Fréttablaðið - 09.06.2005, Qupperneq 6
MORFÍN Aðstoðarlandlæknir sýnir
læknum sem ávísa morfíni
óvarlega nokkra samúð því hann
telur fíklana slynga við að leika
á fólk.
„Starfsmenn Landlæknisem-
bættisins hafa ávísað
ávanabindandi lyfj-
um þegar fíklar hafa
haft samband, borið
sig illa og kvartað
undan því að ná ekki í
lækni til að fá lyf til
að lina kvalirnar“.
Þetta sagði Matthías
Halldórsson, aðstoð-
arlandlæknir, í Há-
degisútvarpinu á Tal-
stöðinni í gær.
„Það getur verið að aðgengið
að morfíni sé orðið of mikið en
það er ekki endilega vegna brots-
legs athæfis hjá læknum. Sumir
fíklar eru snjallir í því að leika á
fólk, lækna jafnt sem aðra. Það
hefur komið fyrir að þeir hafi
leikið á okkur hjá landlæknis-
embættinu, sagst ekki ná í
nokkurn lækni, vera
krabbameinssjúklingar
og illa haldnir af verkj-
um. Kannski hefur það
einhvern tímann því
miður leitt til þess að
við höfum skrifað út ör-
fáar töflur fyrir þetta
fólk sem á alls ekki að
gera,“ sagði hann.
Matthías kvaðst
skilja lækna. Þeir lendi
í klemmu þegar mikið
sé um frí og fólk beri sig illa.
„Fíklarnir ráðast á garðinn
þar sem hann er lægstur.“ -ghs
6 9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Formaður Lækna-
félags Íslands fagnar því að land-
læknir hafi brugðist við vegna
lækna sem ávísað hafa morfínlyfj-
um óvarlega.
„Þetta sýnir og sannar hversu
lítinn hluta læknastéttarinnar er
þarna um að ræða og það er fagn-
aðarefni að landlæknir geti tekið á
málum tengdum þeim er ávísa
ávanabindandi efnum í meira
mæli en eðlilegt er,“ segir Sigur-
björn Sveinsson, formaður
Læknafélags Íslands.
Hann segir ekkert nýtt að hér á
landi séu einstöku læknar að ávísa
sjúklingum sínum óeðlilegu magni
af morfíni eða öðrum ávanabind-
andi efnum en nú sé hægt að finna
viðkomandi aðila strax með hjálp
nýs lyfjagagnagrunns sem land-
læknir hefur aðgang að en Lækna-
félagið barðist fyrir því að sá
grunnur yrði settur á laggirnar.
Grunnurinn gerir allt eftirlit með
lyfjaávísunum mun einfaldara en
áður var og öll óvenjuleg frávik
eru rannsökuð.
„Hér á landi eru um 800 starf-
andi læknar og það er alveg við
því að búast að stöku læknar sýni
útbrunaeinkenni eins og gerist í
öllum öðrum starfsstéttum. Ein-
kennin eru fjármálaóreiða og al-
mennt kæruleysi og þessu fólki og
skjólstæðingum þeirra þarf að
koma til hjálpar. Því ber að fagna
að hægt sé að finna viðkomandi
fljótt og örugglega.“ - aöe
Landlæknisembættið hefur skrifað út morfín:
Fíklar eru slyngir a›
villa á sér heimildir
Fjörutíu og sjö n‡ir morfín-
fíklar komu á Vog í fyrra
HEILBRIGÐISMÁL Undanfarin fjögur
ár hafa rúmlega fjörutíu nýir
morfínfíklar bæst árlega í hóp
þeirra sprautufíkla sem koma til
meðferðar á Vogi, að sögn Þórar-
ins Tyrfingssonar yfirlæknis. Á
síðasta ári voru nýgreindir mor-
fínfíklar 47 talsins. Af þeim 272
sjúklingum sem leitað hafa með-
ferðar á Vogi undanfarin ár
vegna morfínfíknar eru fjórtán
látnir.
Landlæknisembættið hefur
skorið upp herör gegn óhóflegum
ávísunum lækna á morfínlyf, eins
og Fréttablaðið greindi frá í gær.
Einkum er um að ræða morfínlyf-
ið contalgin, sem gefið er í forða-
töflum við verkjum, í mismun-
andi styrkleikaflokkum. Að sögn
Þórarins kaupa fíklarnir töfluna á
2.500-3.500 krónur eftir því hve
styrkleikinn er mikill.
„Við vitum að contalgin-töflur
ganga kaupum og sölum,“ sagði
Þórarinn. „Það veldur okkur
áhyggjum að talsvert virðist vera
af contalgini á þessum ólöglega
vímuefnamarkaði og menn geta
náð í það nokkuð auðveldlega ef
þeir eiga peninga. Mikil aukning
hefur orðið á morfínlyfjum á
markaði á síðari árum. Morfín-
fíklar voru ekki til fyrir 1999.
Þetta eykst frá ári til árs. Við höf-
um ekki undan, þótt okkur gangi
vel að ná fólki út úr þessu. Þá
virðist fólk eiga greiðan aðgang
að kódeini og verkjalyfjum al-
mennt, sem eykur enn á þennan
vanda.“
Þórarinn sagði ýmsar leiðir til
að contalgin og önnur morfínlyf
kæmust á vímuefnamarkað.
