Fréttablaðið - 09.06.2005, Blaðsíða 38
„Áður en ég keypti Álfastein var reksturinn
stopp í nokkra mánuði. Álfasteinn rekur sögu
sína allt aftur til ársins 1981. Sú hefð sem hefur
skapast í að gera listmuni og viðurkenningar
tryggir mér marga fasta viðskiptavini. Stefnt er
að því að bæta við rekstur Álfasteins og við
erum að sérhæfa okkur í íslenska leirsteinin-
um,“ segir Steinn Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Álfasteins í Borgarfirði eystri.
„Hliðargrein Álfasteins er skiltagerð og höf-
um við í þeirri framleiðslu þjónustað Austur-
landið. Áformað er að hinn 17.
júní verði opnað kaffihús í Álfa-
steini og verður þá mikið um
dýrðir. Borgarfjörður eystri er
hálfgerður endapunktur ferða-
langa og upplagt fyrir þá að
setjast hér niður og fá sér
kaffi. Þó að hér sé aðeins
hægt að komast eina leið á
landi er umferðin hingað tölu-
vert mikil, sem hefur komið mér á óvart. Hér er
mikil náttúruparadís og ég horfi því björtum
augum til framtíðarinnar með rekstur Álfasteins.
Þegar Álfasteinn byrjaði var hér mikið unnið úr
hörðum gljáandi steintegundum svo sem jaspis, sem
mikið er af á þessu svæði. Líparítið er einnig al-
gengt hérna og er gríðarlega gott úrvinnsluefni
fyrir okkur. Líparítið hefur mikinn fjölbreytileika
í útliti og áferð og er orðið grunnurinn að fram-
leiðslunni hjá Álfasteini.“
4 ■■■ { AUSTURLAND } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Tískuvöruverslunin Sentrum ehf í hjarta bæjarins,
gott verð og gott úrval. Föt á alla fjölskylduna.
Komið við og verið flott í sumar.
SENTRUM
sími 471 2412
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Heilsugæslustöðin á Reyðarfirði: Heilsugæslulæknir
Staða yfirlæknis við heilsugæslustöðina á Reyðarfirði er laus til umsóknar. Staðan veitist frá
1. febrúar 2005 eða eftir nánari samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2005. Miðað
er við að umsækjendur séu sérfræðingar í heimilislækningum en einnig kæmu til greina sér-
fræðingar í öðrum greinum svo og læknar með lækningaleyfi. Heilsugæslustöðin er í nýju og
góðu húsnæði sem tekið var í notkun í ársbyrjun 2004.
Á Reyðarfirði búa nú um 700 manns. Vegna byggingar álvers verður þar tímabundin fjölgun
næstu 3-4 ár um allt að 1.800 manns og síðan varanleg fjölgun í byggðarlaginu. Fjórðungs-
sjúkrahúsið í Neskaupsstað er í um það bil 35 km. fjarlægð og þar eru skurðlæknir, lyflæknir
og svæfingalæknir. Heilsugæslustöð á Eskifirði er í 15 km. fjarlægð með sérfræðing í heimil-
islækningum.
Nánari upplýsingar um starfið veita Stefán Þórarinsson lækningaforstjóri í síma 471-1400,
892-3095 (netf: stefanth@hsa.is) og Þórir Aðalsteinsson, rekstrarstjóri, sími 476-1432,
860-6848 (netf: thorir@hsa.is).
Opið alla daga kl. 11-17. Þjóðháttadagar og lifandi dagskrá fyrir alla
fjölskylduna annan hvern laugardag í sumar.
11. júní – jurtalitun 23. júlí – fjallagrasaferð
25. júní –útsaumur 6. ágúst – útsaumur
9. júlí – þjóðdansar 20. ágúst – Safnanótt
Sjá frekari upplýsingar á heimasíðu safnsins; www.minjasafn.is
Minjasafn Austurlands, Laufskógum 1, Egilsstaðir. Sími 471-1412.
Bjóðum kaffi og kökur, öl og smurt brauð
alla daga ásamt fersku og góðu meðlæti.
Verið ávallt velkomin
FÓLK
Á FERÐ OG FLUGI
Alla daga
nýtt brauð frá bakaríi …strax í bítið!
