Fréttablaðið - 12.02.2005, Síða 25

Fréttablaðið - 12.02.2005, Síða 25
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 8 Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Þú hitar bílinn áður en þú ferð út í kuldann og þarft aldrei að skafa! SVO ÓTRÚLEGA NOTALEGT! Bíldshöfða 16 | 567 2330 Bílasmiðurinn hfKveikt er á hitaranum með: fjarstýringu gsm síma eða klukku Góðan dag! Í dag er laugardagurinn 12. febrúar, 43. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 9.32 13.42 17.53 AKUREYRI 9.26 13.27 17.29 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Árni Kópsson kafari heldur mikið upp á Dodge Viper blæjubílinn sinn sem hann keypti fyrir fáeinum árum. Hann er þó ekki á blæjubílnum hversdags heldur ekur um á stórum Hummer- jeppa. „Þessi bíll er alveg frábær og sennilega sá besti sem ég hef átt,“ segir Árni Kópsson kafari um sportbílinn sinn, Dodge Viper ár- gerð 1994. Árni festi kaup á bílnum fyrir fáeinum árum og hefur bíllinn ekki valdið honum vonbrigðum. „Hann er smíðaður sem kappakstursbíll og sem slíkur er hann afskaplega vinalegur. Þetta er það sem mætti kalla alvöru leikfang,“ segir Árni. Bíllinn er með V-10 vél sem er rúmlega átta lítra. Að sögn Árna er bíllinn rétt um fjórar sekúndur að ná 100 kílómetra hraða. „Það er auðvitað gaman að gefa í en um leið verður maður auðvitað að virða um- ferðarreglurnar. Ég keyri aldrei mjög hratt,“ segir Árni og bætir við að hann noti bílinn lítið yfir veturinn enda er mjög lágur og svo er blæjan kannski ekki alveg það besta í vetrarkuldanum. Þegar Árni fær sér bíltúr þá segir hann athyglina beinast að sér. „Það taka allir eftir þessum bíl – annað er bara ekki hægt.“ Bíllinn hefur ekki þurft viðhald síðan Árni eign- aðist hann. „Hann er bara þveginn og bón- aður reglulega. Annað þarf ekki að gera,“ segir Árni og bætir við að bíllinn sé aldrei geymdur utandyra – hvort sem er að sumri eða vetri. Eins og gefur að skilja notar Árni ekki Dodge-inn í daglegu amstri. „Ég er á Hummer-jeppa dagsdaglega og líkar það mjög vel. Hummerinn keypti ég nýjan árið 1995 og hann hefur reynst vel. Ég þarf starfsins vegna að vera á öflugum bíl og þarf oft að fara út á land,“ segir Árni en hann rekur köfunarþjónustu og felst starf- ið meðal annars í því að þeysast um landið og bora eftir heitu vatni. arndis@frettabladid.is Blæjubíllinn er alvöru leikfang Síðasti tilboðsdagur á bíla-leigubílum hjá Bílalandi, sölu-deild notaðra bíla hjá B & L, er í dag. Um er að ræða nýlega bíla af gerðinni Renault Me- gane og Renault Clio sem allir voru nýskráðir á árinu 2003. Að sögn Guðlaugs Andra Sigfús- sonar, sölustjóra Bílalands, er gefinn 220 til 250 þúsund króna afsláttur af hverjum bíl, auk þess sem þeir eru allir á heilsársdekkjum. Þá eru þeir allir með verksmiðjuábyrgð. Síðasta ár var metár í sögu Volvo vörubíla. Sala jókst um 29 pró- sent og talsverð eftirspurn var eftir stórum vörubílum á öllum stórum mörkuðum í Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku og Asíu. Staffan Jufors, formaður Volvo Trucks í Svíþjóð, er að vonum glaður með árið og spá- ir því að þessi aukning muni halda áfram á þessu ári. Spár fyrir bæði Evrópu og Norður- Ameríku gefa til kynna aukinn hagnað og hefur eftirspurn eftir stórvirkum vörubílum aukist jafnt og þétt síðustu ár. Dodge kynnti nýjan og stærri pallbíl á bílasýningunni í Chicago á miðvikudag. Með þessu ætlar Dodge að reyna að hagnast á ást Kanans á ofur- stórum hlutum en þessi nýi pallbíll heitir Dodge Ram Mega Cab 2006. Dodge hefur mátt þola sölu- minnkun í pallbílaflokknum og vill snúa því við. Nýi pallbíll- inn rúmar sex fullorðnar mann- eskjur og mun vera hægt að fjárfesta í ýmsum aukahlutum í bílnum eins og DVD spilara og staðsetningarútvarp en bíllinn mun fara á markað næsta haust. Árni heldur mikið upp á gula blæjubílinn sinn enda kraftmikill bíll með afbrigðum. Fyrir aftan sést svo vinnubíllinn sem er Hummer-jeppi. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is LIGGUR Í LOFTINU í bílum FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN Ég kann alveg að lesa. Það stendur „H-U-R-Г ! Ný Honda CR-V reynsluekin BLS. 2 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 FRÉTTAB LAÐ IÐ /E.Ó L. bilar@frettabladid.is LOKAÐ 25-Allt fors 11.2.2005 16.15 Page 1

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.