Fréttablaðið - 12.02.2005, Side 47

Fréttablaðið - 12.02.2005, Side 47
LAUGARDAGUR 12. febrúar 2005 Allur hagna›ur af sölu plastpoka merktum Pokasjó›i rennur til uppbyggjandi málefna, en Pokasjó›ur, sem á›ur hét Umhverfissjó›ur verslunarinnar, veitir styrki til umhverfis- menningar-, íflrótta- og mannú›armála. Bæ›i einstaklingar og félagasamtök geta sótt um styrki úr sjó›num. A› Pokasjó›i standa allar helstu verslanir á Íslandi. Styrkir úr Pokasjó›i pokasjodur.is M E R K I U M U P P B Y G G I N G U Frestur til a› sækja um styrk úr Pokasjó›i rennur út 11. mars n.k. Umsóknum skal skila› á www.pokasjodur.is en flar eru allar uppl‡singar um sjó›inn, fyrirkomulag og styrki. fieim sem ekki geta n‡tt sér Neti› er bent á a› umsóknarey›ublö› liggja frammi á skrifstofu sjó›sins í Húsi verslunarinnar, 6. hæ›. UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT 11. MARS Styrkir samkeppnisstöðu Íslands Talsverður hluti þess lands sem heyra mun til nýs Vatnajökulsþjóð- garðs er þegar friðlýstur með ein- hverjum hætti. Þjóðgarðarnir í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum verða hluti hins nýja stóra þjóð- garðs og nokkur önnur svæði eru ýmist friðlönd eða náttúruvætti. Má þar nefna Herðubreiðarlindir og Öskju. Þrátt fyrir það eru taldar ríkar ástæður til að stofna sérstakan þjóðgarð um þetta svæði og helg- ast þær af nokkrum þáttum. Allt skipulag er einfaldara ef land- svæðið er ein heild, þjóðgarðslýs- ingin tryggir sérstaka verndar- stefnu og ímyndarlegt gildi er ótví- rætt. „Það hefur mikið aðdráttarafl að gera þetta svæði að þjóðgarði og snertir ímynd Íslands,“ segir Sig- ríður Anna Þórðardóttir. „Þegar við kynnum okkur fyrir öðrum þjóðum leggjum við áherslu á hreinleika landsins og náttúruna og þetta er í raun hluti af samkeppnisstöðu okk- ar gagnvart öðrum.“ Hún og Hjörleifur Guttormsson leggja svo bæði áherslu á efna- hagslegan þátt málsins og vitna til mats fyrirtækisins Rannsókna og ráðgjafar ferðaþjónustunnar þar sem fram kemur að nýr Vatnajök- ulsþjóðgarður gæti þýtt sjö pró- senta fjölgun ferðamanna til lands- ins og viðbótargjaldeyristekjur upp á fjóra milljarða króna. Það munar jú um minna. Jökulsá á Fjöllum ekki virkjuð Almenn sátt virðist ríkja í sam- félaginu um áform stjórnvalda um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. Náttúruverndarsamtök Íslands og Landvernd hafa lýst sig fylgjandi, ekki síst þar sem þjóðgarðurinn kemur í veg fyrir virkjun Jökulsár á Fjöllum, en lengi hefur verið haft á orði að þar liggi heppilegur virkj- unarkostur ónýttur. Sigríður Anna segir virkjunar- áform í Jökulsá á Fjöllum lögð til hliðar. „Með þessu er virkjunar- áformum algjörlega ýtt til hliðar og ekki verður hreyft við vatna- svæði Jökulsár á Fjöllum og þar með Dettifossi, vatnasvæði Kreppu og Svartár.