Fréttablaðið - 20.01.2005, Qupperneq 6
6 20. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Um 250 Kínverjar bíða atvinnuleyfis vegna Kárahnjúka:
Koma fjörutíu Kínverja stöðvuð
KÁRAHNJÚKAR Koma rúmlega 40
Kínverja sem hugðust starfa á
Kárahnjúkum hefur verið stöðv-
uð. Þeir fá ekki atvinnuleyfi með-
an rannsókn ráðuneyta á starfs-
mannamálum Impregilo fer
fram. Kínverjarnir höfðu fengið
dvalarleyfi hjá Útlendingastofn-
un þrátt fyrir að atvinnuleyfi
lægi ekki fyrir.
Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir unnið
að lausn málsins sem taki vonandi
innan við vikutíma. Um 250 um-
sóknir Impregilo á atvinnu- og
dvalarleyfum fyrir erlenda starfs-
menn bíði afgreiðslu yfirvalda,
flestar fyrir kínverska menn.
Gissur segir að Kínverjarnir
séu ekki ráðnir í gegnum starfs-
mannaleigur. Þeir muni vinna án
nokkurs milliliðs hjá fyrirtækinu.
Þeim sé ætlað að sinna ólíkum
störfum og þeir hafi allir reynslu
af virkjunarframkvæmdum. Um-
sóknirnar nái til ólíks tíma. Þær
fari eftir umfangi framkvæmd-
anna.
Ekki náðist í Ómar R. Valdi-
marsson talsmann Impregilo. ■
Tungumálavandi innflytjenda:
Stjórnvöld vilja
auka íslenskunám
MENNTAMÁL Stjórnvöld hafa ákveðið
að efna til samstarfs við Kennara-
háskólann um úttekt á íslensku-
kennslu innflytjenda, að sögn Árna
Magnússonar félagsmálaráðherra.
Hann kvaðst frekar eiga von á að
bætt yrði úr vanköntum sem kynnu
að koma fram. Hann teldi að úrbóta
væri þörf.
Í könnuninni á viðhorfum inn-
flytjenda á Vestfjörðum og Austur-
landi kom fram að stór hluti þeirra
áttu í miklum erfiðleikum með ís-
lenskuna. Félagsmálaráðherra
sagði niðurstöður könnunarinnar í
mörgum atriðum athyglisverðar.
Þar kæmi meðal annars fram, að
innflytjendur teldu að þeir þyrftu
virkilega á því að halda að læra
meiri íslensku til að verða virkari
þátttakendur í samfélaginu og væru
mjög viljugir til þess. hann gat þess
að starfandi væri samráðshópur
ráðuneyta félagsmála, dómsmála og
menntamála um þennan málaflokk.
„Það er kannski það sem kemur
hvað ánægjulegast á óvart í könn-
uninni er að um 90 prósent þeirra
sem svara eru viljugir til að læra
meira í málinu,“ sagði Árni. „Við
höfum heyrt af því að það er miklu
meira brottfall á nemendum á þess-
um hópum heldur en almennt ger-
ist, eflaust að minnsta kosti að hluta
til vegna þess að íslenskukunnáttan
er nægilega mikil.“ -jss
Þekkta og fína fólkið
neytir kókaíns
Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir fíkniefnaneytendur vera fjölbreyttari nú en áður.
Margir kókaínneytenda séu þekkt og fínt fólk. Smáþjófar hafa ekki efni á dýrasta fíkniefninu, kókaíni.
KÓKAÍN Hörður Jóhannesson, yfir-
lögregluþjónn í Reykjavík, segir
hóp fíkniefnaneytenda orðinn
breiðari. Áður hafi verið litið á
fíkniefnaneytendur sem hálf-
gerða aumingja en annað eigi við
þá sem eru í kókaínneyslu sem
eru mikið til þekkta og fína fólkið.
Fyrir nokkrum árum hefðu
langflestir landsmenn staðið sam-
an með lögreglun-
ni og talið fíkni-
efnaneyslu vera
vandamál, að
sögn Harðar. Nú
sé neyslan orðin
hluti af skemmt-
a n a m y n s t r i n u .
„Kókaín er
dýrasta fíkniefnið
og það eru ekki ræflarnir á göt-
unni sem hafa efni á því, þetta er
fína fólkið sem er að neyta þess.
Eins og Stefán Máni rithöfundur
sagði svo réttilega þá er þetta sið-
ferðisvandamál,“ segir Hörður.
Hörður segir kókaínneytend-
urna hafa vit á því að nota lengri
leiðir til að fá efnið. Lögreglan viti
þó hverjir margir þeirra eru þó að
ekki sé hægt að sanna það. „Það
getur enginn treyst neinum í þess-
um bransa,“ segir Hörður. Hann
telur breyttan opnunartíma ef-
laust hafa áhrif á aukna neyslu
þar sem menn kýli sig út af kóka-
íni til að halda út allan tíma. Þeir
sem það geri gangi með efnin á
sér og neyti þeirra inni á stöðun-
um.
Hörður segist telja að neysla e-
taflna hafi minnkað og vonar að
því sé neytendunum sjálfum að
þakka með minnkandi eftirspurn.
