Fréttablaðið - 09.06.2005, Síða 26
Stjórnendur stærsta bíla-
fyrirtækis heims ætla að
segja upp 25 þúsund
manns á næstu árum.
Þeir ætla einnig að reyna
að draga úr kostnaði
vegna heilbrigðistrygg-
inga og eftirlauna.
General Motors, stærsti bílafram-
leiðandi heims, hefur tilkynnt að
25 þúsund starfsmönnum fyrir-
tækisins verði sagt upp fyrir árið
2008 og að fjölmörgum verk-
smiðjum verði lokað. Hlutabréf í
fyrirtækinu hækkuðu lítillega við
tilkynninguna.
General Motors tapaði á fyrsta
ársfjórðungi 70 milljörðum króna
og var það mesta tap fyrirtækis-
ins á einum fjórðungi í þrettán ár.
Talið er að aðgerðirnar muni
spara General Motors 190 millj-
arða króna á ári og komast langt
með að að loka fyrir þann halla
sem er á rekstrinum í Bandaríkj-
unum.
Raunar er það svo að góður ár-
angur í fjárfestingarstarfsemi
heldur þessum stærsta bílafram-
leiðanda heims á floti en bílafram-
leiðslan skilar hins vegar minna
en engu. General Motors hefur
lagt áherslu á að framleiða smá-
jeppa á undanförnum árum en
margt bendir til þess að neytend-
ur í Bandaríkjunum séu farnir að
huga meira að sparneytni og því
hefur markaðshlutdeild jap-
anskra og kóreskra smábíla vaxið
á kostnað bandarískra bensín-
háka.
Þá er líklegt að General Motors
þurfi að endurskoða kjarasamn-
inga, því útgjöld vegna eftirlauna
og heilsutryggingar á þessu ári
verða nálægt sex milljörðum dala
– um 380 milljarðar íslenskra
króna. Í ræðu á aðalfundi félags-
ins á þriðjudag lýsti Rick Wago-
ner, forstjóri fyrirtækisins, því
yfir að lífsnauðsynlegt væri fyrir
fyrirtækið að draga verulega og
snögglega úr útgjöldum vegna
heilbrigðismála. Þessi ummæli
féllu í grýttan jarðveg hjá for-
svarsmönnum verkalýðsfélaga í
Bandaríkjunum. Þeir halda því
fram að léleg framleiðsla sé
ástæða vandræðanna hjá General
Motors en að forsvarsmenn fyrir-
tækisins neiti að horfast í augu
við það.
Wagoner sagði í ræðu sinni að
General Motors myndi breyta
áherslum sínum í framleiðslu á
næstunni og leggja meira í fram-
leiðslu smærri og sparneytnari
bíla. -jsk/ -þk
Alltaf undir grun
Enn einu sinni eru íslenskir bankar grunaðir um
yfirtökutilraunir á erlendum fjármálafyrirtækjum.
Töluverð viðskipti hafa verið með bréf í norska
fyrirtækinu Storebrand, sem er fyrst og fremst
tryggingafélag, á síðustu vikum og hefur
Lundúnaútibú UBS-bankans keypt tæplega sex
prósent hlutafjár upp á síðkastið. Talið er líklegt að
UBS sé að safna bréfum fyrir einhvern annan
og grunsemdirnar falla vitaskuld á íslensku
bankana, einkum KB banka og
Íslandsbanka. Vitað er að báðir bankarnir
hafa vilja og getu til að fjárfesta meira
erlendis og Storebrand yrði tæpast of stór biti, í
það minnsta ekki í tilviki KB banka. Markaðsvirði
Storebrand er um 150 milljarðar íslenskra króna.
