Fréttablaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 74
Vegur leikarans unga Gael García
Bernal hefur vaxið hratt á undan-
förnum árum en ævintýrið hófst
með hinni mögnuðu Amores perros
sem sló óvænt í gegn árið 2000.
Bernal lék einnig í El Crimen del
padre Amaro árið 2002 og tvær ný-
legar myndir með honum í aðalhlut-
verkum, Diarios de motocicleta og
La Mala education, eftir Pedro Al-
módovar, ber hátt á IIFF 2005 kvik-
myndahátíðinni sem opnaði í
Reykjavík á fimmtudaginn.
Bernal leikur Che Guevara með
miklum tilþrifum í Mótorhjóladag-
bókunum en þetta er í annað sinn
sem han túlkar byltingarleiðtogann.
„Fyrra skiptið var í mjög slæmri
sjónvarpsmynd en það hjálpaði mér
að borga húsaleiguna,“ segir Bernal
og hlær. Hann lagði öllu meiri metn-
að í Ernesto Guevara fyrir síðari
atrenuna.
Bernal og Che
„Það er auðvitað erfitt að nálgast
risavaxna persónu hans en ég
treysti bara á það að flókinn per-
sónuleikinn myndi skína í gegn og
gekk út frá honum sem ungum 23
ára gömlum Suður-Ameríkana sem
ferðast um meginlandið sitt og leit-
ar róta sinna. Það má segja að þessi
lýsing hafi átt jafn vel við sjálfan
mig og Ernesto á þessum tíma-
punkti. Annars kastaði ég mér bara
út í það upplýsingaflóð sem er til
um tíðarandann á æskuárum Ches;
stjórnmálaskoðanir hans, hverja
hann umgekkst, hvaða bækur hann
las, hvaða tónlist hann hlustaði á og
hvaða bíómyndir hann sá. Þetta
skiptir allt máli og þegar þetta ligg-
ur allt ljóst fyrir getur maður leikið
sér með það. Þetta er svolítið eins
og hjá Picasso, þar sem maður verð-
ur að kunna reglurnar áður en mað-
ur brýtur þær.“
Undraheimur Almódovars
Bernal segir að það hafi verið allt
öðruvísi að vinna með Almódovar
að gerð La Mala education en Walt-
er Salles að vegamyndinni um Che.
„Almódovar er sérstakur þar sem
hann segir sögur sem eru mjög
ótrúlegar um leið og þær eru mjög
raunsæjar. Hann ætlar sér samt alls
ekki að endurspegla raunveruleik-
ann heldur skapar hann heim sem
er keimlíkur okkar heimi en persón-
urnar í þessum heimi hans eru ótrú-
lega melódramatískar og svo leikur
hann sér með þær þannig að þetta
verður mjög, mjög alvarlegur
farsi.“
Bernal segist ekki geta gert
annað en haft gaman að því hve
ferill hans hefur náð góðu flugi á
skömmum tíma. „þegar ég vann
að myndunum sem komu mér á
kortið vissum við ekki einu sinni
hvort þær yrðu sýndar í kvik-
myndahúum. Þannig var þetta
með Amores perros en þegar ég
hafði lokið störfum við hana í
Mexíkó og fengið 1000 dollarana
mína greidda spurði ég framleið-
endurna hvort ég gæti fengið
myndina fullkláraða á myndbandi
til þess að sýna fjölskyldu minni
og vinum.
Óvænt Íslandsheimsókn
Bernal eyddi helginni óvænt á Ís-
landi en þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir til þess að fá hann til að vera
viðstaddan sýningar á Mótorhjóla-
dagbókunum í Háskólabíó sá hann
sér ekki fært að koma hingað þar
sem hann er upptekinn við æfingar
á Blóðbrúðkaupi Gabríels García
Marques sem verður frumsýnt í
London í byrjun maí. Björn Hlynur
Haraldsson leikur á móti Bernal í
verkinu og þeim hefur orðið vel til
vina og hann fékk Bernal til að
skreppa með sér til Íslands yfir
helgina.
„Björn er frábær náungi og það
er mjög gott að vinna með honum.
Það hefur verið mjög lærdómsríkt.
Hann er mjög hugrakkur leikari.