Stundum væri þeim stolið frá
stofnunum sjúklingum eða ávísað
beint af læknum á sjúklinga sem
síðan seldu það. „Þá eru sjálfsagt
dæmi þess að læknar séu að ávísa
á þessi lyf og telji að þeir séu að
gera fíklunum gott,“ sagði hann.
„En ég kann ekki að segja ná-
kvæmlega frá þessu ferli. Það er
landlæknis og lögreglu að gera
það. Við erum á hinum endanum,
að reyna að minnka eftirspurn-
ina.“
Þórarinn sagði vonir standa til
að þessi mál skýrðust þegar lyfja-
gagnagrunnur landlæknisem-
bættisins yrði kominn í fulla
notkun. jss@frettabladid.is
Stjórnvöld í Kína:
Ritsko›a
vefsí›ur
VEFURINN Stjórnvöld í Kína hyggj-
ast taka upp sérstakt eftirlit með
bloggsíðum og umræðuvefjum.
Opinberrar skráningar vef-
síðna hefur lengi verið krafist í
Kína. Breska ríkisútvarpið greindi
frá því í gær að yfirvöld hefðu nú
ákveðið að bloggsíður skyldu
einnig lúta ríkisvaldi.
Kínverska upplýsingaráðuneyt-
ið segir að þjónustur sem halda úti
bloggsíðum verði nú að skrá allar
persónuupplýsingar þeirra sem
rita bloggið. Verði misbrestur á
skráningu liggja við háar sektir.
Allar blogg- og vefsíður þarf að
skrá fyrir lok mánaðarins. ■
Hermannaveiki í Noregi:
Upptökin
fundin
NOREGUR, AP Upptök hermanna-
veikifaraldurs í Noregi, sem orð-
ið hefur 10 manns að aldurtila og
valdið veikindum yfir 50, hafa
verið rakin til loftræstikerfis
Borregaard-efnaverksmiðjunnar
í Sarpsborg í suðausturhluta
landsins.
„Við erum nær fullviss um að
hafa þarna fundið upptök veik-
innar,“ sagði Svein Roensen
læknir við norska fjölmiðla í gær.
Fyrstu tilfellin greindust 21. maí
í Fredrikstad, nærri Sarpsborg.
Hermannaveiki er sérstaklega
skæð eldra fólki og sjúklingum
og leggst á öndunarfæri fólks.
Bakterían berst gjarnan með
loftræstikerfum og vatnskerf-
um húsa, en smitast ekki á milli
manna. Sjúkdómurinn er talinn
banvænn í 5 til 30 prósentum
tilfella. ■
Allra síðasta sýning föstudagskvöld!
Taktu þátt...
í kjöri um áhorfendaverðlaun ársins á visir.is
og þú gætir farið frítt í leikhús - 20 miðar og 2 árskort í boði!
Verðlaunin verða afhent í Þjóðleikhúsinu 16. júní
B
as
eC
am
p
Pr
od
uc
tio
ns
Í samvinnu við:
Er rigningin síðustu daga kær-
komin?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að tengja Vatnsmýri og Álftanes
með brú yfir Skerjafjörð?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
14%
86%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
FJÖLDI GREINDRA ÓPÍUMEFNAMISNOTENDA
OG FÍKLA Á ÁRUNUM 1994-2004
Konur Karlar Alls Látnir Konur Karlar
Morfín misnokun 27 89 126 4 1 3
Morfín fíkn 44 102 146 10 4 6
Morfíntilfelli alls 71 191 272 14 5 9
YFIRLÆKNIRINN Þórarinn Tyrfingsson segir
meðferðarstöðina á Vogi ekki hafa undan
við að aðstoða morfínfíkla og aðra
sprautufíkla.
Morfínfíklum hefur árlega fjölga› um rúmlega fjörutíu a› me›altali sí›ustu ár. Sí›astli›inn áratug hafa
samtals 272 morfínfíklar sem sprauta sig í æ› komi› til me›fer›ar á Vogi. Af fleim eru fjórtán látnir.
SIGURBJÖRN SVEINSSON Segir gagna-
grunninn sem notaður er til að fylgjast
með lyfjaávísunum lækna þegar hafa
sannað sig en Læknafélagið barðist fyrir að
honum yrði komið á fót.
Nýr lyfjagagnagrunnur þegar farinn að sanna sig:
Læknafélagi› fagnar framtakinu
MATTHÍAS HALLDÓRSSON
AÐSTOÐARLANDLÆKNIR
Jóhann Sebastían Bach:
Á›ur óflekkt
lag fundi›
ÞÝSKALAND, AP Fundið er í Þýska-
landi áður óþekkt aría eftir Jóhann
Sebastían Bach. Sagnfræðingar
fundu nóturnar
innan um bóka-
safnspappíra í
borginni Weim-
ar í Austur-
Þýskalandi, að
því er fram kom
í tilkynningu á
vef Bach-safns-
ins í Leipzig í
gær.
Sönglagið samdi Bachs fyrir
hertogann af Saxlandi árið 1713, en
Bach starfaði við hirð hans. Ekki er
vitað hvort verkið hefur einhvern
tímann verið flutt. Bach-safnið
segir lagið vel samið, en þó ekki
stórkostlegt. Baerenreiter útgáfan
þýska hyggst gefa verkið út í
haust. ■
JÓHANN SEBASTÍAN
BACH.