Fréttablaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 17
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Banki allra landsmanna410 4000 | landsbanki.is
4,15%Íbúðalán Kynntu þér kostina við íbúðalán Landsbankans. Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina sem hentar þér best. Hafðu samband í síma 410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
67
26
12
/2
00
4
Góðan dag!
Í dag er mánudagur 11. apríl,
101. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 6.10 13.29 20.50
AKUREYRI 7.46 13.22 19.00
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Fasteignasala Hóll er með til sölu
glæsilegt og virðulegt 196,2 fermetra
þriggja hæða timburhús frá árinu
1897 á Grjótagötu 5 í miðbæ Reykja-
víkur.
Hér er um að ræða vel byggt hús sem er
mikið endurnýjað af fagmanni og áhuga-
manni um viðhald og verndun gamalla húsa.
Allir veggir utanhúss eru panelklæddir,
gluggar endurnýjaðir sem og allt gler. Að
innan er húsið allt mjög vandað og hefur
upprunalegri ásjónu hússins verið viðhaldið
að mestu leyti jafnt að innan sem utan.
Gengið er inn í aðalíbúðina frá miðhæð-
inni við austurgafl hússins. Komið er inn í
litla forstofu þaðan sem opið er inn í eldhús
á hægri hönd og borðstofu til vinstri. Úr
eldhúsi er síðan gengið inn í dagstofu og
áfram þaðan inn í viðbygginguna sem inni-
heldur rúmgott baðherbergi og vinnuher-
bergi. Til vinstri við dagstofu er gengið inn
í aðalstofuna.
Úr dagstofu er einnig gengið upp í risið.
Þar er góður pallur og gengið frá honum
inn í þrjú góð svefnherbergi. Hjónaher-
bergið er rúmgott og er útgengt úr því út á
stórar og sólríkar svalir sem staðsettar eru
ofan á viðbyggingu vestan við húsið.
Í kjallara hússins er rúmgóð tveggja
herbergja séríbúð sem í dag er leigð út. Þar
er einnig geymsla og stórt þvottahús. Hægt
er að nota geymsluna sem aukasvefnher-
bergi. Gengið er inn í íbúðina um sérinn-
gang við austurgafl. Einnig er stigi er úr
kjallara upp á efri hæð sem liggur upp í
dagstofuna.
Byggingaréttur fyrir um það bil 100 fer-
metra viðbyggingu, 35 fermetra grunnflöt,
við suðurhlið hússins. Ásett verð er 54
milljónir.
Virðulegt hús í hjarta Reykjavíkur
Húsið er frá árinu 1897 og afskaplega glæsilegt í alla staði.
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
tilbod@frettabladid.is
Smiðjan á Bíldudal er ein
þeirra húsa sem njóta þeirra
styrkja sem Húsafriðunarnefnd
ríkisins hefur nýlega veitt til
endurbóta á friðuðum og varð-
veisluverðum húsum. Í endur-
bætur á Smiðjunni verður varið
einni milljón króna. Nokkrar
kirkjur á Vestfjörðum fengu
einnig styrk, til dæmis Bíldu-
dalskirkja sem fékk 700 þús-
und.
Fimm lóðir eru lausar fyrir iðn-
aðarhúsnæði á iðnarsvæðinu Ýí
Hellnahrauni í Hafnarfirði,
sunnan Reykjanesbrautar. Þær
eru frá 2.700 fermetrum til
8.500 fermetra og liggja við
Steinhellu, Hringhellu og Ís-
hellu.
Hafnarfjarðarbær og veitufyrir-
tæki hyggjast hefja samstarf
um framkvæmdir í Kinnahverfi
með endurnýjun gatna og
veitukerfi. Verkfræðistofan VSB
hefur umsjón með verkinu og
stefnt er á að verkinu verði
skipt niður á næstu 3-5 ár.
LIGGUR Í LOFTINU
í fasteignum
FASTEIGNASÖLUR
101 Reykjavík 8-9
Ás 6-7
Ásbyrgi 10
Bifröst 12
Draumahús 23-26
Eignakaup 36
Eignalistinn 15
Eignastýring 37
Fasteignamark. 11
Fasteignamiðlun 13
Fasteignam. Grafarv. 13
Fasteignam. Hafnarf. 19
Fasteignast. Suðurn. 21
Hof 21
Hraunhamar 16-17
Húsalind 26
Húseign 33
Húsið-Smárinn4-5 og 41
Höfði 27
Lyngvík 28
Miðborg 14
Neteign 31
Nethús 40
Nýtt fasteignasala 20
Valhöll 34-35
X-hús 30
Þingholt 18
KK skoðar hús í New York bls. 2
Sumarið á sýningu bls. 3