Fréttablaðið - 09.06.2005, Qupperneq 1
AUSTURLAND
[ ÁLVER OG KÁRAHNJÚKAR SMITA ÚT FRÁ SÉR ]
Skortur á gistirými
Hótel Aldan
Bls. 2
Staður ríkur
af steinefnum
Álfasteinn
Bls. 4
Aldargamalt
tilhöggvið hús
Hótel Framtíð
Bls. 10
Blanda af bæverskum
og dönskum stíl
Skriðuklaustur
Bls. 9
Álver og Kárahnjúkar
smita út frá sér
SKORTUR Á GISTIRÝMI:
▲
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
AUSTURLAND
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
NÚ Í BÍÓ
ÞAÐ VERÐUR RIGNING MEÐ
MORGNINUM suðaustanlands en
annars yfirleitt þurrt. Skýjað með köflum
syðra en bjart norðan- og austanlands.
VEÐUR 4
FIMMTUDAGUR
9. júní 2005 – 154. tölublað – 5. árgangur
Svið Group
Hefur innreið sína í íslenskt
menningarlíf. Stúlkurnar eru
einn af þeim hópum sem vinna
að Skapandi sumarstarfi Hins
Hússins. UNGT FÓLK 44
Orkuveitan á að selja til
stóriðju
Sigrún Elsa Smáradóttir segir að
sala á orku til stóriðju sé einn
af lykilþáttum þess að Orku-
veita Reykjavíkur skili hagnaði
og mikilvægur þáttur í því að
fyrirtækið geti vaxið og dafnað.
UMRÆÐAN 24
Jafntefli á Akureyri
Ísland og Svíþjóð skildu jöfn í
síðari vináttulandsleik
sínum sem
fram fór á
Akureyri í
gærkvöld.
ÍÞRÓTTIR 33
Ekki hægt a› sofa
í náttbuxum
MATTHÍAS MÁR MAGNÚSSON:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● tíska ● heimili
▲
Aðstoðarlandlæknir segir öllum aðferðum beitt:
Tugir falsa›ra morfínlyfse›la
Kuldakast í Evrópu:
Snjókoma
í Austurríki
VÍN, AP Þótt júní sé genginn í garð
þá er kalt í Evrópu. Þegar íbúar í
austurrísku Ölpunum vöknuðu í
gærmorgun blasti við þeim
fjörutíu sentímetra jafnfallinn
snjór. Í landbúnaðarhéruðum
nærri Verónu í norðaustanverðri
Ítalíu varð skyndilegur upp-
skerubrestur þegar þriðjungur
ferskja og epla urðu kuldabola að
bráð.
Í Króatíu sem er vinsæl sum-
arleyfisparadís skörtuðu
fjallatopparnir hvítum kollum og
hitinn fór niður í þrjár gráður.
Skotar fóru heldur ekki var-
hluta af kuldanum og fór hiti þar
víða niður fyrir frostmark í gær.
Breski flugherinn mældi lægsta
hita í júní síðan mælingar hófust
í Oxfordskíri en þar mældist hit-
inn einungis 0,3 gráður. ■
LOKSINS, LOKSINS, LOKSINS Íslenska landsliðið tók sig loks saman í andlitinu í gærkvöld og sýndi Maltverjum í tvo heimana á
Laugardalsvelli. Lyktir leiksins urðu 4-1 Íslendingum í vil. Það voru þeir Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Tryggvi
Guðmundsson og Veigar Páll Gunnarsson sem skoruðu mörk Íslands. Tæplega 5.000 manns horfðu á leikinn í blíðskaparveðri og
skemmtu allir sér hið besta. Sjá síður 30-32
HEILBRIGÐISMÁL Algengt er að fíkl-
ar útivegi sér morfín og önnur
ávanabindandi efni með því að
falsa lyfseðla, að sögn Matthíasar
Halldórssonar aðstoðarlandlækn-
is. Hann segir líklegt að fjöldi lyf-
seðla af því tagi hlaupi á tugum
það sem af er þessu ári, en kveðst
ekki hafa nákvæma tölu yfir þá.
Slíkt athæfi verði lögreglumál.
„Þessi lyf sem um ræðir kom-
ast með ýmsu móti á svokallaðan
fíkniefnamarkað,“ sagði Matthías.
