Fréttablaðið - 20.01.2005, Síða 26

Fréttablaðið - 20.01.2005, Síða 26
Vararafhlöður Þegar þú ferðast með myndavél skaltu ganga úr skugga um það að þú sért með vara- rafhlöður við hendina. Ekkert er verra en þegar rafhlöðurnar klárast þegar maður stendur frammi fyrir hinu fullkomna myndefni. Þú getur líka keypt hleðslurafhlöður með hleðslu- tæki og átt tvö sett, annað í vélinni og hitt til vara.[ ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 27 01 3 0 1/ 20 05 Netsmellur Alltaf ód‡rast á netinu Paradís sóldýrkenda Sjávarhiti rokkar á milli 17˚c og 24˚c á yfirborðinu á Lanzarote. Sumarferðir bjóða nýjan áfangastað frá maí og fram í september. Farið er á hvítu ströndina, eða Playa Blanca, sem er syðst á eyjunni Lanzarote. Lanzarote er ein af sjö stærstu Kanaríeyjunum og liggur hún austast af eyjunum. Eyjan er í Atlants- hafinu og aðeins hundrað kílómetra undan strönd- um Afríku. Litlu eyjurnar La Graciosa, Alegranza, Montana Clara, Roque del Este og del Oeste til- heyra Lanzarote og búa alls hundrað þúsund manns á eyjunni en flestir halda sig sunnarlega. Lanzarote er flötust af Kanaríeyjunum og liggur mjög lágt og því er loftslagið þurrt og þar rignir afar sjaldan. Sólin skín margar stundir á ári og því er þetta paradís fyrir sólardýrkendur. Ekki er mjög vindasamt á eyjunni, sem gerir siglingar og brimbrettaiðkun að leik einum. Talsverð eldfjallavirkni hefur verið á Lanza- rote og hér áður fyrr urðu eldgos fjölmörgum að bana. Montanas del Fuego, eða Eldfjöllin, spúðu hrauni yfir eyjuna og mótuðu landslagið, sem flestum þykir afskaplega aðlaðandi í dag. Arki- tektúrinn passar vel við þetta „íslenska“ landslag en það var hinn heimsþekkti arkítekt César Manrique sem lagði drög að öllum mannvirkjum eyjarinnar. Í ferðum Sumarferða í sumar gefst ferðalöng- um kostur á að kynnast eyjunni og menningunni í hinum ýmsu skoðunarferðum. Hægt verður að heimsækja Los Verdes-hellana, sem urðu til í eld- gosi, heimsækja forna og nýja tíma í söfnum og kynnast vín- og matargerð innfæddra. ■ Eftir kóralrifin miklu og ferðamanna- stemninguna í Cairns var kominn tími til að fara á flakk á ný og í þetta skipti lá leiðin til Darwin, stærstu borgar Northern Territory, nyrst í Ástralíu. Northern Territory er um margt ólíkt öðrum fylkjum Ástralíu en það er fá- mennasta og dreifbýlasta fylki lands- ins með um 200.000 íbúa. Sérstakar aðstæður gera það að verkum að þar eru ýmsar reglur í gildi sem hvergi gilda annars staðar, en í Northern Territory er enginn hámarkshraði á vegunum í dreifbýli og algengt er að vegfarendur þeysi um eyðimerkur- vegina á 160 km hraða á klukku- stund. Það er því ekki óalgengt að sjá kengúruhræ liggjandi í vegaköntum en þrátt fyrir að þessi krúttlegu dýr eigi hug og hjörtu flestra teljast þau til vandræða á mörgum svæðum. Kengúrurnar eru oft varhugaverðar því þær geta valdið umferðarslysum þegar þær eru á ferðinni, sem er einkum á nóttunni, við sólarupprás og sólsetur. Í Northern Territory er annar taktur en á austurströnd Ástralíu. Á meðan austurströndin iðar af lífi og flestir ferðamenn leggja leið sína þangað eru öllu meiri rólegheit í Northern Territory en bæjarkjarnar eru fáir og fámennir. Daily