Fréttablaðið - 12.02.2005, Side 8
12. febrúar 2005 LAUGARDAGUR
Þúsundir flykktust á opnun húsgagnaverslunar:
Sex á sjúkrahús eftir opnun IKEA
BRETLAND, AP Sex voru fluttir á
sjúkrahús vegna meiðsla sem þeir
hlutu við opnun nýrrar IKEA-
verslunar í London. Þeir voru þó
ekki þeir einu sem slösuðust við
opnunina því alls slösuðust 22 í
troðningi þrátt fyrir að ekki þyrfti
að senda alla á sjúkrahús.
Stjórnendur verslunarinnar
ætluðu að hafa opið í sólarhring
en sáu sitt óvænna og lokuðu eftir
aðeins 41 mínútu. Ástæðan var
mikill troðningur sem fylgdi þeim
6.000 viðskiptavinum sem þyrpt-
ust á staðinn, en það voru mun
fleiri en búist var við.
Búið var að auglýsa margvís-
leg tilboð til að freista væntan-
legra viðskiptavina. Meðal annars
gátu heppnir viðskiptavinir
tryggt sér leðursófa fyrir and-
virði 5.400 króna. Það kom stjórn-
endum IKEA hins vegar mjög á
óvart að 6.000 viðskiptavinir
mættu á staðinn þegar búðin var
opnuð á miðnætti og sögðu þeir í
kjölfarið að þeir hefðu farið öðru-
vísi að hefðu þeir búist við slíkri
aðsókn. ■
Heilbrigðisráðherra um geðheilbrigðismál á Alþingi:
Horfið frá byggingu stórra geðsjúkrahúsa
HEILBRIGÐISMÁL „Það þarf að endur-
skoða hlutverk geðheilbrigðisstofn-
ana, hverfa frá uppbyggingu stórra
geðsjúkrahúsa og gera þjónustuna
notendavænni.“
Þetta sagði Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra í umræðum um
geðheilbrigðismál á Alþingi á
fimmtudag.
Hann vísaði í þessu sambandi til
nýrra áherslna í geðheilbrigðismál-
um sem fram hefðu komið á fyrstu
evrópsku ráðherraráðstefnunni um
geðheilbrigðismál sem haldin var í
Helsinki í janúar. Sagði ráðherra að
þar hefðu evrópskir ráðherrar reist
vegvísi, sérstaka samþykkt og að-
gerðaáætlun, sem ætti eftir að hafa
áhrif á geðheilbrigðisþjónustuna á
Íslandi.
„Grunntónninn í hvoru tveggja
má segja að sé að hverfa frá því að
byggja upp stór geðsjúkrahús og
flytja þjónustuna nær þeim sem
hún á að þjóna,“ sagði hann. „Jafn-
framt að auka þátt eða vægi not-
enda og aðstandenda í meðferð og
stefnumótun og taka tillit til og
auka vægi geðheilbrigðissjónar-
miða við lagasetningu sem tekur til
vinnuverndar og almennrar stefnu-
mótunar í heilbrigðisþjónustunni.“
Ráðherra undirstrikaði að efla
þyrfti samstarfið við fulltrúa not-
endafélaganna og kvaðst myndu
stefna að því.
-jss
Ræninginn ber við
spilaskuldum
Þriggja barna faðir framdi fjögur vopnuð rán og gerði tilraun til þess fimmta nú í vik-
unni. Hann segist hafa framið ránin til að greiða spilaskuldir. Maðurinn var handtekinn
fyrir utan verslunarmiðstöð og ekki ólíklegt að enn eitt ránið hafi verið í undirbúningi.
RÁN Ræninginn sem framið hefur
fjögur vopnuð rán og gert eina
ránstilraun í vikunni er einnig
grunaður um innbrot í matvöru-
verslun í Grafarholti fyrir
skemmstu. Maðurinn játaði
ránstilraunina og þrjú ránanna
strax en var tregari til að játa rán
í verslun sem
hann hafði áður
starfað í og er í
hans heima-
hverfi.
R æ n i n g i n n
hefur verið úr-
skurðaður í einn-
ar viku gæslu-
varðhald en
ástæða þykir að
ætla að hann
muni halda brot-
unum áfram.