Annars vinnur fólk úr öllum heims-
hornum að þessu verki og við höf-
um lært mjög mikið hvort af öðru.
En það er sem sagt alger tilviljun að
ég er hingað kominn núna en eftir
að Hlynur sagði mér að þetta væri
aðeins tveggja tíma flug ákvað ég
að slá til.“
Helgarfrí Bernals varð þó ekk-
ert frí þar sem yfir hann helltust
viðtöl og kynningar í tengslum við
kvikmyndahátíðina. „Já, ég er dauð-
þreyttur og næ ekki mikið að hvíla
mig á Íslandi en það er vel þess
virði þó ekki væri nema bara fyrir
það að vakna í morgun og sjá ís-
lenska morgunkomu sem er gerólík
öllu sem ég þekki að heiman.“
Bernal og Björn Hlynur héldu til
Londion í gær þar sem þeirra bíða
stífar æfingar á svið í borginni.
thorarinn@frettabladid.is
SÍMI 551 9000
S.V. MBL
K&F X-FM
Sýnd kl. 8 og 10.10 B.i. 16
Iceland International Film Festival
7.-30. april 2005
Downfall - Sýnd kl. 6 og 9
Magnþrungið meistaraverk um síðustu dagana í
lífi Hitlers séð með augum Traudl Junge sem var
einkaritari Hitlers. Túlkun Bruno Ganz á Hitler er
stórkostleg. Ein besta stríðsmynd allra tíma.
Myndin er byggð á sönnum atburðum er áttu sér
stað árið 1994 í þjóðarmorðunum í Rwanda þegar
ein milljón manns lét lífið á 100 dögum! Tilnefnd
til 3 Óskarsverðlauna, 7 meiriháttar alþjóðlegra
verðlauna.
Hotel Rwanda - Sýnd kl. 10.20
Aðrar myndir sem eru til sýningar:
House of the Flying Daggers
Sýnd kl. 5.40
Woodsman - Sýnd kl. 4
Ranarna - Sýnd kl. 4
Dear Frankie - Sýnd kl. 4
Mean Creek - Sýnd kl 6
I Heart Huckebees - Sýnd kl. 8
Cannibal - Sýnd kl. 10
Mulholland Drive - Sýnd kl.5.30
Kinsey - Sýnd kl. 8
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
GÆTI HUGSANLEGA VAKIÐ ÓTTA UNGRA BARNA
Sýnd kl. 8 og 10.45
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
S.V. MBL J.H.H. kvikmyndir.com
Sýnd kl. 4 og 6 m/ísl. tali
Sýnd kl. 4 og 6 m/ensku tali
ÓÖH DV K&F X-FM
SV MBL ÓHT Rás 2
Í fjölskyldu þar sem enginn skilur neinn
mun hún smellpassa í hópinn.
Sýnd kl. 8 og 10.30 B.I. 14 ára
Hættulegasta
gamanmynd ársins
Framhaldið af Get Shorty
ÓÖH DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd í Lúxus kl. 5.30, 8 og 10.30
B.B. Sjáðu Popptíví
Frá leikstjóra American Pie & About a Boy kemur
frábær ný gamanmynd.
Með Dennis Quaid í fantaformi
ásamt Topher Grace (That’s 70s
Show) og Scarlett Johnsson (Lost in
Translation).
Hann fær nýjan yfirmann óreyndan strák sem
dóttir hans fellur auk þess fyrir
SK DV
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
Sjáðu þessar í dag!
www.icelandfilmfestival.is
Iceland International Film Festival
Sjá nánari dagskrá hátíðarinnar á
www.icelandfilmfestival.is
The Fine Art of Whistling
- eftir Kate Davis & David Heilbroner
Dear Frankie
- eftir Shona Auerbach
I T Huckabees
- eftir David O. Russell
Imaginary Witness
- eftir Daniel Anker
GAEL GARCÍA BERNAL Hefur leikið Che Guevara tvisvar á stuttum en glæsilegum
ferli. Fyrst gerði hann það til að eiga fyrir húsaleigunni en síðar lagði hann sig allan í
hlutverkið og uppskar ríkulega í Diarios de motocicleta.
Che borgaði leiguna