Fréttablaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 67
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1770 George Canning,
enskur stjórnmálamaður.
1772 Manuel Quintana,
ljóðskáld.
1857 John Davidson, ljóð-
og leikritaskáld.
1869 Gustav Vigeland,
högglistamaður.
1930 Anton LaVey, stofn-
andi Kirkju Satans.
1932 Joel Gray, leikari,
söngvari og dansari.
1944 John Milius, leik-
stjóri og rithöfundur.
1945 Robert Fripp, gítar-
snillingur og höfuðpaur
King Crimson.
1953 Andrew Wiles, stærðfræðingur.
1953 Guy Verhofstadt,
forsætisráðherra Belgíu.
1958 Stuart Adamson,
söngvari og gítarleikari Big
Country.
1959 Richie Sambora, gítarleikari Bon
Jovi.
1966 Lisa Stansfield,
söngkona.
1971 Oliver Riedel, bassa-
leikari Rammstein.
1987 Joss Stone, söng-
kona.
MÁNUDAGUR 11. apríl 2005 19
Fyrirlestraröð
á Aldarafmæli
Í ár er öld liðin frá því að Albert
Einstein birti þrjár greinar um nú-
tíma eðlisfræði sem skipt hafa
sköpum í þróun vísinda. Þekktust er
greinin þar sem hann leggur grund-
völlinn að afstæðiskenningunni sem
er oft kennd við hann. UNESCO hef-
ur að þessu tilefni ákveðið að árið
2005 skuli helgað eðlisfræðinni.
Um helgina fór fram fyrsti fyrir-
lesturinn í fyrirlestraröð Eðlis-
fræðifélags Íslands og Raunvísinda-
deildar Háskóla Íslands sem haldin
er af þessu tilefni. Fyrirlestrarnir
verða í sal eitt í Háskólabíói klukkan
tvö á laugardögum í apríl og hefja
svo göngu sína aftur í haust. Sá
fyrsti bar yfirskriftina „Gamma-
blossar, alheimurinn og við.“ ■
Glímusambandið fertugt
Í dag er Glímusamband Íslands
40 ára, en það var stofnað 11. apr-
íl árið 1965.
Í tilefni afmælisins verður
sett upp sýning á minjasafni
Glímusambandsins í anddyri
Íþróttamiðstöðvarinnar þar sem
til sýnis verða merkir gripir
glímusögunnar sem velunnarar
sambandsins hafa afhent minja-
safninu. Glímusambandið er sagt
hafa mikla sérstöðu meðal sér-
sambanda Íþróttasambands Ís-
lands þar sem það vinnur að mál-
efnum einu íslensku íþróttarinn-
ar og hafi því hvorki fyrirmyndir
né fyrirmæli erlendis frá. „Hlut-
verk stjórnar GLÍ er því miklu
meira en að halda utan um sér-
samband um íþrótt því hlutverk
hennar er einnig að ávaxta merk-
an hluta af menningararfi Íslend-
inga,“ segir í tilkynningu sam-
bandsins.
Núna um helgina var sérstök
afmælisdagskrá, meðal annars
kaffiboð í fundarsal ÍSÍ í Laugar-
dal síðdegis í gær þar sem flutt
var stutt ágrip af sögu Glímu-
sambandsins og glímumenn voru
heiðraðir. Þá fór fram á laugar-
daginn Sveitaglíma Íslands í
íþróttahúsi Hagaskóla í Reykja-
vík. Þá var viðstaddur hátíðar-
höldin um helgina Lars Magnar
Enoksen, en hann er aðalmaður-
inn á bak við stofnun Glímusam-
bands Svíþjóðar og munu eiga
sér stað viðræður við hann af
hálfu stjórnar Glímusambands-
ins um frekari landvinninga er-
lendis. ■
SVEITAGLÍMA Í REYKJAVÍK Haldið var upp á fertugsafmæli Glímusambands Íslands
um helgina, en á laugardag fór fram Sveitaglíma Íslands í íþróttahúsi Hagaskóla í Vestur-
bæ Reykjavíkur.