Fréttablaðið - 09.06.2005, Síða 58
9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
> Við hrósum ...
... Tryggva Guðmundssyni sem átti frábært
kvöld með íslenska landsliðinu í
gærkvöldi. Hann sýndi og
sannaði að það er ekki
sjálfgefið að menn sem spila
hér heima eigi ekkert
erindi í íslenska
landsliðið. Hann skoraði
sitt tíunda
landsliðsmark og var
óheppinn að bæta ekki
fleirum við.
Heyrst hefur ...
... að allt sé á öðrum endanum í Víkinni
eftir að Sigurður Jónsson, þjálfari liðsins,
losaði sig við þá Vilhjálm Vilhjálmsson og
Stefán Örn Arnarson. Svo er FH-ingurinn
Pétur Óskar Sigurðsson farinn að láni til
ÍBV og veitir þeim ekki af liðsstyrknum í
sóknina.
sport@frettabladid.is
30
> Við bíðum spenntir ...
.... eftir að sjá hvernig íslenski landsliðs-
hópurinn verður skipaður í haust
þegar liðið verður kallað
saman á ný. Munu Ásgeir og
Logi treysta enn og aftur á
þekktu stærðirnar eða
gefa nýju mönnum
sem stóðu sig svo vel í
vikunni áfram tækifæri?
Íslenska landsli›i› í knattspyrnu bjarga›i flví sem bjarga› var› eftir bagalega
ni›urstö›u gegn Ungverjum um helgina. Íslendingar skoru›u fjögur gó› mörk
gegn Maltverjum og juku sjálfstrausti› a›eins fyrir lokasprettinn.
Loksins þrjú stig í húsi
FÓTBOLTI Eftir að öll íslenska varn-
arlínan var þurrkuð út í leiknum
gegn Ungverjum á laugardag var
kominn nýr grunnur í íslenska lið-
ið. Auðun Helgason var kallaður í
landsliðið og settur í byrjunarliðið
og var í vörninni ásamt Stefáni,
Arnari Þór og Grétari sem allir
voru á miðjunni gegn Ungverjum.
Eftir fremur rólega byrjun þar
sem íslenska liðið er einfaldlega að
þreifa fyrir sér virðist vörnin eilít-
ið óstyrk en henni vex ásmegin eft-
ir því sem líður á leikinn.
En þessar fyrstu 25 mínútur
voru erfiðar. Maltverjar pakka sex
mönnum í vörn og aðrir þrír eru
ekki langt undan. Og íslenska liðið
virðist ráðþrota. Eini maðurinn
sem virðist geta gert eitthvað er
Eiður Smári Guðjohnsen sem
reynir hvað hann getur að sækja
boltann aftur og spila honum fram.
Það gengur erfiðlega.
En eftir fyrsta markið sem
Gunnar Heiðar skorar eftir frá-
bæra sendingu Tryggva virðist ís-
inn brotinn og restin kemur sjálf-
krafa. Eiður skorar gott mark þar
sem boltanum er fleytt í gegnum
maltnesku vörnina og snertir
aldrei jörðina fyrr en hann hefur
sungið sitt lag í netmöskvanum.
Íslendingar voru þó heppnir að
fá ekki á sig mark skömmu áður en
þeir skora sitt fyrsta er hinn skjóti
Mifsud kemst fram hjá Árna Gauti
í markinu eftir langt úthlaup hans.
Stefán Gíslason stendur vaktina á
línunni og Árni Gautur er fljótur
aftur. Undir lok hálfleiksins bjarg-
ar svo Auðun Helgason stórkost-
lega er George Mallia er við það að
setja boltann í autt mark Íslend-
inga eftir góða fyrirgjöf Mifsud.
Síðari hálfleikur byrjar eins og
sá fyrri. Rólegur og lítið að gerast.
Þar til að Maltverjar skora að því
er virðist fyrirvaralaust. Íslend-
ingar vakna upp við vondan draum
og hysja upp um sig brækurnar og
klára leikinn. Eftir þriðja markið,
sem Tryggvi Guðmundsson skorar
eftir að hafa skotið tvisvar í tré-
verkið, er leiknum lokið. Íslend-
ingar taka öll völd og eru óheppnir
að skora aðeins eitt í viðbót.
Það var gaman að sjá „minni
spámenn“ fá sitt tækifæri í ís-
lenska landsliðinu og voru það þeir
sem héldu leik íslenska liðsins á
floti allt til lokamínútunnar. Vara-
mennirnir áttu mjög fína innkomu
og Veigar Páll átti frábæran
lokakafla í leiknum. Vörnin stóð
fyrir sínu og ánægjulegt að sjá að
það sé hægt að sjóða saman ágæta
vörn með ekki lengri fyrirvara.
Það hefði þó sjálfsagt horft öðru-
vísi við ef andstæðingurinn hefði
verið sterkari. Tryggvi átti frá-
bæra innkomu í íslenska landsliðs-
ins og naut sín til hins ítrasta. Það
var unun að fylgjast með honum.
En þegar öllu er á botninn
hvolft anda allir eilítið léttar, þó
sérstaklega landsliðsþjálfararnir
og forráðamenn KSÍ. Þeim tókst að
bjarga andliti íslenska boltans þó
ekki sé nema um stundarsakir.
eirikurst@frettabladid.is
„Ég var búinn að plana það að skora tí-
unda landsliðsmarkið fyrir löngu, svo
maður verður að standa við stóru orðin.
