Fréttablaðið - 20.01.2005, Page 14

Fréttablaðið - 20.01.2005, Page 14
Aðeins tíu til fimmtán manns ætla til Túnis að fylgjast með Heims- meistaramótinu í handbolta sem hefst á sunnudag. Ferðaskrifstofan Kuoni og Flugleiðir bjóða upp á hópferð á mótið en áhuginn er tak- markaður. Tómas Tómasson hjá Kuoni segir þátttökuna minni en menn hafi gert sér vonir um. Boðið var upp á heimferð 4. og 7. febrúar og kusu flestir fyrri ferðina. Af því má ráða að þeir sem þó ætla utan búist ekki við að íslenska liðið leiki um verðlaunasæti. Fjöldi iðkenda í yngri flokkum félagsliðanna þykir ágætur mæli- kvarði á handboltaáhugann í land- inu. Lausleg athugun bendir til að nokkuð hafi fækkað í röðum ungra handboltamanna og röktu forráða- menn félaganna sem rætt var við það til árangurs landsliðs- ins á stórmótunum tveimur á síðasta ári. Liðið lék á Evrópu- mótinu í janúar og hafnaði í þrettánda sæti og á Ólympíuleik- unum í ágúst þar sem níunda sætið náðist. Þór Björnsson, gamall ref- ur úr markinu hjá Fram og nú íþróttafulltrúi félagsins, vekur þó athygli á að árangurinn einn og sér skipti ekki öllu. Í tengsl- um við EM í fyrra efndi Íþrótta- bandalag Reykjavíkur til átaks sem skilaði dágóðum fjölda krakka á æfingar og ekki skemmdi fyrir að KB banki og Visa gáfu hverjum og einum handbolta að gjöf. Strákarnir okkar Áhugi á íþróttagreinum birtist einnig í fyrirspurnum og viðskipt- um í íþróttaverslunum. Athuganir Fréttablaðsins leiddu í ljós að held- ur lítið er spurt um sérhæfðar vör- ur til handboltaiðkunar og til dæm- is fannst engin verslun sem taldi ástæðu til að bjóða íslenska handboltalandsliðsbúning- inn til sölu. „Almennt virðist ekki mikill áhugi á handbolta og það er hend- ing ef spurt er um lands- liðsbúninginn,“ segir Valgeir Ólafsson í Intersport í Smáralind og svör annarra íþróttavörukaup- manna voru á sömu lund. Bjarni Felixson íþróttafrétta- maður segist ekki merkja mikinn handboltaáhuga í samfélaginu þessa dagana en bendir á að vana- lega vakni hann ekki fyrr en mót séu hafin og liðið hafi farið vel af stað. „Íslendingar byrja ekki að fylgjast með og hvetja sína menn fyrr en vel gengur, öfugt við marg- ar aðrar þjóðir sem einmitt styðja lið sín þegar þau þurfa virkilega á því að halda,“ segir Bjarni sem fyrstur notaði hugtakið „strákarn- ir okkar“ um handboltalandsliðið. Hann minnir helst á að það hafi verið eftir níu marka sigur á Dön- um á Heimsmeistaramótinu í Sviss 1986 sem hann tók sér þessi orð í munn. Síðan eru þeir strákarnir okkar ef vel gengur en ann- ars bara handboltalands- liðið. Hæðir og lægðir Uppgangur handboltans á Íslandi var hvað mestur þegar Bogdan Kowalzyk þjálfaði liðið. Undir hans stjórn hafnaði það í sjötta sæti á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984 og á Heimsmeistaramótinu í Sviss tveimur árum síðar. Þjóðinni þótti þessi lágvaxni en jafnframt stórgerði Pólverji forvitnilegur og ekki spillti fyrir að leikmenn kvört- uðu sáran undan miklu álagi á æf- ingum. Fjölmiðlar fylgdust grannt með undirbúningi liðsins fyrir stórmót og vissu allt um leikmenn, til dæmis hæð, þyngd og skónúmer. Mæður leikmanna og eiginkonur röktu kosti þeirra á síðum glans- tímarita og hvert mannsbarn kunni textana við hvatningarlögin sem samin voru. En svo hallaði undan fæti og gengið hefur verið upp og niður síðan. Áhuginn varð vitaskuld gríðarlegur þegar ljóst varð að góður árangur var í að- sigi á B-heimsmeistara- keppninni í Frakklandi 1989 og vonast var til að Íslend- ingar yrðu loksins almesta handboltaþjóð í heimi þegar okkur hlotnaðist að halda Heimsmeis taramót ið 1995. Jafnvel svartsýn- ustu menn trúðu að Ís- land gæti hreppt sjálf- an heimsmeistaratit- ilinn á heimavelli en heldur fór það á annan veg og 13.–16. sæti varð okkar hlutskipti. Þó að áhugi á handbolta mælist í minna lagi nú, nokkrum dögum fyrir Heimsmeistaramót, er ekki þar með sagt að landsmenn ætli ekki að fylgjast með. Greinilegt er á öllu að það er íslenska landsliðið sem er á leið til Túnis en aldrei að vita nema þaðan komi strákarnir okkar. bjorn@frettabladid.is 14 20. