Fréttablaðið - 09.06.2005, Page 33

Fréttablaðið - 09.06.2005, Page 33
FIMMTUDAGUR 9. júní 2005 ÓDÝRAR GÆÐA ÞAK- SKRÚFUR Ál Ryðfríar Galvaniseraðar Heitgalvaniseraðar Söðulskinnur í úrvali Stórhöfða 33 Sími: 577 4100 Krúttleg sumarkerti með kertadisk Blómaval – Sigtúni Tilboðsverð 990.- Spilar tölvuleiki í stofunni Helgi Þór segist vera IKEA-maður, enda vilji hann flotta hluti sem virka vel. Helgi Þór vill hafa heimili sitt nútímalegt og smart og kveðst ekki vera mikið fyrir gamla hluti. „Mér líður tvímælalaust best í stofunni,“ segir Helgi Þór Arnar- son, annar umsjónarmanna Djúpu laugarinnar 2 á Skjá ein- um. „Þar get ég slappað af og sest fyrir framan sjónvarpið eða tölvuna, og þar er ég með allt, enda minn griðastaður,“ segir Helgi Þór. Hann segist sérstak- lega vera ánægður með hæg- indastólinn sinn, sem hann hefur eytt löngum stundum sofandi í fyrir framan sjónvarpið. „Það er verst að ég hef svo mikið að gera núna að ég hef nánast aldrei tíma til að vera í stofunni að slappa af,“ segir Helgi Þór. Hann segist vera dæmigerður strákur og spila mikið Playstation í stof- unni, og fá félagana til sín í leik. „Félagarnir kíkja til mín annað slagið og við tökum FIFA 2005,“ segir Helgi Þór. Hann segist vilja hafa heimil- ið nútímalegt og smart en ekki vera fyrir gamla hluti. „Ég er mikið fyrir nútímalega og smart hluti sem virka vel, má segja að ég sé svona IKEA-maður. Ég er ekki mikið fyrir hluti í þeim til- gangi að gera umhverfið heimil- islegra, þeir verða það bara með tímanum,“ segir Helgi Þór og bætir við að honum þyki sand- blásið gler sérstaklega flott. „Ég þoli ekki svona uppgerð eldgöm- ul húsgögn, ekki minn stíll.“ kristineva@frettabladid.is Sæng ofin með Aloe Vera HVER BÓMULLARÞRÁÐUR ER VÆTT- UR MEÐ SAFA PLÖNTUNNAR. Aloe Vera-plantan hefur notið fá- dæma vinsælda sem græðandi lækn- ingajurt og hefur verið notuð í krem og drykki en blað plöntunnar inni- heldur yfir 75 næringarefni og yfir 200 virk efni, þar á meðal 20 stein- efni, 18 amínósýrur og 12 vítamín. Fyrirtækið Quilts of Denmark nýtir þessa eiginleika Aloe Vera-plöntunn- ar á nýstárlegan hátt í meðhöndlun á áklæðum utan um hágæða gæsa- dúnsængur og kodda. Hver bómull- arþráður áklæðisins er vættur með safa plöntunnar, sem gefur honum aukna mýkt. Sængur og koddar með efni meðhöndluðu með Aloe Vera gera hana því að sannri lúxusvöru þar sem mýktin og notalegheitin fara saman. Sængurnar og koddarnir fást hjá InnMark.is í Kópavoginum. Sængin inniheldur yfir 75 næringarefni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.