Fréttablaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 64
Fasteignavefur Vísis
Vista leitarskilyrði
Mjög þægilegt er fyrir þá sem leita oft að
eignum eftir sömu leitarskilyrðum að vista
leitarskilyrðin. Hægt er að vista mörg leitar-
skilyrði undir mismunandi nöfnum og er
það afar einfalt og þægilegt fyrir þá sem
kjósa að nota fasteignaleit Vísis.
Í upphafi þarf að fara í nýskráningu vinstra
megin á síðunni og eftir það er nóg að inn-
skrá sig til að fá upp vistuð leitarskilyrði.
Eftirskrift
Til að leita eftir póstnúmeri er best að
smella á nafn bæjarfélagsins í leitarvélinni
og þá koma öll póstnúmer þess bæjarfélags
upp.
Músíkfyllerí
Ég spurði mömmu hvað henni
fyndist um pistlana mína og hún
svaraði eins og allar mömmur
hefðu svarað að þeir væru góðir en
sá síðasti svolítið væminn, alveg
týpískur Íslendingur í útlöndum.
Ég ætla að leyfa mér smá
væmni aftur og fá að segja að þó að
Bubbi sé góður heima þá er hann
helmingi betri hér í Köben. Ég er
semsagt á síðkvöldum gjarnan á
smá íslensku músíkfylleríi, oftast
byrja ég á Þursaflokknum sem er
besta band sem Ísland hefur alið,
svo byrjar kóngurinn á Ísbjarnar-
blúsinum og í beinu framhaldi
koma hrognin. Þá er komið að Jóni
pönkara í fylgd Utangarðsmanna,
cirka þarna fær maður nettan úln-
liðskrampa af lúftgítarspilinu og
róar sig aðeins niður með Kerfis-
bundinni þrá þeirra sem mynda
mína uppáhaldshljómsveit, Maus.
Eftir að hafa baðað sig í orðsnilld
Bigga þá er spretturinn tekinn á ný
með Purrkinum og Melarokkið
endurlifað með innlifun. Svo er
tekinn allsvakalegur krókódíla-
maður með meistara Megasi og
eftir það beint í Þeysara Rúdolf.
Svo róa ég þetta aðeins með Hyper
ballöðu Bjarkar sem er svo ótrú-
legur listamaður að mann skortir
orð. Það eina sem er neikvætt við
þetta músíkfyllerí er heimþráin
sem fylgir. Ég sé það núna hversu
mikil forréttindi það eru að hafa
aðgang að öllum þessum sundlaug-
um. Hér eru sundlaugarnar innan-
húss og hávaðinn alveg ærandi.
Svo fæ ég mjög reglulega mikla
löngun í heitt slátur sem ég var
vanur að kaupa stundum í Mela-
búðinni eftir sundið ef sund skyldi
kalla. Potturinn og gufan var málið
fyrir mig en ef ég finn einhver-
staðar vatnsheldan mp3 spilara þá
gæti ég synt endalaust, með ís-
lenska músíkveislu í eyrunum og
ímyndað mér að vera í Vesturbæj-
arlauginni. Ég held að ég gæti ekki
toppað það að vera fljótandi í vatn-
inu horfa á norðurljósin flökta og
hlusta á Sigurrós.
Annars hjálpar internetið mér
mikið þegar kemur að því að vilja
fylgjast með málum heima, fæ
samt alltaf svona netta neikvæðni
beint í æð þegar ég sé byrjunina á
fréttatíma ríkissjónvarpsins. Ég á
við þennan svarta dauðahnött sem
birtist eins og jörðin eftir kjarn-
orkustyrjöld. Er ekki nógu margt
neikvætt í sjálfum fréttatímanum?
Ég sting upp á því að fyrir fréttir
sé sýnt eitthvað fyndið og
skemmtilegt, til dæmis gamalt
vídeó með Brimkló eða atriði með
Kaffibrúsaköllunum svona til að
byggja upp mótvægi við stríðs-
fréttir, limlestingar og náttúru-
hamfarir.
Nú fæ ég öruglega meil frá
mömmu: „Djöfull ertu orðinn eitt-
hvað sentimental drengur.“ En eins
og hún sagði líka í meilnum til mín
þá gerir fjarlægðin fjöllin blá og
mennina mikla.
Kveðja, Frikki
HÚSIN Í BÆNUM
FRIÐRIK WEISSHAPPEL
SPURNING
VIKUNNAR
á fasteignavef Visis
Ætlar þú að
kaupa garðþjón-
ustu í sumar?
65,48%
34,52%
Nei
Já
SPURNING SÍÐUSTU VIKU:
Ætlar þú að kaupa sumarhús á
næstu árum?
SELDAR EIGNIR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
0
50
100
150
200
250
300
18/2-24/2
260
25/2-3/3
225
4/3-10/3
239
FJÖLDI
11/3-17/3
218
18/3-24/3
239
25/3-31/3
124