Fréttablaðið - 09.06.2005, Page 10
JACKSON-DÓMS BEÐIÐ Stuðningsmaður
Michaels Jackson heldur á borða með
áprentaðri mynd af poppgoðinu fyrir utan
dómhúsið í Santa Maria í Kaliforníu, þar
sem kviðdómur í máli hans sat í gær á
rökstólum þriðja daginn í röð. Í bakgrunni
sést spjald með boðskap herskárra and-
stæðinga Jacksons, sem vilja að „kynvilltir
barnaníðingar“ verði tafarlaust teknir af lífi.
10 9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Skíðasvæði Dalvíkinga verður snævi þakið allan næsta vetur:
Dalvíkingar hefja snjóframlei›slu í haust
SKÍÐI Skíðafélag Dalvíkur stefnir
á að hefja snjóframleiðslu í
Böggvisstaðafjalli í haust.
Kostnaðurinn er talinn vera um
21 milljón króna og segir Óskar
Óskarsson, formaður félagsins,
að fjármögnun gangi vonum
framar. „Við erum að leita eftir
framlögum frá aðilum innan og
utan bæjarins og höfum nú þeg-
ar fengið loforð fyrir meira en
helmingnum af kostnaðinum.
Því verður varla til baka snúið,”
segir Óskar.
Vegna snjóleysis hefur geng-
ið erfiðlega að halda skíðasvæð-
unum á Norðurlandi opnum und-
anfarna vetur. Snjóframleiðsla
hefst í Hlíðarfjalli við Akureyri
í haust og mun Vetraríþrótta-
miðstöð Íslands fjármagna kaup
á snjóframleiðslukerfi sem
kostar um 80 miljónir króna.
Óskar segir að skíðasvæði Dal-
víkinga sé smærra í sniðum og
því sé kostnaðurinn við snjó-
framleiðslu þar minni en í Hlíð-
arfjalli. „Ákvörðun um snjó-
framleiðslu í Hlíðarfjalli ýtti við
okkur og það er ljóst að við höf-
um ekki hug á að sitja eftir með
sárt ennið: með mannvirki í
fjallinu upp á tugi milljóna
króna en engan snjó,” segir Ósk-
ar.
- kk
BORGARMÁL „Með hliðsjón af við-
miðum um þéttbýli og þéttleika
byggðar þá er ég ekki viss um að
Reykjavík félli annars staðar und-
ir þá skilgreiningu að teljast
borg,“ segir Orri Gunnarsson
verkfræðingur. Hann gagnrýnir
hversu mikið landsvæði innan
borgarmarkanna fer undir sam-
göngumannvirki og telur það
óeðlilega mikið miðað við aðrar
borgir af sömu stærðargráðu.
Bendir Orri á tölur Níels Ein-
ars Reynissonar máli sínu til
stuðnings en Níels komst að því að
tæp 50 prósent landflæmis innan
borgarmarkanna fara undir sam-
göngumannvirki. „Ég nefni sem
dæmi fjölda mislægra gatnamóta
í borginni en hvergi annars staðar
er hægt að finna tólf slík í 150
þúsund manna borg. Það eru til
milljónaborgir sem aldrei hafa
byggt ein slík gatnamót og al-
mennt er staðan sú í dag að lagst
er gegn slíkum mannvirkjum.
Land undir slíkt er bæði stórt og
dýrt, framkvæmdin er dýr, við-
hald er dýrt og deila má um hvort
þau leysa einhvern vanda.“
Orri segir að rannsóknir hafi
sýnt að ólíkt því sem áður var
haldið þá dragi þétting byggðar úr
umferð en ekki öfugt. Þá gefst
meira og betra tækifæri til að
nýta almenningssamgöngur og
borgaryfirvöld þurfa að fram-
fylgja stefnu sinni um þéttingu
byggðar mun harðar fram.“
- aöe
Orri Gunnarsson verkfræðingur ómyrkur í máli:
fiörf á mun meiri
fléttingu bygg›ar
Costa del Sol
M
all
or
ca
Sóla
rlottó
Síð
ustu
sætin í
sólina í júní og júlí.
• Þú velur áfangastað og ferðadag
og tekur þátt í lottóinu
um hvar þú gistir.
• Viku fyrir brottför
staðfestum
við gististaðinn.
Sama sólin, sama fríið
en á verði fyrir þig.
*Innifalið er flug, gisting
í 7 nætur, flugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.
á mann miðað við 2 eða 4
í stúdíói eða íbúð.
Enginn barnaafsláttur.
Spilaðu með!
Krít
27. júní, 4. 25. júlí
22. og 29. ágúst
Mallorca
15. 29. júní, 6. 13. júlí
17. og 24. ágúst
Costa del Sol
16. 23. 30. júní
7. 21. júlí og 18. ágúst
Portúgal
20. 27. júní, 4. 11.18. júlí
15. og 22. ágúst
ÞÉTTING BYGGÐAR Borgaryfirvöld hafa um hríð haft þéttingu byggðar í forgangi en Orri
Gunnarsson segir að enn harðara átak þurfi til.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
SKÍÐASVÆÐI DALVÍKINGA Formaður Skíðafélags Dalvíkur segir að uppbyggingarstarfið á
skíðasvæðinu síðustu 30 ár verði að engu ef ekki verði brugðist við veðurfarsbreytingum
með framleiðslu á snjó.
EÞÍÓPÍA, AP Að minnsta kosti tutt-
ugu og tveir létust í skothríð ör-
yggissveita eþíópísku ríkisstjórn-
arinnar í höfuðborginni Addis
Ababa í gær.
Öryggissveitirnar hófu skot-
hríðina þegar mótmælendur tóku
að fleygja grjóti í átt að þeim.
Miklar óeirðir hafa nú verið í
höfuðborginni síðustu þrjá daga
en mótmælendur saka ríkisstjórn-
arflokkinn og forsetann um að
hafa svindlað í kosningum sem
haldnar voru fyrir þremur vikum.
Ríkisstjórnin segir að öryggis-
sveitirnar hafi einungis verið að
reyna að stilla til friðar og stað-
festir ekki fregnir um mannfall.
Meles Zenawi, forseti landsins,
bannaði öll mótmæli strax eftir
kosningarnar 15. maí en mótmæl-
endur létu bannið ekki stöðva sig.
Þeir telja að forsetinn hafi brotið
á kosningarétti fjölmargra.
Eftirlitsmenn frá Evrópusam-
bandinu sem fylgdust með kosn-
ingunum á sínum tíma sögðu þær
hafa verið þær lýðræðislegustu
sem landið hefur upplifað. Engu
að síður báru eftirlitsmennirnir
vitni um allmörg brot á mannrétt-
indum kjósenda. ■
LÍK Á SJÚKRAHÚSI Í ADDIS ABABA Mót-
mælendur vilja meina að ríkisstjórnarflokk-
urinn hafi svindlað í kosningum. Öryggis-
sveitir skutu tugi til bana eftir að mótmæl-
endur hófu grjótkast.
Óeirðir í Eþíópíu vegna kosninga:
Öryggissveitir skutu
á mótmælendur