Fréttablaðið - 28.02.2005, Síða 44

Fréttablaðið - 28.02.2005, Síða 44
Fasteignasala: Eignakaup. Fermetrar: 181,7. Verð: 36,9 milljónir. Lýsing: Flísalagt anddyri, herbergisgangur með þrem rúmgóðum her- bergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Gengið úr anddyri niður tröppur í eldhús, stofu og borðstofu. Innan- gengt er í bílskúr úr íbúð. Þriggja metra loft- hæð er í eldhúsi og stofu, útgangur út á suð- urverönd með útsýni yfir gólfvöllinn. Stórir gluggar. Herbergin eru teppalögð en önnur rými flísalögð. Baðherbergi er rúmgott með baðkari og sturtu, flísalagt í hólf og gólf. Inn af hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi. Allar hurðir eru úr birki sem og falleg birkiinnrétting í eldhúsi frá HTH. Arinn í stofu. Hiti í gólfi í anddyri, baðherbergi og þvottahúsi. Annað: Virkilega falleg eign í námunda við náttúruna. Íbúðin er á neðri hæð og bílskúr fylgir með. 113 REYKJAVÍK: Í námunda við náttúruna Ólafsgeisli: Neðri sérhæð ásamt bílskúr. Hundrað og ein umsókn barst um þær sextán lóðir sem til stendur að úthluta við Vals- heiði í Hveragerði. Hveragerði er vinsæll staður til að búa á og stöðugt fjölgar íbúum þar og svo þeim sem þar vilja byggja. Glöggt dæmi þess sást á dögunum þegar sextán lóðir voru auglýstar í bænum og hundrað og ein umsókn barst. Flestar komu þær frá fólki fyrir austan fjall og af höfuðborgarsvæðinu en einnig úr öðrum landshlutum. Lóðirnar við Valsheiði eiga að verða bygg- ingahæfar í júní í sumar og til stendur að úthluta þeim á næsta fundi bæjarráðs, þann 3. mars. Á síðasta ári fjölgaði Hver- gerðingum um 135 manns en mið- að við fjölda íbúða sem þar eru í smíðum og þær framkvæmdir sem áætlaðar eru á næstunni má gera ráð fyrir að íbúum fjölgi um 600 manns á næstu tveimur árum. Íbúar í Hveragerði í dag eru rétt rúmlega tvö þúsund. Íbúum fjölgar ört í Hveragerði Hveragerði er blómabærinn. 3JA HERBERGJA Þorláksgeisli - Laus Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í litlu fjöleignarhús ásamt stæði í bílgeymslu. Sér inngangur er í íbúðina og er hún til afhendingar við undirritun kaupsamnings tilbúin til innréttingar. Verð 17,9 millj. 3JA - 4RA HERBERGJA Fellsmúli - Rúmgóð Rúmgóð og falleg 105 m2, 4ra herb. íbúð á 1. hæð (ein upp) í góðu fjöleignarhúsi. Rúmgóð stofa með góðum svölum útaf. Nýlegt parket og flísar á stofu, holi og eldhúsi. þrjú svefnherbergi. Sameiginleg íbúð sem stendur undir húsgjöldum að mestu. Verð 17,5 millj. ATVINNUHÚSNÆðI Síðumúli - Til leigu Í mjög áberandi húsi, við Síðumúla, eru til leigu 250 - 500 m2, á 2 og 3 hæð. . Húsnæði er til afhendingar nú þegar, tilbúið til innréttingar eða lengra komið. Nánari upplýsingar gefur Pálmi. ATVINNUHÚSNÆðI Garðatorg Mjög gott 137 m2 verslunar og skrifstofuhúsnæði við Garðatorgi í Garðabæ. Húsnæðið er í leigu og er með 5 ára leigusamning. Kjörið fyrir fjárfesta. Mjög vaxandi verslunarmiðstöð. Verð 16,2 millj. Nánari uppl. gefur Pálmi. UPPSELDIR - VANTAR Vegna gríðarlega mikillar sölu á SÉRBÝLI erum við uppseldir í bili. Ef þú ert í söluhugleiðingum eða ert með óselda eign hafðu þá samband. Virk kaupenda- skrá og persónuleg þjón- usta. Það eru margir að bíða eftir réttu eigninni. Nú er lag, hafðu samband. 