Fréttablaðið - 12.02.2005, Page 63

Fréttablaðið - 12.02.2005, Page 63
46 12. febrúar 2005 LAUGARDAGUR Lárétt 1 slarka, 6 mjólkurafurð, 7 .. húsið, 8 tveir eins, 9 værukær, 10 vann eið, 12 hræðslu, 14 hrós, 15 á fæti, 16 keyr, 17 álpast, 18 skítur. Lóðrétt 1 veiðiaðferð, 2 eins um s, 3 bardagi, 4 stóru steinarnir, 5 söngrödd, 9 fugl, 11 bíða, 13 ílát, 14 tíndi, 17 rykkorn. Lausn 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 Nýja útvarpsstöðin Talstöðin hefur nýlega ruðst í loftið og eins og nafnið gefur til kynna er efni hennar aðallega í formi talaðs máls. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, heimsótti heim- kynni Talstöðvarinnar í gær- morgun en hún er að Skaftahlíð 24, í sama húsi og Fréttablaðið og DV. Ólafur Ragnar spjallaði við Sigurð G. Tómasson í morgun- þætti hans og var hinn hressasti. Forsetinn ræddi meðal annars nýlega Indlandsför sína. Eftir það heilsaði hann upp á starfs- fólk 365 – prentmiðla, sem var að vonum ánægt með þessa óvæntu heimsókn. ■ Forsetinn á Talstöðinni ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Forset- inn rabbaði við Sigurjón M. Egilsson, fréttaritstjóra Fréttablaðsins, og Kára Jónasson ritstjóra eftir að hann ræddi við Sigurð G. Tómasson á nýju Talstöðinni. Benedikt Nikulás Anis Ketilsson, upptökustjóri á Skjá einum, fékk það erfiða hlutverk um síðustu helgi að texta heilan fótboltaleik, viðureign Aston Villa og Arsenal. Forsvarsmenn Skjás eins ákváðu að bregðast við á þennan hátt í eftir að útvarpsréttarnefnd úr- skurðaði að ekki mæti eingöngu notast við enska þuli í útsending- um. Úrskurðurinn kom í kjölfar þess að Þorsteinn Gunnarsson, starfsmaður Sýnar, kærði lýsing- una til útvarpsréttarnefndar. „Við byrjuðum tveir saman, ég og þýðandi, en sáum fljótlega að það væri ekki hægt. Ég ákvað því bara að gera þetta sjálfur,“ segir Benedikt Nikulás. Það reyndi mikið á upptöku- stjórann við að texta leikinn enda knattspyrna oft á tíðum frekar hraður leikur. „Ég hlustaði á ensku þulina, þýddi og setti textann inn. Það tók smá tíma fyrir textann að koma inn enda þurfti ég að pikka textann inn og ýta á tvo takka svo hann birtist á skjánum,“ útskýrir Benedikt og bætir við. „Ég reyndi eins og ég gat að hafa textann laus- an við stafsetningarvillur.“ Upptökustjórinn tók einnig að sér að gerast þulur daginn eftir þeg- ar hann endursagði það sem ensku þulirnir sögðu á meðan leiknum stóð. „Þá var ég með íslenska endur- sögn, svona eins og í Eurovision. Kom inn á fimm til tíu mínútna fresti. Þegar mörkin komu leyfði ég ensku þulunum að klára og endur- sagði síðan það sem þeir sögðu.“ Að sögn Snorra Más Skúlason- ar, sem hefur haft veg og vanda að enska boltanum á Skjá einum, verður brugðist við kærunni með því að láta einn íslenskan þul lýsa leikjum helgarinnar, í stað tveggja áður. „Við mótmæltum niðurstöðunni um síðustu helgi en nú munum við bregðast við,“ seg- ir Snorri sem mun lýsa leikjunum ásamt Kristni Kjærnested, Snorra Sturlusyni, Ríkharði Daðasyni, Guðmundi Benediktssyni og Þór- halli Dan Jóhannssyni. kristjan@frettabladid.is BENEDIKT UPPTÖKUSTJÓRI Upptökustjórinn textaði heilan fótboltaleik um síðustu helgi. Hann þarf þess þó ekki nú um helgina þar sem einn þulur verður um hvern leik. BENEDIKT NIKULÁS ANIS KETILSSON: ÁTTI ERFIÐA HELGI Í ENSKA BOLTANUM Textaði heilan fótboltaleik Stuttir pelsar við langerma boli eða peysur, þröngarbuxur og töff stígvél. Úff, já. Ekkert smá flott. Það gæti reynst erfitt að finna eitt stykki en það er um að gera að leita í secondhand búðum eða jafnvel að verða sér úti um skinn og bara sauma eitt stykki pels. Bartar. Smekklegir og fallegirbartar geta verið einstök prýði fyrir þann karlmann sem ber þá. Að sjálfsögðu er ekki átt við ýkta barta í stíl við lélega Presley-eftirhermu. Gaz Coombes í hljómsveitinni Supergrass er til dæmis með einstak- lega vel heppnaða barta sem gera hann að enn meiri töffara en hann er fyrir. Munstraðar skyrtur. Ekki er slæmt ef munstrið ereilítið gamaldags og einnig er blómamunstrið alltaf vinsælt. Mjög flott er að vera í þröngri V-háls- málspeysu yfir eða sætri jakkapeysu. Skyrtan má einnig endilega vera í skærum litum til þess að lífga upp á hversdaginn. Flísefni. Æi já, þetta er hrikalega hlýtt og gott efni ogallt það. Auðvitað ættu allir að eiga eitt stykki flís- peysu. Það verður hins vegar aldrei samþykkt að flís- efni sé töff. Sama hversu fólk reynir að gera flotta flís- peysu þá verður hún alltaf hálf lummó. Því miður. Sítt að aftan. Það kom einhverbylgja nýlega í hártískunni og ein- hvers konar afbrigði af „sítt að aftan“- tískunni urðu allt í einu kúl aftur. Bylgj- an fór þó fljótlega yfir og er horfin á braut. Þetta er ekkert kúl lengur, hættum að reyna að kalla aftur stemninguna sem var uppi á níunda áratugn- um. Leðurbuxur. Það eru hreinar línur að leðurbuxureru ekki kúl. Hafa leðurbuxur einhvern tíma verið kúl? Ástæðan fyrir hallærisleikanum er sennilega sú að það er sama hversu þröngar leðurbuxurnar eru þegar viðkomandi fer í þær, alltaf skulu þær víkka, sem skilar einstaklega ljótum hangandi rassi. INNI ÚTI ...fær Burðarás fyrir að efla Há- skólasjóð Eimskipafélag Íslands svo um munar, til dæmis með byggingu Háskólatorgs og stuðn- ingi við doktorsnema. HRÓSIÐ » BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ Á MIÐVIKUDÖGUM Lárétt: 1drabba, 6ost, 7jl, 8rr, 9löt, 10sór, 12ugg, 14lof, 15 il, 16ak,17 ana, 18saur. Lóðrétt: 1dorg, 2rsr, 3at, 4björgin, 5alt, 9lóu, 11doka, 13glas, 14las, 17ar. 62-63 (46-47) aftasta 11.2.2005 21.08 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.