Fréttablaðið - 28.02.2005, Qupperneq 65
24 28. febrúar 2005 MÁNUDAGUR
Ung íslensk
rokkhljómsveit
komst á samning
hjá stóru fyrir-
tæki (sem hafði
sveitir á borð við
Led Zeppelin inn-
anborðs) í hinni
stóru Ameríku
fyrir þó nokkrum
árum síðan.
Kapparnir ungu sáu því fram á
að geta flegið feitan gölt ef allt
gengi eftir og var það sumar eitt að
sveitin var kvödd í tónleikaferðalag
stuttu eftir útkomu fyrstu plötunn-
ar. Hljómsveitin átti að leika á 17
tónleikum á 23 dögum og bjuggu
meðlimir hennar sig undir mikið
streð og álag.
Einn úr hljómsveitinni átti góðan
kunningja sem vann á þekktri ís-
lenskri útvarpsstöð. Var sá afar
spenntur yfir afrekum hljómsveit-
arinnar og reyndi hvað hann gat til
að fylgjast með hverju skrefi
hljómsveitarinnar.
Þegar tónleikaferðin var hálfn-
uð ákvað útvarpsmaðurinn að
grafa upp símanúmer á hóteli sem
hljómsveitin átti að gista á og
hringja í félaga sinn og taka hann
í viðtal. Klukkan á Íslandi var í
kringum áttaleytið að kvöldi og
hljómsveitin var stödd í Los Ang-
eles, þar sem tónleikar á hinum
fræga klúbbi Whiskey a Go-Go
áttu sér stað kvöldið áður. Síminn
hringdi og hringdi og hringdi og
var okkar maður við það að leggja
á þegar rám rödd heyrðist á hin-
um enda línunnar. „Halló?“ sagði
röddin. „Já blessaður maður.
Þetta er Denni hérna í útvarpinu.
Hvað segið þið gott, hvernig gekk
að spila í gær?“ spurði okkar mað-
ur, himinlifandi að hafa náð tali af
hljómsveitinni. „Hvað meinarðu
maður?“ svaraði röddin og
hóstaði. „Áttuð þið ekki að vera
spila í gær í LA?“ spurði útvarps-
maðurinn. „Jú, en við erum búnir
að vera blindfullir í viku að eltast
við gellur og slepptum því bara að
spila á öllum tónleikunum,“ svar-
aði rokkstjarnan þá. „Erum við
nokkuð í beinni?“ spurði kappinn
svo. „Já,“ svaraði útvarpsmaður-
inn. „Djöfullinn!“ heyrðist þá í
rokkaranum. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
SMÁRI JÓSEPSSON SEGIR FRÁ ÍSLENSKRI ROKKSVEIT SEM KOMST Í HANN KRAPPAN
Erum við nokkuð í beinni?
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
FISKBÚÐIN HAFBERG
Gnoðarvogi 44, sími 588 8686
Glæný
línuýsa
hrogn og lifur
Miðasala í síma 568 8000
www.HOUDINI.is
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
Nú til dags: „Furður
veraldar“ Hver setti
stytturnar á Páskaeyju?
Hvernig voru
pýramídarnir byggðir?
Hvernig voru steinblokk-
irnar í Stonehenge gerðar?
Og hvað í guðs nafni geymir
kvenfólk í veskinu sínu?
Örugglega
tæki til
innbrota.
Heyrðu Palli...
Hvernig verða aug-
un á mér ef ég
nota linsur?
Eins og afgangar í
piparkvörn!
Ég var líka
hræddur
um það.
Akörn eru svo
komin úr tísku!
Hannes,
Þú...
Þú...
Þú...
Solla,
mundu hvað
ég sagði við
þig...
...ef þú getur
ekki sagt eitthvað
fallegt slepptu
því þá að tala.
Ókei-ei..ei.
Það virðist vera minna
hor í nefinu á þér.
64-65 (24-25) Skrípó 27.2.2005 18:23 Page 2