„Embættinu hafa til dæmis borist
ábendingar um verkjasjúklinga
og fyrrum krabbameinssjúklinga
sem eru sagðir halda áfram að fá
sterk verkjalyf hjá lækni sínum
eftir að þeim er batnað en selja
þau síðan og þá með góðum hagn-
aði. Það getur verið óskaplega
erfitt fyrir lækna að neita fólki
sem segist vera með mikla verki.
Þá leita fíklar allra leiða til að ná
sér í efni. Þess eru meira að segja
dæmi að leitað hafi verið til land-
læknisembættisins eftir uppá-
skrift til að reyna að næla sér í
verkjalyf.“
Matthías sagði að landlæknis-
embættið hefði svipt einn lækni
leyfi til að skrifa út tiltekin
verkjalyf það sem af væri þessu
ári. Ef embættið hefði sannanir
fyrir því að læknar misnotuðu að-
stöðu sína með þeim hætti, þá hik-
aði það ekki við að beita slíkum
úrræðum. -jss
Sjá síðu 6
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Fjárlaganefnd fjallar ekki
frekar um sölu ríkisbankanna
Minnihluti fjárlaganefndar vill kanna hvort Halldór Ásgrímsson forsætisrá›herra hafi veri› vanhæfur til a›
fjalla um bankasöluna vegna hugsanlegra tengsla fjölskyldufyrirtækis hans vi› kaupendur Búna›arbankans.
EINKAVÆÐINGIN Löngum fundi fjár-
laganefndar með ríkisendurskoð-
anda og framkvæmdanefnd um
einkavæðingu lauk í gær með
samþykkt meirihlutans um að
nefndin fjallaði ekki frekar um
málið.
„Við mótmæltum þessu,“ segir
Lúðvík Bergvinsson þingmaður
Samfylkingarinnar og talsmaður
minnihlutans í málinu. „Það kom
margt fram á fundinum sem kall-
aði á frekari útskýringar. Þess
vegna óskuðum við eftir því að
halda þessari umræðu áfram og
klára hana í næstu viku. Á það var
ekki fallist. Samt eigum við eftir
að fara yfir upplýsingar og vinna
úr þeim. Í rauninni er okkur þing-
mönnunum bent á að spyrja við-
komandi ráðherra sjálfa, en þing-
ið kemur ekki saman fyrr en
fyrsta október,“ segir Lúðvík.
Magnús Stefánsson þingmaður
Framsóknarflokksins og formað-
ur fjárlaganefndar segir að það
hafi verið mat meirihluta fjár-
laganefndar að búið væri að fá
upplýsingar og svör sem varpi
skýru ljósi á málið. „Ég hafði boð-
ið ákveðna leið til þess að ljúka
málinu með sátt í nefndinni í
næstu viku. Því miður náði það
ekki fram að ganga,“ segir Magn-
ús.
Stjórnarandstæðingar í fjár-
laganefnd stöldruðu sérstaklega
við bréf sem framkvæmdanefnd
um einkavæðingu barst 2. septem-
ber 2002 áður en Búnaðarbankinn
var seldur. Þar er staðhæft að fé-
lagið Hesteyri hf. hafi þá verið að
fullu og öllu í eigu Kaupfélags
Skagfirðinga. Hálfum mánuði
fyrr, 16. ágúst 2002, var Hesteyri
að hálfu í eigu Kaupfélags Skag-
firðinga og að hálfu í eigu Skinn-
eyjar-Þinganess, fyrirtækis í eigu
fjölskyldu Halldórs Ásgrímssonar
forsætisráðherra.
Á þessum tíma var Halldór Ás-
grímsson varaformaður ráðherra-
nefndarinnar um einkavæðing-
una. „Það þarf að kanna sérstak-
lega hvort þau tengsl kunni að
gera það að verkum að Halldór
Ásgrímsson hafi verið vanhæfur
til þess að fjalla um málið. Við
vöktum sérstaka athygli á því að
það væri óþægilegt að ljúka mál-
inu með þetta upp í loft og reynd-
um því að fá frekari fundi,“ sagði
Lúðvík Bergvinsson.
Magnús Stefánsson formaður
fjárlaganefndar segir að þetta
bréf hafi verið rætt við einkavæð-
ingarnefndina. „Um er að ræða
eitt bréf sem nefndinni mun hafa
borist frá einum aðila. Þeir munu
senda okkur gögn í framhaldinu
og það verður upplýst,“ segir
Magnús. -jh
VEÐRIÐ Í DAG