Fréttablaðið - 09.06.2005, Blaðsíða 18
18 9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Helgafellsnauðgarinn Kristinn
Óskarsson farinn úr landi:
Ógeðslegasti
nauðgari
Íslands
laus úr
fangelsi
Morfín er verkjadeyfandi lyf og er eitt af hin-
um svokölluðu ópíumlyfjum. Hér á landi er
morfín fyrst og fremst notað sem verkjadeyf-
andi lyf fyrir krabbameinssjúklinga og eitt
afbrigði af því sem mikið er notað heitir
contalgin. Contalgin er langvarandi lyf í töflu-
formi og fæst í mismunandi styrkleika eða allt
frá fimm milligrömmum upp í tvö hundruð
milligrömm. Lyfið hefur sljóvgandi áhrif og er
ávanahætta af notkun þess mikil.
HVERNIG ER LYFIÐ MISNOTAÐ?
Eins og áður segir er lyfið ávanabindandi og
þegar notkun þess er hætt geta komið fram
fráhvarfseinkenni. Þeir, sem ánetjast lyfinu í
öðru formi en við venjulega inntöku eftir
læknisráði, leysa töflurnar upp og sprauta
þeim í líkamann. Þannig myndast víma sem
getur varað í mismikinn tíma allt eftir magni
og styrk þess sem sprautar því í sig. Flestir
þeir sem leita aðstoðar vegna morfínfíknar til
sjúkrahúss SÁÁ hafa ánetjast lyfinu með þess-
um hætti og fjöldi morfínsjúklinga hefur auk-
ist ár frá ári.
HVERJIR SKRIFA UPP Á LYFIÐ?
Contalgin gengur sölum á svörtum markaði
en sala annarra aðila en lyfsala á því er
óheimil. Læknar eru þeir einu sem hafa
heimild til að skrifa lyfseðla fyrir contalgini.
Ekki hafa þó allir læknar heimild til að ávísa á
lyfið enda er um mikla hættu á misnotkun
þess að ræða og eru leyfin þess vegna bund-
in við þá sem alla jafna hafa með sjúklinga
að gera sem þurfa á slíkum lyfjum að halda.
Lyfið er einnig eftirritunarskylt en með því er
átt við að skráð er hvaða læknar ávísa lyfið, í
hve miklu magni og til hverra.
Afar ávanabindandi lyf
HVAÐ ER? MORFÍN
fréttir og fró›leikur
Finnland
Ísland
Noregur
35
/
81
70
k
m
2
4
/
19
37
k
m
2
1
/
75
0.
00
0
km
2
0
/
0
SVONA ERUM VIÐ
Fjöldi
þjóðgarða á
Norðurlönd-
unum og
samanlögð
stærð þeirra.
Heimild: Hagstofan
Grænland
Svíþjóð
21
/
26
44
6
km
2
21
/
69
15
k
m
2
Danmörk
Hátt gengi, fjöldauppsagnir og
nýjustu tíðindi frá Hafrannsókn-
arstofnun um stærð þorskstofns-
ins gefa ekki mikla ástæðu til
bjartsýni fyrir þá sem standa í út-
flutningi sjávarafurða. Sigurður
Viggósson, framkvæmdastjóri
Odda hf. á Patreksfirði og bæjar-
fulltrúi í Vesturbyggð tekur undir
að það blæs ekki byrlega fyrir
sjávarútveginn. „Allar okkar tekj-
ur koma frá útflutningi og ráðast
allar af genginu. Það hefur þar af
leiðandi öll áhrif. Fyrirtækin sem
pluma sig í þessu umhverfi og
verða ekki fyrir miklu tapi eru
þau sem eru búin að sérhæfa sig
og tryggja sér góðan aðgang að
hráefnismörkuðum og starfs-
mönnum. Það verður að segjast
eins og er að það eru ekki mörg
fyrirtæki í þeirri stöðu í dag. Fyr-
irtæki sem ekki eiga kvóta í dag
eiga litla sem enga möguleika.
Þau eru rekin á dugnaði og bjart-
sýni frekar en eiginlegri getu.“
Engin nýliðun
Sigurður segir að þótt staðan sé
vissulega erfið hafi Oddi komið ár
sinni þannig fyrir borð að líklega
þurfi ekki að stöðva vinnslu; jafn-
vel sé útlit fyrir að starfsfólki
verði fjölgað þar sem fyrirtækið
hafi keypt aflaheimildir og aukið
veltuna undanfarið. Það standi
hins vegar ljón í veginum fyrir
hagræðingu. „Við höfum vissu-
lega farið í gegnum öldudali en
reynum að bregðast við aðstæð-
um sem þessum með því að draga
úr rekstrinum og lækka hráefnis-
kostnað. En því miður býður lög-
gjöfin ekki upp á það og Verðlags-
stofa skiptaverðs setur okkur
skorður. Þetta er gamalt kerfi og
úr sér gengið og veldur því að við
getum ekki lækkað hráefnisverð-
ið eins mikið og við þyrftum og
fært það til samræmis við lækkun
afurðaverðs. En með því að lækka
verðið eins og við megum tel ég
að við munum spjara okkur.“
Sigurður dregur þó ekki dul á
að mörg fyrirtæki í landinu eru
illa stödd. Spurður um stöðu Þórs-
bergs, sem er stærsta fiskvinnsl-
an á Tálknafirði, segir Sigurður
að um síðustu áramót hafi Oddi
gert samning við fyrirtækið um
að stjórnendur Odda komi að
rekstri Þórsbergs. „Þórsberg hef-
ur verið í verri stöðu en við, tapað
fé og þurft að segja upp fólki.