2JA HERBERGJA Álfkonuhvarf - Lyfta Vorum að fá í sölu 128,5 m2, 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í litlu fjöleignarhúsi. Lyfta er í húsinu og stæði í bílgeymslu fylgir. Til afhendingar í apríl n.k. fullbúin án gólfefna. Áhv. 9,7 millj. Verð 25,2 millj. 2JA HERBERGJA Espigerði - Laus fljótlega Í þessu vinsæla húsi erum við með í sölu rúmgóða 97 m2, 3ja-4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð með góðum suður og vestur svölum. Fallegt baðherbergi. Búr og þvottahús í íbúð. Íbúðin er laus í mars/apríl n.k. Ekki missa af þessari. Verð 18,9 millj. 2JA HERBERGJA 2ja herbergja Spóahólar Snyrtileg og vel skipulögð 2ja herb. íbúð í litlu fjöleignahúsi á rólegum stað. Húsið var tekið í gegn fyrir rúmu ári. Parket og flísar á gólfum. Verð 11,2 millj. 2JA HERBERGJA Vesturberg Vorum að fá í sölu 64 m2 2ja herbergja íbúð á 5 hæð í fjöleignarhúsi. Góðar vestur svalir með útsýni yfir borgina. Verð 10,6 millj. SAMTENGD SÖLUSKRÁ FIMM FASTEIGNASALA • EIN SKRÁNING • MARGFALDUR ÁRANGUR • HUS.IS KAUPENDASKRÁ OKKAR ER SVO VIRK AÐ ALLT SELST STRAX. ER ÞÍN EIGN Á RÉTTUM STAÐ? 3-4 herbergja í Listhúsinu í Laugardal Falleg, rúmgóð og einstaklega björt 3ja-4ra herbergja íbúð (110 fm) á tveimur hæðum með sér inngangi í Listhúsinu í Laugardal. Á neðri hæðinni eru forstofa, hol, baðherbergi, svefnherbergi og eldhús, Á efri hæðinni er mjög rúmgóð stofa ásamt sólstofu (yfirbyggðar svalir) sem gefur mikla möguleika t.d. mætti útbúa svefnherbergi eða stúka af vinnurými sé þörf fyrir það. Nýtt parket er á holi, svefnherbergi, eldhúsi og allri efri hæðinni. Mikil lofthæð í eldhúsi og á efri hæð. Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu sem er með flísum í framhaldi er hol. Svefnherbergið er með skápum. Baðherbergið er með flísum á gólfi og uppá miðja veggi, hvít innrétting og sturta, lagt er fyrir þvottavél og þurrkara á baðinu. Eldhúsið er með nýrri innréttingu og nýjum tækjum, borðkrókur (aðstaða) út við glugga. Vandaður og sérhannaður stigi er milli hæða. Á efri hæðinni er mjög rúmgóð stofa með sólstofu. Vönduð, glæsileg eign þar sem ekki þarf að hugsa um garðin. Húsið stendur mjög miðsvæðis í Reykjavík og stutt er í alla þjónustu. Í Laugardal er sundlaug, íþróttamiðstöðvar, húsdýragarðurinn og grasagarður, íshokkí o.fl. ofl. sem auðvelt er að sækja. Húsið sjálft er í góðu ástandi og aðkoma að því er mjög góð. Verð 25,9 millj.Borðstofa Listhús í Laugardal er eitt glæsilegasta hús borgarinnar Stofa og sólskáli Stofa á efri hæð Eign vikunnar - Þessi selst fljótt VANTAR EIGNIR Á SKRÁ - MIKIL SALA - SKRÁÐ EIGN ER SELD EIGN Eignir í skiptum: vantar sérbýli á einni hæð í skiptum fyrir tvíbýlis- hús í Seljahverfi og 3ja herbergja íbúð í skiptum fyrir lítið raðhús í Garðabæ. SKOÐIÐ NÝJA OG GLÆSILEGA HEIMASÍÐU OKKAR www.fasteignasala.is 26-27 fast lesið 26.2.2005 17:32 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.