Súpa & brauð í hádeginu virka daga
Er með heit brauð m/fyllingu
Tertur og nóg að borða
H
ér
að
sp
re
nt
Opið frá kl. 8- 18 virka daga
10 - 18 um helgar
Kaffihús í hjarta bæjarins
Listamenn allt árið um kring
Líttu við, þú sérð ekki eftir því!
Er með sæti fyrir allt að 39 manns!
Mikil fjallafegurð og fuglalíf
Jóhanna Borgfjörð hefur
um áratugaskeið rekið veit-
ingasölu og farfuglaheimili
við Borgarfjörð eystri.
„Ég hef rekið veitingasölu í Fjarðar-
borg sem er opin júní, júlí og ágúst
á ári hverju. Veitingasalan er ekki
eingöngu bundin við Fjarðarborg
því algengt er að við færum göngu-
hópum mat í skálana í Breiðuvík og
Húsavík. Gönguhóparnir eru yfir-
leitt hér á vegum Ferðafélags Ís-
lands eða Ferðafélags Fljótsdalshér-
aðs. Það er einnig nokkuð um að
einstaklingar skipuleggi gönguhópa
sem fá matarþjónustu hjá okkur.
Hér í Bakkagerði er einnig farfugla-
heimilið Ásbyrgi, sem er opið allt
árið þó að traffíkin sé mest á sumr-
in. Hingað sækir fjöldi útlendinga í
fugla- eða náttúruskoðun. Þeir
sækja mikið í Hafnarhólmann, þar
sem er friðuð fuglabyggð. En þeir
hafa ekki uppgötvað gönguleiðirnar
hérna ennþá,“ segir Jóhanna Borg-
fjörð, ábúandi að bænum Brekkubæ
í Borgarfirði eystri og eigandi Veit-
ingasölunnar Fjarðarborgar og far-
fuglaheimilisins Ásbyrgis.
„Hér á Borgarfirði eystri er mikil
fjallafegurð og töluvert af láglendi.
Á sumrin er hér mikil veðursæld
þegar sunnanáttin er komin. Norð-
anáttin er hins vegar köld og hér
geta verið kaldir vetur þó að
stundum komi hér hlýir veðurkafl-
ar. Við gætum því tekið á móti
miklu fleira fólki þó að leiðin
hingað um Njarðvíkurskriður sé
nokkuð hrikaleg ásýndar. Ég hef
þó aldrei fundið til hræðslu við að
keyra hingað um Njarðvíkurskrið-
ur og er sennilega öruggari þar en
á labbi á Laugaveginum í Reykja-
vík,“ segir Jóhanna.
Fáir staðir jafn ríkir
af steinefnum
Steinn Eiríksson festi kaup á Álfasteini fyrir rúmu ári og hefur mikla trú á
framtíð fyrirtækisins.
Gisting við höfnina á Höfn
Hvammurinn er eitt af eldri og
virðulegri húsum á Höfn. Hann
stendur niðri við höfn þar sem hjar-
ta bæjarins slær. Halldór Sævar
Birgisson er eigandi Hvammsins.
Þar rekur hann gistiheimili og reið-
ir fram morgunverð. Kveðst geta
tekið um 40 manns í gistingu enda
sé hann líka með annað hús í nokk-
urra metra fjarlægð. Það heitir Sól-
hóll og stendur uppi á hólnum sem
Hvammurinn stendur undir.
Jóhanna Borgfjörð er ábúandi að Brekkubæ í Borgarfirði eystri.
Hvammurinn hefur átt sín blóma- og
hnignunarskeið. Fyrst var það íbúðarhús
útgerðarmanna, síðan hótel sem nefnt var
Skálholt og á tímabili verbúð sem gekk
undir nafninu Skakkinn. Nú er þar glæsilegt
gistiheimili. Sólhóll er með rauða þakinu.
Guðrún Sævarsdóttir, afgreiðslumaður hjá
Álfasteini í Borgarfirði eystri, er hér með
nokkra gripi úr framleiðslunni.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
FRÉTTABLAÐIÐ/ÍSAK