Eins gæti ástæðan verið
minnkandi framboð í kjöl-
far strangari dóma. Þá
segir hann innflytjendur vilja
þjóna þeim sem borga best og
einnig sé kókaínið lang-
dýrasta efnið. Grammið af
kókaíni hefur kostað upp í
fimmtán þúsund krónur
og segir Hörður enga smá-
þjófa eða rúðubrjóta hafa
efni á því. Eins segir
hann að búast hafi
mátt við því hér að
fína fólkið hér myndi leita að til-
breytingu í kókaíni eins og gerst
hefur annars staðar.
„Við einbeitum okkur að því að
takmarka framboðið, innflutn-
ing, notkun, sölu og dreifingu.
Vandinn er sá að markaðurinn
hefur stækkað,“ segir
Hörður.
hrs@frettabladid.is
,,Það getur
enginn
treyst nein-
um í þess-
um bransa.
Gripinn með 400 grömm:
Fleygði
hassinu fram
af svölum
FÍKNIEFNI Fjögur hundruð grömm
af hassi fundust í húsleit á heimili
tuttugu og fimm ára manns í
Reykjavík seinni partinn á þriðju-
dag. Maðurinn
var handtekinn
og færður á lög-
reglustöðina til
yfirheyrslu.
M a ð u r i n n
reyndi að losa
sig við hassið
þegar lögregl-
una bar að
garði. Hann
sást henda
tveimur plötum
af hassi fram af
svölum íbúðar-
innar sem er í
fjölbýlishúsi. Honum var sleppt
að loknum yfirheyrslum í fyrra-
kvöld en ekki þótti ástæða til að
fara fram á gæsluvarðhald yfir
manninum vegna rannsóknar-
hagsmuna. Maðurinn hefur lítil-
lega komið áður við sögu lögreglu.
Rannsókn málsins beinist að því
hvort um sölu hafi verið að ræða.
Húsleitir sem þessar eru nær
daglegt brauð en tæplega átta
hundruð fíkniefnabrot komu upp í
umdæmi lögreglunnar í Reykja-
vík á síðasta ári. - hrs
Ferðu til tannlæknis á hverju
ári?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Heldurðu að kosningarnar í Írak
eigi eftir að ganga vel fyrir sig?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
38%
62%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Svíþjóð:
Forstjóri
týndur
SVÍÞJÓÐ Forstjóra og eins af erf-
ingjum sænsku raftækjaverslana-
keðjunnar Siba, hins 32 ára marg-
milljónamærings Fabians Bengts-
son, er saknað og óttast lögreglan
í Gautaborg að honum hafi verið
rænt. Þó hefur ekki komið fram
krafa um lausnargjald.
Bengtsson hefur ekki sést síð-
an á sunnudag þegar hann var á
heimili sínu í Gautaborg. Hann
fór til vinnu á mánudagsmorgun,
en mætti aldrei. Bíll hans fannst á
þriðjudag. Fjölskylda Bengtssons
er ein sú ríkasta í Svíþjóð. ■
Noregur:
Lóan komin
VORBOÐI Vorboðinn kom óvenju-
snemma til Noregs í ár, en það sást
til fyrstu lóunnar síðasta laugardag
á suðvesturströnd landsins. Daginn
eftir sást svo til stórs hóps af lóum,
auk þess sem nokkrir spóar voru á
stjá.
Norska útvarpið veltir því fyrir
sér hvort óveðrið sem gekk yfir
Norður-Evrópu í síðustu viku, hafi
getað blásið þeim yfir til Noregs.
Fuglafræðingurinn Alf Otto Fol-
kestad sem útvarpið ræddi við telur
það líklega ástæðu, líklegri en að
vorboðarnir hafi skilað sér snemma
í óvenjuhlýjan vetur í Noregi. ■
FRÁ KÁRAHNJÚKUM
Um 200 Kínverjar starfa á Kárahnjúkum.
Fyrirtækið Impregilo hefur sótt um starfs-
leyfi fyrir um 250 til viðbótar. Kínverjarnir
eru þaulvanir virkjanaframkvæmdum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
HÖRÐUR JÓHANNESSON
Innflytjendur vilja þjóna þeim
sem borga best og hafa pen-
ingana. Kókaín er dýrt og smá-
krimmar hafa ekki efni á því
að öllu jöfnu.
HASS
Tæplega 800 fíkni-
efnabrot komu upp
á síðasta ári í
Reykjavík.
Barentshaf:
Mikla olíu
að finna
POLITIKEN, DANMÖRK Norska olíu-
fyrirtækið Statoil heldur því fram
að olíu sem sé rúmlega 27 millj-
arða króna virði sé að finna í
Barentshafi. Eftir því sem fram
kemur í dagblaðinu Politiken gera
Rússar kröfur til hluta af olíulind-
unum.
Talið er að olían sé á 155.000
ferkílómetra svæði, sem er um
helmingur af stærð Noregs. Norð-
menn og Rússar hafa deilt um
mörk efnahagslögsögu landanna
tveggja í 35 ár og munu hvorki
norsk né rússnesk fyrirtæki fá að-
gang að olíunni fyrr en deilan hef-
ur verið leyst. ■
ÍSLENSKUKUNNÁTTA
Innflytjendur hafa kvartað undan ónógri íslenskukunnáttu. Á myndinni er flóttamanna-
hópurinn sem fluttist hingað til lands árið 2003.