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Handboltalandsliðið og strákarnir okkar 2.530 BRAUTSKRÁÐUST FRÁ FRAMHALDSSKÓLUM SKÓLAÁRIÐ 2002/3 Þar af 974 karlar og 1.556 konur. HEIMILD: HAGSTOFAN SVONA ERUM VIÐ Alþingi samþykkti í haust lög um dí- silknúnar bifreiðar til að gera þær að raunverulegum valkosti fyrir almenn- ing með því að taka upp sérstakt olíugjald í stað þungaskatts. Lögin taka gildi 1. júlí og nú stendur yfir undirbúningur fyrir breytingar á markaðnum. Nú er fjöldi dísilbifreiða innan við fjórðungur af bílaflota landsmanna en erlendis er algengt að helmingur bifreiða sé útbúinn dísilvél. Runólfur Ólafsson, formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að bílgreinin sé að búa sig undir breyt- inguna. Almenningur hringi mikið á skrifstofu félagsins til að fá upplýs- ingar um breytingarnar. „Það er að vísu orðrómur um að menn ætli að fresta gildistökunni, meðal annars vegna þess að olíufélögin telja að aðlögunartíminn sé of stuttur.“ Hann segist sjá fram á breytt neyslu- mynstur og olíufélögin kunni að ótt- ast það. „Þetta gæti minnkað veltuna hjá olíufélögunum.“ Guðmundur Gústafsson, sölumaður hjá Heklu, segir fyrirtækið farið að huga að breytingunum. „Við höfum alltaf verið með nokkrar tegundir dísilbíla en erum núna að fjölga þeim.“ Hann segir fyrirspurnum um slíka bíla fara fjölgandi en hann býst þó ekki við sprengingu á markaðn- um. Dísilbílar verða dýrari en bensín- bílar. „Það munar um 300.000 krón- um á Golfinum hjá okkur. En dísil- bíllinn er sparneytnari og kraftmeiri.“ Markaðurinn undirbýr breytingar EFTIRMÁL – LÖG UM DÍSILKNÚNAR BIFREIÐAR Fréttablaðið hefur greint frá því að sjö fyrrverandi ráðherrar fengu samtals rúmar sautján milljónir króna í eftir- laun á liðnu ári þrátt fyrir að vera enn í fullu starfi á veg- um hins opin- bera. Þetta má að miklu leyti rekja til nýrra laga um eftirlaun þingmanna og ráðherra sem samþykkt voru á Alþingi í desem- ber árið 2003. Kristján Gunnars- son, formaður Starfsgreinasam- bandsins, segir vel í lagt fyrir þessa menn. „Mér leist bölvanlega á það þegar þetta var samþykkt og geri það enn. Það voru formenn flokkanna sem sátu einhverja sellufundi og ákváðu sjálfir að auka við réttindi sín. Ég varð mjög reiður yfir þessu.“ Kristján segist hafa sagt sig úr Samfylkingunni í fússi vegna málsins. Hann segir eftirlaunaréttindi ráðherra úr öllum takti við almenning í landinu. „Fólk á almennum vinnumarkaði sem heldur þessari þjóð uppi hefur ekkert í líkingu við þetta. Það er gott að menn geti notið ágætra eftirlauna en menn eiga ekki að hafa ofurtekjur á kostnað almennings. Þetta er ekkert annað en græðgi.“ Reiður EFTIRLAUN RÁÐHERRA SJÓNARHÓLL – hefur þú séð DV í dag? Ofsóttum stórmeistara í skák hótað lífláti Helgi Áss flúði til foreldra sinna öskrandi á hjálp f tt t i t í t lífl ti Ölgerðin Egill Skallagrímsson bruggar þorrabjór sinn þetta árið að hluta úr íslensku byggi. Ís- lenskt bygg hefur ekki áður verið notað til bjórframleiðslu en land- búnaðarforystan sér fram á bjarta tíma í þessum efnum og vonast til að þetta sé aðeins upp- hafið að einhverju meira. Byggið sem Ölgerðin notast við er ræktað á bænum Leirá í Borg- arfirði þar sem Ásgeir Kristinsson er bóndi. Hann hefur ræktað bygg í átta ár og var það hátt kjarnfóð- urverð, vilji til að nýta land og tæki og áhugi á hvort hægt væri að bæta ræktuninni við annan bú- rekstur sem rak hann út í þetta. Sjálfur er Ásgeir ekki mikill bjórþambari. „Nei ég er það nú ekki en finnst gott að smakka hann til tilbreytingar eins og ann- að.“ Engu að síður er hann ánægð- ur með bjórinn, sem að hluta til er bruggaður úr bygginu af ökrum Leirár. „Já, ég get ekki sagt ann- að. Þetta höfðar ágætlega til mín.“ Hann vonast til að framhald verði á bjórbruggun úr íslensku byggi en segir það undir neytendum komið. „Við skulum sjá til um við- tökurnar, hvort ég er einn um þennan smekk eða hvort fleiri hafa svipaðan smekk,“ segir byggbóndinn sem hlakkar til þorrans, sem hann segir tilbreyt- ingu í skammdeginu. - bþs KRISTJÁN GUNNARSSON ÞORRABJÓR ÚR BORGFIRSKU BYGGI Ásgeir Kristinsson bóndi, Guðmundur Mar Magnússon, bruggmeistari Ölgerðarinnar, og Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna. Landbúnaðurinn sér sóknarfæri í brugginu: Íslenskt bygg í þorrabjórnum Handboltaáhugi Íslend- inga sveiflast upp og niður. HM í Túnis hefst á sunnudag en óhætt er að segja að þjóðin haldi ró sinni. Þjálfarinn er bjartsýnn og metnaðar- fullur en gengið í æf- ingaleikjum heldur dapurt. Úrslit fyrstu leikja á HM skera úr um hvort Íslendingar verða handboltaþjóð á þorranum eða ekki.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.