Fréttablaðið - 12.02.2005, Síða 49

Fréttablaðið - 12.02.2005, Síða 49
LAUGARDAGUR 12. febrúar 2005 33 ÚTSÖLUMARKAÐURINN GLÆSIBÆ Opnum í dag skómarkaðinn sem allir hafa beðið eftir Ótrúlegt úrval af vinsælum herra-, dömu- og barnaskóm: Frábær verð eða frá kr. 995,- Mikið úrval af töskum, eitt verð kr. 995,- Opið sem hér segir: Í dag, laugardag frá 10:00-18:00 Sunnudag frá 13:00-17:00 Alla virka daga frá 10:00 –18:00 Komdu og gerðu góð kaup! Skómarkaðurinn Glæsibæ S: 693-0997 ÓMISSANDI HANDBOLTAKAPPINN VIGNIR SVAVARSSON OG KÖRFUBOLTAKONAN HELENA SVERRISDÓTTIR VÖLDU ÞRJÁ ÓMISSANDI HLUTI VIGNIR SVAVARS- SON, landsliðsmaður í handbolta, vinnur í fatabúðinni Dogma á Laugaveginum. Hand- boltinn á einnig hug hans allan og deildin fer að byrja af fullum krafti eftir tæpa tveggja mánaða pásu. Vignir æfir með Haukum. Geislaspilarinn í bílnum er algjör- lega nauðsynlegur aðallega vegna skorts á al- mennilegum útvarpsstöðv- um. Mér finnst fínt að hlusta á góða tónlist á leiðinni á æfingu. Ég hlusta eiginlega á allt milli himins og jarðar, fer bara eftir því hvernig skapi ég er í. Clay Ferry skíðaúlpan mín. Hún er ómissandi þessa dag- ana sökum kulda. Þetta er svona skíða- úlpa í anda níunda áratugarins. Þetta er hrikalega fín úlpa, ég er ánægður með hana. Tvímæla- laust uppáhaldsúlpan mín. Kaffi á morgnana. Mér finnst voða gott að koma við á Prikinu eða á Te og kaffi og fá mér einn bolla. Ég get ekki gert nokkurn skapaðan hlut áður en ég drekk morgunkaffið. Ég nota kaffið til þess að opna daginn, reyndar drekk ég kaffi allan daginn en það er nauðsynlegast á morgnana. HELENA SVERRIS- DÓTTIR æfir körfu- bolta með meistara- flokki Hauka og er ein sú efnilegasta í grein- inni í dag. Hún stundar nám í Flensborg í Hafn- arfirði. Á sunnudaginn er mikilvægur leikur hjá þeim stelpunum í Hauk- um því þá keppa þær á móti Grinda- vík í úrslitaleik bikarkeppninnar. Helena valdi þrjá ómissandi hluti. Körfuboltaskórn- ir. Það eru ekki beinlínis einhverjir sérstakir skór sem ég vil taka fram heldur körfuboltaskór yfir höfuð. Þeir eru náttúrulega nauðsynlegir fyrir körfuboltann og ég á reyndar ansi marga og er frekar mikil skófrík. Nike er uppáhaldsmerkið mitt. Boltinn minn. Körfubolti yfir höfuð er ómissandi fyrir mig og boltinn er hluti af því. Ég er búin að æfa í tólf ár eða síðan ég var fimm ára þannig að körfu- boltinn er stór hluti af lífi mínu. Ég hef alltaf æft með Haukum. Nike buxurnar mínar. Þær eru rosa þægilegar, þykkar og fínar. Ég er eiginlega alltaf í þeim og aðallega heima. Ég sef líka oft í þeim. Þetta eru eigin- lega svona þægilegar heimabuxur sem er nauðsynlegt að eiga. Clay Ferry skíðaúlpa Nike körfuboltaskór Var metró sexúal-maður- inn ekki til? Hetero metro eða Uber – Sexual Nú þurfa þeir sem töldu sig hafa misst af einhverri mestu tísku- byltingu og hugafarsbreytingu meðal karla ekki að gráta það lengur. Metró sexúal-maðurinn, sem tröllreið hér öllu, var senni- lega aldrei til, og ef svo var, er hann um það bil að deyja drottni sínum. Hugtakið metró sexúal var reynd- ar fyrst opinbert í riti fyrir rúmum tíu árum síð- an, en varð síðan tískuorð í k j ö l f a r rannsókn- ar ein- hvers vin- s æ l a s t a tískufröm- u ð u r Bandaríkj- a n n a , M a r i a n S a l z m a n árið 2003. Þar taldi hún að karlmenn yrðu í auknum mæli tengdari sínum tilfinningum, yrðu snyrtilegri, myndu jafnvel fara í handsnyrt- ingu, líkamsrækt og yrði annt um húðina sína. David Beckham varð táknmynd þessa hóps, sem gat verið fullkomlega hreinskilinn um þessar nýju „kvenlegu“ hliðar sínar. En margt vatn hefur runnið til sjávar síðan, og nú hefur Salzm- an snúið bakinu við þessu hug- taki, sem hún telur hafa farið offari, og leitt til þess að markað- urinn taldi í auknum mæli að hægt væri að breyta körlum í hálfgerðar konur. Það hafi ekki verið ætlunin með þessari skil- greiningu. „Karlmenn vilja vera kynþokka- fullir og líta vel út, svo þeir komist í kynni við þá kven- menn sem þeir þrá,“ segir hún og telur að í stað þess að nota o r ð i ð m e t r ó - sexúal sem sé orðið merkingar- laust fyrir- bæri, séu karlmenn í dag, ýmist hetero metro, eða uber sexual. „Þetta eru hugtök sem eru nú notuð yfir leikara eins og George Clooney og Brad Pitt.“ Þess má til gamans geta að Lake Michigan Superior-háskólinn í Bandaríkj- unum hefur einnig lýst því yfir, að metro-sexúal hugtakið sé eitt mest misnotaðasta orðið og of- notaðasta orð dagsins í dag. Þá hefur skólinn einnig úrskurðað það sem merkingarlaust orð. ■ GEORGE CLOONEY Er talinn vera eitt af táknum fyrir nýja kyn- slóð, svokallaðra hetero metro MARIAN SALZMAN Var sú sem gerði metró- sexúal að tískuorði, en hefur nú úrskurðað það merkingarlaust. DAVID BECKHAM Var talinn vera eitt helsta tákn metró sexúal-kynslóð- arinnar, en reyndist vera hetero metro eða uber- sexual. 48-49 (32-33) Fjargjaldur 11.2.2005 19.03 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.