henni. Stund-
um fór hún samt heim á
bæi að næturþeli til að
ná sér i mat, en aldrei
talaði hún við nokkurn
mann. Þess vegna
gleymdi hún málinu al-
veg og öllum mannasið-
um. En hún lærði það
fljótt aftur, eins og fyrr
var sagt.
Jóna hafði óvenjulega
hæfileika til að umgang-
ast dýr. Það var eins og
dýrin skildu hana og hún
dýrin. Hún varð ánægð
heima hjá foreldrum
sinum, riema að þvi
leyti, að hún gat illa sætt
sig við að eiga alltaf að
búa á sama stað, og
dvelja oftast innan fjög
urra veggja, bak við lok-
aðar dyr.
★
Hér er lokið sögunni aí
litlu stúlkunni, sem
týndist. Þótt okkui
kunni að virðast sagar
ótrúleg, þá er hún samt
sem áður sönn.
Fyrstir ó
morgnana
Vörubíla-
eigendur
Hiólbarðar
iil
afgreiðslu strax
Hringið í sölumann okkar í
'4-26-00
STÆRÐ
900x16/10
825x20/12
825x20/14
1000x20/14
*1000x20/16
1 100x20/14
VERÐ
13.650 kr.
16.455 kr.
18.635 kr.
26.105 kr.
27.335 kr.
28.315 kr.
hjólbarðarnir
kosta örugglega
minna ó
ekinn kílómetra
TEKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ
Á ÍSLANDI H.F.
AUÐBREKKU 44-6 SlMI 42600 KÓPAVOGI
Herrahúsið Aðalstræti 4, Herrabúðin við
Færð þú stundum þessa tiifinningu,
þegar þú kemur innan um fólk, að þú
hafir eitthvaó til að skammast þin
Skálmarnar ættu að vera viðari,
uppslögin breiðari, vasarnir öðruvísi
í laginu, þú sért einhvern veginn ekki
við tímann?
Jú, það fýlgir því öryggiskennd að
eftir nýjustu tizku.
Kóróna fötin veita þér þetta öryggi