Halli í enska boltanum
Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte et Touche segir í
árlegri skýrslu sinni um ensku úrvalsdeildina í
knattspyrnu að viðskiptahalli deildarinnar hafi
aldrei verið meiri. Fjallar skýrslan um tímabilið 2003 til
2004. Segir í skýrslunni að félögin hafi á tímabilinu
keypt leikmenn fyrir 30 milljörðum króna meira en
þau seldu leikmenn á. Er það 225 prósenta aukning
milli ára. Stóran hluta hallans má rekja til eyðsluorgíu
Romans Abramovitsj, eiganda Chelsea.
Launareikningur Chelsea var líka langhæstur allra
félaga, alls um fjórtán milljarðar króna. Manchester
United varð í öðru sæti, borgaði leikmönnum
sínum rúmum fjórum milljörðum minna. Inni í
þessum tölum eru ekki þær fjárhæðir sem „hinn
útvaldi“ Jose Mourinho hefur eytt síðan hann
tók við liðinu. „Launareikningur Chelsea hlýtur
að vera sá langhæsti í veröldinni,“ sagði Paul
Rawnsley, starfsmaður Deloitte. Ef ekki væri
fyrir eyðslusemina hjá Chelsea hefðu laun í
enska boltanum hins vegar lækkað milli ára
enda reyna knattspyrnufélögin að halda
aftur af sér um þessar mundir eftir að
laun hækkuðu stjarnfræðilega nokkur
ár á undan.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.088*
KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ]
Fjöldi viðskipta: 235
Velta: 2.310 milljónir
+0,61%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Stjórn Actavis ákvað að gefa út
kauprétt að hlutafé í félaginu til
níu framkvæmdastjóra og 21 lyk-
ilstjórnanda. Fá þeir að kaupa
bréf í félaginu á genginu 38,5
næstu þrjú árin fyrir samtals 44
milljónir að nafnvirði.
Actavis hefur gert samning við
Landsbankann um viðskiptavakt
með bréf félagsins. Hámarksfjár-
hæð sem Landsbanki Íslands er
tilbúinn að kaupa eða selja á
hverjum degi er 200 milljónir
króna að markaðsvirði.
Tryggingamiðstöðin hefur
ákveðið að lána fólki fyrir bíla-
kaupum án skilyrða um að tryggt
sé hjá þeim. TM segist vera fyrst
tryggingafélaga til að veita við-
skiptavinum slíkt val.
26 9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 40,30 +0,25% ... Atorka 6,00 -
0,83% ... Bakkavör 35,40 +1,14% ... Burðarás 14,70 -0,34%... FL Group
14,60 +1,39% ... Flaga 4,90 -0,41% ... Íslandsbanki 13,60 +0,37% ... KB
banki 532,00 +0,95% ... Kögun 60,20 -0,17% ... Landsbankinn 16,80 –
... Marel 56,30 – ... Og fjarskipti 4,00 – ... Samherji 12,10 – ... Straumur
12,35 +1,65% ... Össur 78,00 +0,65% Tölur frá kl. 15.20 í gær.
Nýjustu tölur á Vísi.
Gríðarlegur samdráttur
hjá General Motors
Síminn 8,89%
Straumur 1,65%
FL Group 1,39%
Jarðboranir -1,83%
Atorka -0,83%
Falga -0,41%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Umsjón: nánar á visir.is
Glös fyrir góðar stundir
– einstök ending og frábært verð
Mán
udag
a til
föstu
daga
frá k
l. 8:0
0 til
18:00
Laug
arda
ga fr
á
kl. 10
:00 t
il 14:
00
Opnu
nartí
mi
í ver
slun
RV:
R
V
20
42
B
Pils 36 cl bjórglös, 3 stk.
Maldive 36 cl bjórglös, 6 stk.
Imerial 31 cl rauðvínglös , 12 stk.
Á tilboðsverði í júní 2005
1.528,-
12 stk.
742.-
6 stk.
324,-
3 stk.
Hættir í Samherja
Eiríkur S. Jóhannsson, sem
nú er forstjóri Og Vodafone,
tekur við stjórnarfor-
mennsku í Samherja á
Akureyri af Finnboga
Jónssyni. Finnbogi lætur af
störfum í stjórninni eftir
fimm ára setu, en hann er
framkvæmdastjóri SR-
Mjöls.