“ Íbúar þeirra fjölmörgu sveitar- félaga sem liggja að eða innan þjóðgarðs hafa ríka ástæðu til að fagna enda yfirlýst markmið að vinna að framgangi málsins í sam- ráði við þá og aðra hagsmunaaðila. Þá sjá forsvarsmenn fyrirtækja í ferðaþjónustu fram á bjarta tíð. Vatnajökulsþjóðgarður mun ekki einasta njóta athygli sem stærsti þjóðgarður Evrópu og einn sá merkasti. Hann er talinn tækur inn á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna þar sem helstu nátt- úruperlur og sögulegar menjar veraldar er að finna. Um það segir Sigríður Anna: „Það er mat sér- fræðinga að Vatnajökulsþjóðgarð- ur sé bær inn á heimsminjaskrána og ég mun svo sannarlega skoða það mál og vinna að því.“ Og um- hverfisráðherrann efast ekki eitt augnablik um dásemdir landsins. „Náttúran þarna er einstök og það er sama frá hvaða sjónarhóli er horft, þetta er stórkostlegt svæði.“ bjorn@frettabladid.is Um 1.600 þjóðgarðar eru í heiminum Yellowstone er elsti þjóðgarður heims FRÁ YELLOWSTONE Tíu stærstu verndarsvæði í heimi. Þjóðgarðurinn Yellowstone í norðvestanverðum Bandaríkj- unum er elsti þjóðgarður heims, stofnaður 1. mars 1872. Um leið er hann sá þjóðgarður sem er hvað þekktastur í heiminum og leggja milljónir manna leið sína í garðinn á ári hverju. Yellowstone þekur tæpa 9 þúsund ferkílómetra og er lands- lag, gróður og dýralíf afar fjölbreytt. Þar er fjöldi hvera sem margir hverjir gjósa reglulega. Miklar ár liðast um hann og þar eru mörg há fjöll. Skóglendi er einnig mikið. Elgir, grá- birnir og sléttuúlfar eru meðal dýra sem lifa í þjóðgarðinum. Innan Yellowstone eru vegir sem samtals eru um 800 kíló- metra langir og 1.600 kílómetrar af göngustígum. 1. Grænland 970.000 2. Arabíueyðimörkin í Sádi-Arabíu 640.000 3. Þjóðgarðurinn við Kóralrifið mikla í Ástralíu 345.000 4. Kóralvistkerfið á Norðvestur-Hawaii, Bandaríkjunum 340.000 5. Amazon-þjóðgarðurinn í Kólumbíu 320.000 6. Qiang Tang þjóðgarðurinn í Kína 250.000 7. Macquarie-eyja í Ástralíu 160.000 8. Churchill-höfði í Kanada 140.000 9. Verndarsvæðið fyrir villt dýr í norðurhluta Sádi-Arabíu, 100.000 10. Alto Orinoco-Casiquiare lífhvolfið í Venesúela og Bólivíu 84.000 Allar stærðir eru í ferkílómetrum SIGRÍÐUR ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR „Það hefur mikið aðdráttarafl að gera þetta svæði að þjóðgarði og snertir ímynd Íslands.“ Um þjóðgarða Friðlýstar náttúruminjar skiptast í fimm flokka og eru þjóðgarðar efstir á blaði. Aðrir flokkar eru friðlönd, náttúruvætti á landi, friðlýstar lífver- ur, vistkerfi og fleira, og fólkvangar. Landsvæði verður aðeins þjóðgarður ef landslag eða lífríki þess er sérstætt eða á því hvílir söguleg helgi þannig að ástæða sé til að varðveita það með náttúrufari sínu og leyfa al- menningi aðgang að því eftir tiltekn- um reglum. Fjórir þjóðgarðar eru á Íslandi. Þing- vellir voru lýstir þjóðgarður 1930, Skaftafell 1967, Jökulsárgljúfur 1973 og Snæfellsjökull 2001. Nýr Vatnajökulsþjóðgarður verður um 15.400 ferkílómetrar að stærð, jafnstór furstadæminu Kúvæt. 46-47 (30-31) Vatnajökull 11.2.2005 21:52 Page 3

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.