Næstu tveir til þrír mánuðir eiga
eftir að reynast þeim erfiðir en ef
þeir halda rétt á spilunum fram á
haust trúi ég að þeir muni pluma
sig. Þetta verður auðveldara með
nýju kvótaári.“
Sigurður segist vona að eigend-
ur Bílddælings hafi orku til að
koma vinnslu af stað aftur því það
séu litlar líkur að nýir aðilar muni
hefja rekstur miðað við núverandi
aðstæður. „Það er augljós flótti úr
greininni og mikill samdráttur því
miðað við núverandi stöðu á geng-
inu eru tekjurnar alltof litlar til að
það borgi sig að reka útgerð og
fiskvinnslu. Ef þetta ástand verð-
ur langvarandi er ég hræddur um
að það gæti endað illa því margar
sjávarbyggðir sem eru veikar fyr-
ir þola ekki slíka tekjuskerðingu.“
Stóriðja er sértæk aðgerð
Á sjómannadaginn flutti Kristinn
H. Gunnarsson hátíðarræðu á Pat-
reksfirði og reifaði sjónarmið sín
um það hvernig mætti koma til
móts við byggðir sem líða fyrir
hátt gengi krónunnar. Lagði hann
til að þau byggðarlög sem ekki
nytu góðs af stóriðju fengju út-
hlutað til sín viðbótaraflaheimild-
um.
Sigurður segist skilja viðhorf
Kristins, en er ekki sammála út-
færslunni. „Hann nefndi í ræð-
unni að það þyrfti um tuttugu þús-
und tonn af botnsfiskskvóta til að
þetta næði fram að ganga. Það er
vissulega rétt að slík viðbót
myndi snúa möguleikum sjávar-
byggðanna við og festa þær í
sessi. Aðalgalli fiskveiðistjórnun-
arkerfisins er óöryggið sem það
veldur íbúunum og verður til þess
að þeir flytjast á brott. En al-
mennt séð er ég á á því að ríkið
eigi ekki að grípa inn í með sér-
tækum aðgerðum. Það tilheyrir
liðinni tíð að gengið sé fellt og það
ætti að vera eins með kvótann
sem er jú fjármunir.“
Sigurður telur aftur á móti að
ríkið standi þegar fyrir sértækum
aðgerðum, til dæmis með stóriðju
fyrir austan og norðan og geti þar
með ekki hunsað kröfur um að
önnur byggðarlög fái eitthvað fyr-
ir sinn snúð. „Það er til dæmis
stór spurning hversu lengi á að
beita Seðlabankanum til að hækka
stýrivexti og styrkja þar með
krónuna. Það er hrein stjórnvalds-
aðgerð. Hér fyrir vestan er hvorki
verðbólga né þensla. Það sem okk-
ur sem erum í útflutningi finnst
sárast er að okkur er fórnað til að
halda niðri verðbólgunni sem er
búin til á höfuðborgarsvæðinu og
fyrir austan. Og ef ég á að segja
þér eins og er kýs ég frekar dá-
litla verðbólgu en að útflutnings-
greinarnar séu sveltar.“ ■
Útflutningsgreinum
fórna› fyrir stóri›ju
Sta›a krónunnar er a› sligar útflutningsgreinarnar og fjöldauppsagnir a›
undanförnu gætu veri› fyrirbo›i fless sem koma skal. Útflytjendur segja a›
fleir séu látnir bera kostna›inn af ver›bólgu sem fylgir stóri›junni.
BERGSTEINN SIGURÐSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTAVIÐTAL
GENGIÐ OG SJÁVAR-
ÚTVEGURINN
NÚPURINN VIÐ BRYGGJU Línubáturinn Núpur BA 69 er 182 lestir og stærsta skipið í eigu Odda.
SIGURÐUR VIGGÓSSON Segir erfitt fyrir
stjórnvöld að skella skollaeyrum við kröf-
um um sértækar aðgerðir fyrst þau fóru á
annað borð í slíkar aðgerðir fyrir austan.