Fréttablaðið - 09.06.2005, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 9. júní 2005
ÓDÝRAR
GÆÐA
ÞAK-
SKRÚFUR
Ál
Ryðfríar
Galvaniseraðar
Heitgalvaniseraðar
Söðulskinnur
í úrvali
Stórhöfða 33
Sími: 577 4100
Krúttleg sumarkerti
með kertadisk
Blómaval
– Sigtúni
Tilboðsverð
990.-
Spilar tölvuleiki í stofunni
Helgi Þór segist vera IKEA-maður, enda vilji hann flotta hluti sem virka vel.
Helgi Þór vill hafa heimili sitt
nútímalegt og smart og kveðst
ekki vera mikið fyrir gamla
hluti.
„Mér líður tvímælalaust best í
stofunni,“ segir Helgi Þór Arnar-
son, annar umsjónarmanna
Djúpu laugarinnar 2 á Skjá ein-
um. „Þar get ég slappað af og
sest fyrir framan sjónvarpið eða
tölvuna, og þar er ég með allt,
enda minn griðastaður,“ segir
Helgi Þór. Hann segist sérstak-
lega vera ánægður með hæg-
indastólinn sinn, sem hann hefur
eytt löngum stundum sofandi í
fyrir framan sjónvarpið. „Það er
verst að ég hef svo mikið að gera
núna að ég hef nánast aldrei
tíma til að vera í stofunni að
slappa af,“ segir Helgi Þór. Hann
segist vera dæmigerður strákur
og spila mikið Playstation í stof-
unni, og fá félagana til sín í leik.
„Félagarnir kíkja til mín annað
slagið og við tökum FIFA 2005,“
segir Helgi Þór.
Hann segist vilja hafa heimil-
ið nútímalegt og smart en ekki
vera fyrir gamla hluti. „Ég er
mikið fyrir nútímalega og smart
hluti sem virka vel, má segja að
ég sé svona IKEA-maður. Ég er
ekki mikið fyrir hluti í þeim til-
gangi að gera umhverfið heimil-
islegra, þeir verða það bara með
tímanum,“ segir Helgi Þór og
bætir við að honum þyki sand-
blásið gler sérstaklega flott. „Ég
þoli ekki svona uppgerð eldgöm-
ul húsgögn, ekki minn stíll.“
kristineva@frettabladid.is
Sæng ofin með Aloe Vera
HVER BÓMULLARÞRÁÐUR ER VÆTT-
UR MEÐ SAFA PLÖNTUNNAR.
Aloe Vera-plantan hefur notið fá-
dæma vinsælda sem græðandi lækn-
ingajurt og hefur verið notuð í krem
og drykki en blað plöntunnar inni-
heldur yfir 75 næringarefni og yfir
200 virk efni, þar á meðal 20 stein-
efni, 18 amínósýrur og 12 vítamín.
Fyrirtækið Quilts of Denmark nýtir
þessa eiginleika Aloe Vera-plöntunn-
ar á nýstárlegan hátt í meðhöndlun á
áklæðum utan um hágæða gæsa-
dúnsængur og kodda. Hver bómull-
arþráður áklæðisins er vættur með
safa plöntunnar, sem gefur honum
aukna mýkt. Sængur og koddar með
efni meðhöndluðu með Aloe Vera
gera hana því að sannri lúxusvöru
þar sem mýktin og notalegheitin fara
saman. Sængurnar og koddarnir fást
hjá InnMark.is í Kópavoginum.
Sængin inniheldur yfir 75 næringarefni.