Fréttablaðið - 09.06.2005, Qupperneq 43
„Gunnar skáld Gunnarsson bjó
lengi erlendis en kom aftur til föð-
urlandsins og þegar Skriðuklaustur
í fæðingarsveit hans varð falt árið
1938 keypti hann jörðina og byggði
þetta merkilega hús. Þau hjónin
gáfu ríkinu Skriðuklaustur 1948 og
fluttu til Reykjavíkur, þar sem þau
bjuggu til æviloka,“ segir Gunnar
Gunnarsson, móttökufulltrúi að
Skriðuklaustri. Gunnar segist þrátt
fyrir nafnið ekkert vera skyldur
Gunnari skáldi.
„Gunnarshús þykir hafa mjög sér-
kennilegan byggingarstíl, enda
hannað af þýskum arkitekt þar sem
blandast saman bæverskur alpastíll
og danskur herragarðsstíll. Eitt af
sérkennum hússins er útveggirnir,
en valin var sú leið við byggingu
þeirra að hlaða upp hálfþurri stey-
pu og leggja í hana steina sem
höfðu verið þvegnir og vírburstað-
ir. Útveggirnir eru óvenju þykkir,
um 80 cm þar sem þeir eru þykkast-
ir. Húsið kostaði jafnmikið og tíu
einbýlishús í Reykjavík á sama
tíma,“ segir Gunnar.
„Svalir voru ekki byggðar við
Gunnarshús fyrr en á áttunda ára-
tugnum. Svo virðist sem bygging-
arefnið í svölunum sé verra en í
upphaflega húsinu. Frá því að sval-
irnar voru byggðar hefur þurft að
gera á þeim lagfæringar, en ekki á
eldri byggingunni,“ segir Ragna
Fanney Jóhannsdóttir, móttökufull-
trúi að Skriðuklaustri.
„Á hverju sumri erum við með 2-3
stórar listasýningar að Gunnarshúsi
í Skriðuklaustri í Fljótsdal. Þann 7.
maí til 20. júlí stendur yfir sýning á
Snæfelli í íslenskri myndlist, allt frá
árinu 1916 yfir í verk sem eru að-
eins nokkurra vikna gömul. Síð-
sumars verðum við með sýningu
sem verður byggð á fornleifaupp-
greftri sem hefur staðið yfir hér úti
á túni. Þar er verið að grafa upp
rústir munkaklaustursins sem hér
stóð. Munkaklaustrið var stofnað
1493 í Ágústínusarreglu en lagt af
1552 vegna siðaskiptanna. Hér á
Skriðuklaustri er einnig íbúð fyrir
lista- og fræðimenn og eru þeir
ekki rukkaðir um aðstöðuna, heldur
er ætlast til að þeir skili einhverju
til hússins í formi fyrirlestra, sýn-
inga í galleríinu eða jafnvel verka
sem þeir skilja eftir,“ segir Gunnar.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { AUSTURLAND } ■■ 9
LAGARFLJÓTSORMURINN
Lagarfljótsormurinn siglir sumarlangt frá Atlavík
Útsýnisferðir
Grillferðir
Skemmtiferðir
Árshátiðir
Upplýsingar og bókanir:
Sími 471-2900 Fax 471-2901
Netfang : ferja@ormur.is veffang. www.ormur.is
Léttar veitingar/Bar
Lifandi tónlist„Á Stöðvarfirði er víðfrægt steina-safn í Sunnuhlíð, í garði og íbúðar-
húsi Petru Sveinsdóttur. Petra hef-
ur búið þar frá árinu 1946, en
steinasöfnun hefur verið áhugamál
hennar frá barnæsku. Allt að tutt-
ugu þúsund ferðamenn sækja safn-
ið heim á ári hverju og leggja
margir á sig krók eingöngu til að
heimsækja safnið,“ segir Hrafn-
hildur Ýr Víglundsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Austurbyggðar.
„Á Stöðvarfirði er einnig merkilegt
gistiheimili, Kirkjubær, sem er í af-
helgaðri kirkju. Á Stöðvarfirði eru
búsettir margir lærðir listamenn, til
dæmis er hægt að sjá afraksturinn
af verkum þeirra í Gallerí Snærós.
Hjónin Sólrún Friðriksdóttir og
Ríkharður Valtingojer, hafa bæði
verið að vinna grafísk listaverk, en
Valtingojer er austurrískur. Anna
Hrefnudóttir áformar að opna
vinnustofu á Stöðvarfirði, en hún
vinnur aðallega akrýlverk og
ferðalangar geta barið verk hennar
augum í sumar.“
STEINASAFNIÐ á hvergi sinn líka
Það er skylda þeirra sem leið eiga um Stöðvarfjörð að skoða Steinasafn Petru, sem er eitt stærsta
og glæsilegasta steinasafn í einkaeigu í heiminum.
Steinasafn Petru Sveinsdóttur á Stöðvarfirði er í garðinum og íbúðarhúsinu á heimili
hennar.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/Í
sa
k
Blanda af bæverskum og dönskum stíl
Skriðuklaustur er yngsta klaustur á Íslandi og það eina á Austurlandi. Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri, sem flestir kannast við, er frá árinu 1939,
byggð af Gunnari Gunnarssyni skáldi.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/Í
sa
k
Gunnar Gunnarsson og Ragna Fanney Jóhannsdóttir, móttökufulltrúar á Skriðuklaustri.
Eitt af sérkennum Gunnarshúss á Skriðuklaustri er útveggirnir.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/Í
sa
k