Fréttablaðið - 20.01.2005, Síða 10
20. janúar 2005 FIMMTUDAGUR
Íslenskt ríkisfang Bobby Fischer:
Gæti fengið flýti-
meðferð þings
STJÓRNMÁL Bobby Fischer hefur
beðið ríkisstjórn Íslands um ríkis-
borgararétt að sögn Sæmundar
Pálssonar, vinar skákheimsmeist-
arans fyrrverandi, eftir að
japönsk stjórnvöld höfnuðu ósk
hans um að fá að nýta sér dvalar-
leyfi á Íslandi. Samkvæmt stjórn-
arskránni þarf lagasetningu Al-
þingis til að veita erlendum manni
ríkisborgararétt á Íslandi. Það
mál kemur til kasta allsherjar-
nefndar þingsins að fengnum til-
lögum dómsmálaráðuneytis. „Það
er gert tvisvar á ári en það er ekk-
ert því til fyrirstöðu að halda sér-
stakan fund ef nauðsyn krefur,“
segir formaður nefndarinnar,
Bjarni Benediktsson. Guðríður
Lilja Grétarsdóttir, talsmaður ís-
lensku Fischer-nefndarinnar, seg-
ir afstöðu japanskra stjórnvalda
valda vonbrigðum en nú muni vin-
ir Fischers hvetja stjórnvöld til að
veita honum ríkisborgararétt.
Lagaákvæði virðast í fljótu bragði
ekki veita stjórnvöldum mikið
svigrúm enda meðal annars kraf-
ist langrar búsetu á Íslandi og að
viðkomandi sé ekki „sakaður um
refsiverða háttsemi“. Á hinn bóg-
inn hefur Vladimir Azhkenazy
píanóleikara og mörgum íþrótta-
mönnum verið veittur ríkisborg-
araréttur með skjótum hætti.
- ás
Kaþólska kirkjan á Spáni kúvendir í afstöðu sinni:
Leyfir notkun smokksins gegn alnæmi
SPÁNN, AP Kaþólska kirkjan á
Spáni hefur kúvent í afstöðu sinni
til smokka og er nú samþykk því
að fólk noti þá til að verja sig gegn
HIV-veirunni sem veldur alnæmi.
Þetta er þvert á afstöðu Jóhannes-
ar Páls páfa II, æðsta yfirmanns
kaþólsku kirkjunnar, sem er alfar-
ið andvígur notkun smokka.
Juan Antonio Martinez Cam-
ino, talsmaður spænsku kirkjunn-
ar, greindi frá sinnaskiptum kaþ-
ólsku kirkjunnar eftir fund með
Elena Salgado, heilbrigðisráð-
herra Spánar. Camino sagði að
besta leiðin til að verjast alnæmi
væri í fyrsta lagi að stunda ekki
kynlíf utan hjónabands, í öðru lagi
að vera trúr maka sínum og að-
eins í þriðja og síðasta lagi með
því að nota smokkinn.
Camino sagði ástæðuna fyrir
breyttri afstöðu vera þá hversu
alvarlegur alnæmisvandinn væri.
„Kirkjan hefur miklar áhyggjur
af og mikinn áhuga á þessu vanda-
máli,“ sagði hann.
Spænska kirkjan hefur löngum
verið andvíg notkun smokksins,
líkt og kaþólska kirkjan á heims-
vísu. Ekki þarf að leita lengra
aftur en til nóvember til að finna
dæmi þess að forystumenn kirkj-
unnar dragi í efa hversu góða vörn
smokkurinn veitti gegn alnæmi. ■
Næstmannskæðustu
hamfarir í hundrað ár
Ljóst er orðið að minnst 225 þúsund manns létu lífið af völdum flóðbylgjunnar í
Asíu. Hún er því næstmannskæðustu náttúruhamfarir sem hafa átt sér stað undan-
farna öld. Óttast að enn verr geti farið ef hamfarir verða í stærstu borgum heims.
HAMFARIR Flóðbylgjurnar sem skullu
á ellefu ríkjum Suður-Asíu og aust-
anverðrar Afríku kostaði fleiri menn
lífið en allar nema einar náttúruham-
farir síðustu rúmlega hundrað ára.
Indónesar staðfestu í gær andlát
rúmlega 50 þúsund manns sem fram
að því höfðu verið flokkaðir sem
týndir. Eftir þetta er ljóst að í það
minnsta 225 þúsund manns lét lífið
af völdum flóðbylgjunnar.
Einu náttúruhamfarirnar síðustu
rúmlega hundrað árin sem hafa
kostað fleira fólk lífið en flóðbylgj-
an í Asíu var jarðskjálftinn sem
skók Tangshan í Kína í júlí 1976. Þá
létu 255 þúsund manns lífið, 30 þús-
und fleiri en nú er vitað til að hafi
látið lífið af völdum flóðbylgjunnar.
Tala látinna getur enn hækkað,
þrátt fyrir að ljóst sé að aldrei fæst
endanlega úr því skorið hversu
margir nákvæmlega létust. Tölur
um fjölda látinna á Sri Lanka eru til
að mynda mjög á reiki. Ráðuneyti
almannavarna segir rúmlega 38
þúsund manns hafa látist af völdum
flóðbylgjunnar en Hamfaravið-
bragðastofnunin segir tæplega 31
þúsund manns hafa látist. Fundi
þeirra í gær þar sem fá átti á hreint
hversu margir hefðu látist lauk án
niðurstöðu. „Báðir staðhæfa að
þeirra tölur séu réttar,“ sagði
Niranjan de Soysa, talsmaður Ham-
faraviðbragðastofnunarinnar, í
samtali við AP-fréttastofuna.
Þrátt fyrir að mannfallið af völd-
um flóðbylgjunnar sé gríðarlegt
voru mannskæðustu náttúruham-
farir mannkynssögunnar miklu
mun verri. Jarðskjálftinn sem reið
yfir Shensi-hérað í Kína árið 1556 er
talið hafa kostað 830 þúsund manns
lífið.
150 fulltrúar sitja alþjóðlega ráð-
stefnu um varnir við náttúruham-
förum sem hófst í Tókýó, höfuðborg
Japan, í gær. Jan Egeland, fulltrúi
Sameinuðu þjóðanna á ráðstefn-
unni, sagði að margar af fjölmenn-
ustu borgum heims væru viðkvæm-
ar fyrir náttúruhamförum. „Ógn-
vænlegasta tilhugsunin væri sú að
gríðarlegar náttúruhamfarir riðu
yfir tugmilljónaborg,“ sagði hann.
Hann sagði að við verstu mögulegu
aðstæður kynni mannfallið að verða
hundrað sinnum meira en af völd-
um flóðbylgjunnar.
brynjolfur@frettabladid.is
JÓHANNES PÁLL PÁFI II
Páfi hefur löngum barist hatrammlega gegn notkun getnaðarvarna, þar á meðal smokks-
ins. Nú hefur spænska kirkjan sagt sig undan leiðsögn hans hvað smokkinn varðar.
DVALARLEYFI DUGÐI EKKI
Fylgismenn Fischers ætla að hvetja íslensk
stjórnvöld til að veita honum ríkisborgararétt.