Fréttablaðið - 09.06.2005, Page 31
5FIMMTUDAGUR 9. júní 2005
Vinir vors
og blóma
Stjörnurnar í Hollywood láta ekki
hippatískuna framhjá sér fara.
MTV-kvikmyndaverðlaunin voru afhent
um síðustu helgi og var þar margt um
stjörnur. MTV-verðlaunin eru vafalaust
mun afslappaðri en önnur kvikmyndaverð-
laun, eins og Óskarinn og Golden Globe,
því þar er slegið á létta strengi og stjörnu-
rnar mæta oft í frjálslegri klæðnaði en
tíðkast á öðrum hátíðum. Hippatískan
hefur greini-
lega tröllriðið
Hollywood og
st jörnurnar
skörtuðu sínu
fínasta pússi í
anda forvera
þeirra frá sjö-
unda og átt-
unda áratugn-
um. Litirnir
voru í aðal-
hlutverki og
st jörnurnar
sem voru ekki
litríkar né
h i p p a l e g a r
litu eiginlega
hálf asnalega
út í hefð-
b u n d n u
svörtu fötun-
um sínum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
ET
TY
LINDSAY LOHAN valdi ljósan kjól í stíl við hárið.
JESSICA ALBA er gullfalleg
stúlka og skartaði sínu fínasta í
grænum kjól.
MOLLY RINGWALD keypti sér
fallega bleika mussu sem fer
vel við ljóst hörundið.
NICOLE RICHIE var stórglæsi-
leg í þessum kjól.
SANDRA BULLOCK lét ekki
mikið fyrir sér fara í þessari
vínrauðu mussu.
HILARY SWANK
er sko alvöru
hippi! Og hún er í
appelsínugulu –
frábær blanda.
Kate hefur
mestu áhrifin
CFDA-verðlaunin voru veitt á
dögunum og þar var Vera
Wang kosin kvenhönnuður
ársins.
Hin virtu CFDA-verðlaun voru
veitt fyrr í þessari viku en það er
ráð fatahönnuða í Bandaríkjun-
um sem veitir þau þeim sem hafa
skarað fram úr í tískuheiminum.
Vera Wang vann aðalverðlaunin,
kvenhönnuður
ársins, en hún
hefur aldrei
unnið þau
verðlaun áður.
V e r ð l a u n i n
voru afhent í
bókasafninu í
New York og
er athöfninni
yfirleitt líkt
við Óskars-
verðlaunin –
bara í tísku-
h e i m i n u m .
Marc Jacobs vann verðlaunin
fyrir fylgihluti ársins í þriðja
skiptið og John Varatos var karl-
hönnuður ársins. Diane Von
Furstenberg, drottning vafnings-
kjólsins, var heiðruð fyrir þrjátíu
ár sín í tískubransanum. Fyrir-
sætan Kate Moss vann verðlaun
fyrir að hafa mestu áhrifin á tísk-
una í heiminum. Kate tók við
verðlaununum með stæl í hlýra-
lausum húðlit-
uðum kjól eft-
ir Christian
Dior. Aðrir
sem hafa unn-
ið sömu verð-
laun eru Sarah
Jessica Park-
er og Nicole
Kidman.
Kate Moss leit glæsilega út í kjólnum sín-
um frá Christian Dior.
M
YN
D
/G
ET
TY
Vera Wang ánægð
með verðlaunin eftir-
sóttu.
Diane Von Furstenberg fékk heiðursverð-
laun og var aldeilis ekki ósátt við það eins
og sést.