Waters, 20 manna bær skammt frá Darwin, er til dæmis þekktur fyrir fátt annað en bæjar- pöbbinn sem er þakinn alls kyns dóti, allt frá nærfötum upp í þjóðfána, öku- skírteini og erlenda peningaseðla. Heartbreak Hotel er aðeins þyrping örfárra húsa sem hýsa gistingu, veit- ingastað, pöbb og bensínafgreiðslu. Öfugt við það sem margir gætu hald- ið er það svo sannarlega áhugavert að stoppa á svona stöðum, þó ekki sé nema til þess eins að spjalla við heimamenn, sem eru nær undan- tekningarlaust gestrisnir og áhuga- samir um hvern þann sem leggur leið sína á þeirra slóðir og tilbúnir í spjall um allt milli himins og jarðar. Heimsreisa BRYNJA DÖGG FRIÐRIKSDÓTTIR SENDIR PISTLA ÚR HEIMSREISU SINNI Í „óbyggðum“ Ástralíu Snorri Wium söngvari fór í tónleikaferð til Pétursborgar með Fóstbræðrum. Snorri Wium óperusöngvari ætti að vera Íslendingum að góðu kunnur, einkum eftir frá- bæra frammistöðu sína í sýn- ingu Íslensku óperunnar á Sweeney Todd í haust. Hann skrapp til Rússlands í fyrravor og varð fyrir ýmsum hughrifum í þeirri ferð. „Ég fór til Pétursborgar í tónleikaferð með Fóstbræðrum. Við Elín Ósk Óskarsdóttir fór- um með sem einsöngvarar og við fluttum Ödipus Rex á glæsi- legum tónleikum með Fílharm- oníusveit Pétursborgar, sem er einhver besta hljómsveit í heimi. Við fórum fyrst til Helsinki og keyrðum þaðan til Péturs- borgar. Það var dálítið áfall að keyra í gegnum Rússland, bæ- irnir á leiðinni voru eitthvað svo ömurlegir. Þar býr fólk í stór- um, hrörlegum blokkum sem eru stagbættar með hverju því efni sem hendi er næst, plast- pokum og hvað eina. Og svo er Pétursborg svona dásamlega falleg, að minnsta kosti á yfir- borðinu. Þarna er höll við höll og búið að gera allt upp mjög glæsilega og fallega.“ Snorri starfar ekki bara sem söngvari heldur líka málara- meistari. Hann segist þó hafa verið hvorugt á ferð sinni um Pétursborg. „Ég var þarna fyrst og fremst sem túristi. Þarna eru ótrúleg söfn og ógrynni af listaverkum eftir alla stærstu listamenn sögunnar. Svanavatn- ið, sem varð kveikjan að hinum stórkostlega ballett og tónverki, er þarna til dæmis og þó það sé bara lítill andapollur var sér- staklega gaman að sjá það.“ ■ Snorri Wium kynntist þessari myndarlegu matrúsku á ferð sinni um Rússland. Gaman að sjá Svanavatnið Kengúrur valda talsvert mörgum um- ferðarslysum, einkum á nóttunni og í ljósaskiptunum. Maí – 16˚c – 26˚c Júní – 18˚c – 27˚c Júlí – 19˚c – 28˚c Ágúst – 20˚c – 29˚c Sept. – 20˚c – 29˚c HITI Á LANZAROTE út í heim } Leið á söfnunum í Vín? FARIÐ Í ÓHEFÐBUNDNA GÖNGUFERÐ UM BORGINA Ertu að springa úr snitseláti? Búin(n) að fá nóg af öllum „verður að sjá“-söfnunum og sögulegu byggingunum? Ferðamálayfirvöld í Vín hvetja ferðamenn í borginni til að bregða út af vananum og fara í staðinn í skipulagðar gönguferðir um borgina. Austurríkismenn eru annálaðir útivistarmenn og vilja nú hvetja ferðamenn til að upplifa Vín á nýjan hátt. Gönguferðirnar eru í gegnum græn svæði borgarinnar svo og vínræktarsvæði, en á leiðinni er áð til að eta og drekka svo ferða- langar geti bætt upp glataðar hita- einingar, segir í yfirlýsingu frá ferða- málayfirvöldum. ]

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.