Á framhaldsaðalfundi
Samherja á þriðjudaginn
voru þeir Óskar Magnússon,
Jón Sigurðsson, Jóhannes Geir
Sigurgeirsson og Kristján Vilhelms-
son kosnir í stjórn félagsins
auk Eiríks. Óskar sinnir
störfum varaformanns
stjórnar.
Samþykkt var að
heimila stjórninni að kaupa
bréf í Samherja fyrir allt að
1,7 milljarða króna á næstu
átján mánuðum. Kaup-
verðið má vera allt að tíu
prósentum yfir meðalgengi
bréfanna síðustu tvær
vikurnar á undan. Stefnt er
að afskráningu félagsins úr
Kauphöll Íslands. - bg
Selja hlut í
France Telecom
Nýskipuð ríkisstjórn Frakklands
hyggst selja allt að átta prósenta
hlut í símafyrirtækinu France Tele-
com. Ágóðann hyggst stjórnin nota
til að takast á við fjárlagahalla og
atvinnuleysi í landinu. Rúmlega tíu
prósent Frakka eru án atvinnu og
horfur í efnahagsmálum almennt
slæmar. Gangi salan eftir mun ríkið
eiga tæplega þriðjungshlut í France
Telecom. Í september seldi ríkið tíu
prósenta hlut í fyrirtækinu fyrir
420 milljarða króna.
„Tímasetning sölunnar er póli-
tísk. Menn eru að bregðast við því að
stjórnarskrá ESB hafi verið hafn-
að,“ sagði Matthieu Cordier, sér-
fræðingur ABN Amro bankans. - jsk
FRAKKLAND Franska ríkið hyggst selja
allt að átta prósenta hlut í símafyrirtækinu
France Telecom. Sérfræðingar segja tíma-
setningu sölunnar pólitíska.
Laugaból seldi 1,25 pró-
senta hlut sinn í Jarðbor-
unum. Atorka keypti ekki.
Fjárfestingarfélagið Laugaból
hefur selt 1,25 prósenta hlut sinn í
Jarðborunum fyrir 107,5 milljónir
króna. Félagið var níundi stærsti
hluthafinn í Jarðborunum.
Laugaból er í eigu Aðalsteins
Karlssonar, Lárusar Blöndal og
Guðmundar Birgissonar. Aðal-
steinn Karlsson segist persónu-
lega hafa viljað halda hlut sínum í
Jarðborunum lengur: „Þeir tóku
ákvörðun um þetta, félagar mínir,
í gær. Ég var þó ekki ósáttur lengi
því peningarnir fara til kaupa á
bréfum í Atorku“.
Guðmundur Birgisson sagði að
einungis hefði verið um venjuleg-
ar hreyfingar að ræða og að ekki
hefði þurft stjórnarákvörðun til
að ákvarða um söluna: „Laugaból
er fjárfestingafélag og þetta er
bara eins og gerist og gengur.
Menn kaupa og selja.“
Ekki er vitað hver keypti bréf-
in en ljóst er að það var ekki At-
orka, sem á 43,85 prósenta hlut í
Jarðborunum og er stærsti hlut-
hafinn, enda hefði verið skylt að
tilkynna um kaup svo stórs hlut-
hafa til Kauphallarinnar. - jsk
Laugaból selur
í Jar›borunum
FINNBOGI
JÓNSSON
Hættur í stjórn
Samherja.
HUMMER-JEPPAR FRAMLEIDDIR AF GENERAL MOTORS Fyrirtækið hefur tilkynnt
um gríðarlegar sparnaðaraðgerðir. 25 þúsund starfsmönnum verður sagt upp.
JARÐBORANIR Laugaból hefur selt hlut
sinn í Jarðborunum. Atorka, sem er stærsti
hluthafi í Jarðborunum, keypti ekki.