Fréttablaðið - 12.02.2005, Síða 26
Blendingsvél
Framleiðsla á bílum með blendingsvél hefur aukist af umhverfisástæðum.
Að bíll sé drifinn af blendingsvél þýðir einfaldlega að hann sé drifinn af
fleiri en einni tegund af vél. Algengasta blandan núna er rafmagnsvél og
bensínvél sem ætlað er að draga úr mengunaráhrifum á umhverfið. [ ]
REYNSLUAKSTUR
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
Bíldshöfða 18 • 110 Rvk
Sími 567 6020 • Fax 567 6012
opið mán. - fös. kl. 8.00 - 18.00
www.abvarahlutir.is • ab@abvarahlutir.is
ALLT Á EINUM STAÐ
• HEILSÁRSDEKK
• OLÍS SMURSTÖÐ
• BÓN OG ÞVOTTUR
• HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
• NAGLADEKK
• RAFGEYMAÞJÓNUSTA
• BREMSUKLOSSAR
• PÚSTÞJÓNUSTA
SBD, SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066
Vinsæll bíll í nýrri útfærslu
Borgarjeppinn Honda CR-V stendur vel undir
þeirri nafngift. Þetta er þægilegur bíll sem
þjónar vel þörfum venjulegrar fjölskyldu.
Borgarjeppinn Honda CR-V hefur notið vinsælda frá
því hann kom fyrst á markaðinn. Ástæðan er líklega
að þetta er afar þægilegur bíll fyrir meðalfjölskyldu
sem hefur gaman af að ferðast. Auk þess hefur út-
litið á bílnum frá upphafi verið einfalt og stílhreint
en sérstakt um leið þannig að bíllinn hefur skorið sig
úr á götunum.
Nú er Honda CR-V kominn í nýrri útfærslu. Út-
litið er sem fyrr stílhreint og fallegt en helsta breyt-
ingin er á framenda bílsins, sem er orðinn rennilegri
og um leið glæsilegri en á fyrirrennaranum.
Bíllinn er um margt óvenjulegur að innan. Bæði
gírstöng og handbremsuhandfangi er komið fyrir við
hlið mælaborðsins og á milli framsæta er niðurfell-
anlegt borð með glasabökkum og öðru geymslurými.
Mælarnir í borðinu eru baklýstir, sem gerir þá bæði
skýra og gefur þeim skemmtilegt útlit. Þetta er
meðal þess sem gerir bílinn óvenjulegan og um leið
skemmtilegan að innan.
Sætin í bílnum eru góð, hæfilega mjúk og halda
vel utan um farþega. Plássið nýtist vel meðal annars
vegna þess að gólfin eru alveg flöt og sætin færast
lipurlega fram og aftur. Farangursrýmið er líka
ágætt og býður upp á stækkun með niðurfellingu
annars eða beggja aftursæta.
Fjórhjóladrifið í bílnum er sjálfvirkt þannig að
þegar veggrip er gott beinist aflið í framhjólin en um
leið og þau byrja að missa grip beinist afl eftir þörf-
um til afturhjólanna. Þetta gerir það að verkum að
bíllinn er sparneytnari en sambærilegur bíll sem
búinn er sídrifi.
Bíllinn er lipur og skemmtilegur eins og búast má
við, bæði í borgarakstri og eins úti á vegum. Undir-
rituð hefur mikinn smekk fyrir jepplingum, einkum
vegna þess hversu gott útsýnið verður þegar setið er
ögn hærra en í venjulegum fólksbíl. Sömuleiðis er
þægilegt að setjast inn í og fara út úr bílum í jeppl-
ingahæð, hvorki er sest niður í bílinn eins og í fólks-
bíl né þarf að klífa upp í hann eins og í fullvaxinn
jeppa. Honda CR-V stóðst allar væntingar fyllilega.
Salan á nýja CR-V bílnum hefur gengið vel að
sögn sölumanna hjá Bernhard. Þegar eru nokkrir
tugir bíla seldir á þeim þremur vikum sem liðnar eru
frá því bíllinn kom á markað.
steinunn@frettabladid.is
HONDA CR-V
Hestöfl Beinskiptur Sjálfskiptur
LS 2.0i 150 2.749.000 2.849.000
ES 2.0i 150 2.895.000 2.995.000
Executive 2.0i (leður+sóllúga) 150 3.249.000 3.349.000
ES 2.2i i-CTDi Dísil 140 3.295.000
Nýi Honda CR-V er rennilegri á að líta en fyrirrennarinn.
=
ft.
nn
eg-
uk
en
yrr
em
nd-
illi
ru
æði
er-
ar-
eg
ka
gja
er
rip
um
fi.
i í
26-27 ALLT bílar ofl 11.2.2005 15.59 Page 2