Fréttablaðið - 12.02.2005, Page 40

Fréttablaðið - 12.02.2005, Page 40
SVIPMYND 16 Vissir þú ... ...að þyngsta kona í heimi er hin bandaríska Rosalie Bradford sem náði hámarksþyng sinni, 544 kíló- um, í janúar árið 1987? ...að yngsti heimsmeistari í list- skautahlaupi er Tara Lipinski frá Bandaríkjunum sem vann einstak- lingstitil 22. mars 1997 aðeins 14 ára og 286 daga? ...að David Huxley frá Ástralíu dró 187 tonna Boeing 747 þotu 91 metra á einni mínútu og 27,7 sek- úndum 15. október árið 1997? ...að Sanjeev Baby á Indlandi lék á gítar í 24 tíma og þrjátíu mínútur 14. til 15. ágúst árið 2000? ...að bjartasta stjarna stjörnu- þokunnar er LBV1806-20, stjarna sem er 45.000 ljósár frá jörðu? ...að lengsta elding sem skráð hef- ur verið var árið 1956 í Bandaríkj- unum en sú elding náði lárétt yfir 149 kílómetra svæði innan skýs? ...að það spendýr sem lifir í mestri hæð er eyrnastóri músahérinn en hann hefur sést í 6.130 metra hæð í fjalllendi Asíu? ...að eitraðasti sporðdreki í heimi er þykkhala sporðdrekin túnisíski en hann er talinn bera ábyrgð á áttatíu prósentum stungna og níu- tíu prósentum dauðsfalla af völd- um sporðdrekastungna í Afríku? ...að stærsta kalkúnabú í heimi er í eigu Bernard Matthews en búið er í Norður-Pickenham í Bretlandi og skilar einni milljón kalkúna á ári? ...að hæsta hlutfalla hermanna er í Norður-Kóreu en 5,05 prósent eða 2.138.000 Norður-Kóreubúar munu vera í hernum? ...að Tyrkir borðuðu mest brauð allra þjóða árið 2000 eða 199,6 kíló á mann? ...að Rungbuk-hofið á milli Tingri og Shigatse í Tíbet í Kína er 5.100 metrar á hæð og aðeins fjörutíu kílómetra frá Everest-fjalli? ...að stærsta bjórflaska í heimi var afhjúpuð í Sheperd Neame- bruggverksmiðjunni í Bretlandi 27. janúar árið 1993 en hún var 2,54 metra há og 2,17 metrar að þver- máli? ...að heimsins stærsta harmonikka sem hægt er að leika á er 2,53 metrar á hæð, 1,9 metra breið og 85 sentímetra djúp og vegur um tvö hundruð kíló? Þórshöfn: Þorp á Langanesi, nán- ar tiltekið við Lónafjörð sem gengur inn úr Þistilfirði. Elsta húsið í hreppnum: Sauðanes sem er í eigu Þjóðminjasafnsins. Íbúafjöldi: 414, fjölgaði um 44 á síðasta ári. Upphafið: Fyrstu húsin voru reist á Þórshöfn um 1880, það voru vöru- geymsluhús. Landfræðilegir kostir: Hafnarskil- yrði eru hin ákjósanlegustu því hlé er fyrir norðaustanáttinni sem er aðalhafáttin. Stærsti atvinnurekandinn: Hrað- frystistöð Þórshafnar sem meðal annars gerir út tvö stór togskip; Júpíter og Þorstein. Gott að vita: Hafnarkráin heitir Eyrin. Heimilislegt: Hótel Jórvík. VILTU AÐ FYRIRTÆKIÐ ÞITT FÁI MEIRI ATHYGLI? Núna er tilboð á þjónustuauglýsingum » Hafið samband í síma 515 7500 40 Allt baksíða 11.2.2005 16.26 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.