Tíminn - 16.02.1975, Blaðsíða 12

Tíminn - 16.02.1975, Blaðsíða 12
12 TÍMINN Sunnudagur 16. febrúar 1975 Manstu gamla daga? Manstu gamla daga? Manstu gamla doga? Manstu gamla daga? Manstu gamla Markvörðurinn er verkstjóri varnarinnar... Þa6 er ekki gott, aö maöurinn sé einn. Kona Hermanns er Unnur Jónasdóttir og þessi mynd af þeim hjónum er tekin fyrir tæpum tuttugu árum, á Festival i Bergen, er þau fóru utan meö Karlakór Reykjavik- ur. BH ræðlr við Hermann Hermannsson, um markvörzlu og ýmsa, sem sóttu að markinu í gamla daga Það var árið 1932, að Her- mann Hermannsson lagði undir sig markið hjá Val, — og enda þótt hann hafi eftirlátið það öðrum síðan, er tæplega hægt að segja, að Hermann hafi eiginlega farið úr markinu. Sjálf- sagt yfirgefur hann það aldrei að fullu. Hann er líka búinn að vera svo staðfastur í markinu, að manni finnst hann vera orðinn hálfgerður sam- nefnari markvarða. Þeim, sem komnir eru á miðjan aldur, gleymist hann seint í gulu peysunni, með „sixpensarann" eilítið skáhallan út í vangann og fram á ennið. Hvernig hann stóð — og hvernig hann kastaði sér eins og tigrisdýr á knöttinn. Það voru viðbrögð, sem mönn- um fannsttil um. Hann var ógn og skelfing allra fram- línumanna á þeim árum, meðan leikurinn stóð. Þess á milli boðinn og búinn til að gera hverjum greiða, sem á þurfti að halda, og sparaði hvorki tíma né fyrirhöfn. Hann varð svo sem sextugur á síðastliðnu hausti, en ekki lét hann sig vanta í markið i sumar, þegar borgarstarfsmenn kepptu við borgarstjórnina i bráðskemmtilegum leik. Hermann hló mikiö, þessum alúölega græskulausa hlátri, sem honum er svo eiginlegur, þegar ég innti hann eftir peysunum. — Konan hefur ekkert gaman af þvi, hvernig ég geng frá peysun- um mfnum. Alltaf gatslitnar á olnboganum og maganum. Af þvi aö kasta sér maöur! Og svo var ég fyrst I svartri peysu i Vals- markinu og ailtaf I svartri i landsliöinu. Þessi gula kom frá Skotlandi. Robert Jack vildi ekki hafa mig f svörtu. Sagöi, aö allir skozkir markmenn væru I gulu. Stældu Arsenal eins og þeir gátu Hermann kom mér á óvart, þegar hann sagði mér, eftir hverjum Valur heföi tekið upp búninginn sinn. — Það var eftir Arsenal. Það hef- ur alltaf verið gott á milli Vals og Arsenal, og við stældum þá. Þeir voru á toppnum 1930-’34, og við lærðum leikaðferðir þeirra, og tókum búninginn upp eftir þeim, og okkur þótti ákaflega vænt um, þegar þeir uröu Eng- landsmeistarar... En viö skulum byrja á byrjun- inni. Hermann hefur nefnilega ekki alltaf verið Valsari. — Nei, ég var Framari fyrst, þegar ég átti heima á Bergstaöa- stignum. Við gegnum strákarnir yfir i Val 1926, okkur þótti gömlu Noregsfarar 1935. Efsta rööin: Gisli Kærnested ( + ), óskar Jónsson, Björgúlfur Baldursson, Reidar Sörensen, þjálfari, Hóimgeir Jónsson, Bjarni Guöbjörnsson og Siguröur Ólafsson. Miörööin: Ólafur Gamali- elsson ( + ), Guömundur V. Sigurösson, Jóhannes Bergsteinsson, Egill Kristhjörnsson og Eiiert Slöivason. Fremsta rööin: Grímur Jónsson, Hermann Hermannsson og Frimann Helgason ( + ). Á myndina vantar Hrólf Benediktsson. Þessi liö kepptu hér I Reykjavlk áriö 1938, sögulegan leik, sem endaöi meö jafntefli. Þeir I dökku skyrt- unum eru Þjóöverjar, sem skipuöu úrvalsliö, en þeir I hvltu peysunum eru Vaisarar, og þá skulum viö telja upp. t aftari rööinni eru: Lolli, Murdoch, Jóhannes Bergsteinsson, Egill Kristbjörnsson, Helgi Schiöth (skoraöi markiö), Hrólfur Benediktsson, Grimar Jónsson, Guöjón Einarsson, dómari. t fremri rööinni eru: Magnús Bergsteinsson, Hermann Hermannsson, Frimann Helgason og GIsli Kærnested Manstu gamla daga? Manstu gamla daga? Manstu gamla daga? Manstu gamla daga? Manstu gamla

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.