Ómar Smári Ármannsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn í Reykjavík,
segir ljóst að maðurinn hafi
framið þau rán sem hann er sak-
aður um. Ekki sé talið að vitorðs-
maður sé með í spilinu að sögn
Ómars. Við ránin notaði maðurinn
hamar, hníf og loftriffil.
Ræninginn er þriggja barna
faðir og hefur lítið sem ekkert
komið áður við sögu lögreglu.
Sjálfur segir maðurinn spila-
skuldir hafi knúið hann til rán-
anna. Upptökur úr eftirlistmynda-
vélar flestra verslananna í Mjódd
voru skoðaðar eftir að ræninginn
framdi rán í Leikbæ í von um að
vísbendingar fyndust. Í framhald-
inu var talið að ræninginn keyrði
um á rauðum bíl. Skömmu síðar
sáu eftirtektarsamir lögreglu-
menn gamlan rauðan bíl bakka í
bílastæði við verslunarmiðstöðina
Austurver í Reykjavík. Talið er
líklegt að þar hafi ræninginn ver-
ið á leið í enn eitt ránið. Lögreglu-
mennirnir athuguðu með öku-
manninn og bílinn, í bílnum var
lambhúshetta, hnífur og loftriffill
sem leiddi til handtöku mannsins.
Rétt fyrir miðnætti á fimmtu-
dagskvöld var svo gerð húsleit
heima hjá manninum. Við leitina
fannst hamar sem grunur leikur á
að maðurinn hafi notað í einu rán-
anna. Eins er hugsanlegt að ham-
arinn hafi verið notaður til að
brjóta rúðu í innbrotinu sem mað-
urinn er grunaður um.
Í tveimur ránanna svo vitað sé
hafði ræninginn eggvopn undir
jakkanum, fletti frá jakkanum til
að sýna vopnið og sagðist ekki
ætla að meiða neinn.
hrs@frettabladid.is
,,Hann
fletti frá
jakkanum
til að sýna
vopnið og
sagðist ekki
ætla að
meiða
neinn.
Bækur mánaðarins
Guðrún heillar lesendur upp úr skónum
Öðruvísi fjölskylda:
„Frásögnin er bæði
þétt og lifandi og
skemmtileg ... mættum
við fá meira að heyra.“
Kristín Viðarsdóttir,
bokmenntir.is
„Enn einu sinni hefur
Guðrúnu tekist að
heilla lesendur upp úr
skónum.“
Elísabet Brekkan, DV
Öðruvísi dagar:
„Spaugileg og fyndin
saga ... hlý bók; frá henni
stafar góðmennsku og
velvild.“
Katrín Jakobsdóttir, DV
„Við sögulok eru
persónurnar og lesandinn
umburðarlyndari og
ánægðari með lífið og
tilveruna enda dregið
lærdóm af því sem fyrir
ber.“
Kristín Ólafs, Mbl.
„Yndislegar "öðruvísi" bækur ... vel skrifaðar.
Þær eru fyndnar, sorglegar, hjartnæmar.“
Hrund Ólafsdóttir, Mbl.
• 53 stjörnumerki sem sjást frá Íslandi
• Allt um stjörnuskoðun
• Örnefnakort af tunglinu
• Mikill fjöldi mynda og stjörnukorta
Stjörnuskífa
fylgir með!
Horfðu til himins - sjáðu allar stjörnurnar
Fyrsta bókin
um íslenska
stjörnuhimininn
Einstök handbók fyrir þá sem hafa unun af því að horfa til
himins á vetrarkvöldum. Með myndum og kortum og
greinargóðum upplýsingum er kennt hvernig best er að
standa að stjörnuskoðun hérlendis. Bók fyrir alla fjölskylduna. IKEA Á ÍSLANDI
Aldrei hefur troðningurinn í Holtagörðum verið álíka og var í Bretlandi í fyrrinótt.
ENDURSKOÐUN
Heilbrigðisráðherra vill endurskoða hlutverk heilbrigðisstofnana.
LOFTRIFFILLINN, HNÍFURINN OG GRÍMA MANNSINS
Ræninginn starfaði um skeið í einni versluninni sem hann rændi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
08-09 11.2.2005 21.01 Page 2