Ég er mjög ánægður með mitt framlag
hérna í dag. Ég næ að skora
mark og leggja önnur tvö, svo
að ég vona að ég sé ekki að
spila minn síðasta landsleik. Ég hefði
líka viljað sjá skotið mitt sem fór í
slána fara inn. Eiður sagði mér að
það hefði munað nokkrum senti-
metrum, en svona er boltinn,“ sagði
Tryggvi Guðmundsson sem varð í
gær tíundi leikmaðurinn frá upphafi
sem skorar 10 A-landsliðsmörk.
Tryggvi skoraði fyrsta markið sitt í
fyrsta landsleiknum sínum gegn
Færeyjum 27. júlí 1997 og það
tíunda í sínum 35. landsleik á
Laugardalsvellinum í gær.
Það hafa aðeins þrír
leikmenn verið fljót-
ari að skora tíunda
markið sitt, Rík-
harður Jóns-
son náði því í
14. leiknum,
Eiður Smári
Guðjohnsen í
þeim þrítug-
asta og Ríkharður
Daðason skoraði sitt
10. mark í sínum 32.
landsleik.
Tryggvi hefur skorað
fimm mörk í fyrstu
fjórum leikjum
Landsbankadeildar-
innar og þessi mikli markaskorari nýtti
tækifærið í landsliðinu vel í gær en
hann skilaði, auk marks og tveggja
stoðsendinga, fyrirliðastöðunni síðustu
tíu mínútur leiksins.
„Maður heyrir raddirnar í stúkunni
þegar fólk er orðið pirrað á því hvað
okkur gengur illa að brjóta niður
þessa 6-3-1 vörn hjá þeim sem er
auðvitað mjög erfið við að eiga. Það er
bara þolinmæðisvinna að brjóta svona
vörn á bak aftur og hún bíður ekki upp
á neina samba-knattspyrnu, en við náð-
um að setja fjögur mörk á þá og klára
þetta,“ segir Tryggvi sem skoraði þarna í
þriðja landsleiknum í röð gegn Möltu-
búum sem ættu að vera farnir að kann-
ast vel við kappann.
MARKAHRÓKURINN TRYGGVI GUÐMUNDSSON: 10. LEIKMAÐURINN SEM SKORAR 10 LANDSLIÐSMÖRK
Vonandi ekki minn sí›asti landsleikur
4–1
Laugardalsv., áhorf: 4887 Skomina, Slóveníu (5)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 16–14 (13–7)
Varin skot Árni Gautur 6 – Gauci 7
Horn 3–2
Aukaspyrnur fengnar 15–22
Rangstöður 5–0
1–0 Gunnar Heiðar Þorvaldsson (28.)
2–0 Eiður Smári Guðjohnsen (34.)
2–1 Brian Said (59.)
3–1 Tryggvi Guðmundsson (75.)
4–1 Veigar Páll Gunnarsson (85.)
Ísland Malta
FRAMMISTAÐA ÍSLENSKU LEIKMANNANNA GEGN MÖLTU
MARKIÐ:
ÁRNI GAUTUR ARASON 5
Virkaði ekki sannfærandi og hefði ekki átt
að missa boltann frá sér í markinu.
VÖRNIN:
GRÉTAR RAFN STEINSSON 7
Ekkert upp á hann að klaga varnarlega
og sótti hart fram þegar þar átti við. Skil-
aði boltanum ágætlega frá sér og var
enginn duglegri en hann að prjóna sig í
gegnum vörn Möltu.
STEFÁN GÍSLASON 8
Var mjög traustur og hafði góð tök á
Mifsud, hættulegasta manni Maltverja.
Var eilítið óöruggur í byrjun, eins og bú-
ast mátti við.
AUÐUN HELGASON 7
Kom beint í byrjunarliðið eftir að hafa
verið kallaður skyndilega í hóp um helg-
ina. Átti fínan dag og var traustvekjandi.
ARNAR ÞÓR VIÐARSSON 6
Var mjög ferskur framan af en róaðist eft-
ir að Íslendingar skora mörkin. Náði ein-
staklega vel saman með Tryggva og Eið.
MIÐJAN:
BRYNJAR BJÖRN GUNNARSSON 6
Duglegur eins og alltaf. Gekk illa að skila
boltanum frá sér eins og alltaf.
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN 8
Algjör lykilmaður í liðinu. Var eini
maðurinn sem gerði eitthvað í stöðunni
0–0 en lét lítið á sér bera eftir að
sigurinn var tryggður. Skoraði gott mark.
(81., Helgi Valur Daníelsson, –): Átti
góða innkomu og var óheppinn að skora
ekki.
KÁRI ÁRNASON 5
Náði sér aldrei almennilega á strik og var
lítið áberandi í leiknum. (63., Jóhannes
Harðarson, 6): Átti náðugan dag í sínum
fyrsta landsleik og stóð sig ágætlega.
SÓKNIN:
VEIGAR PÁLL GUNNARSSON 7
Var lengi að vinna sig inn í leikinn en átti
frábæran lokakafla þar sem hann lagði
upp eitt mark og skoraði annað. Kemst
langt á því.
GUNNAR HEIÐAR ÞORVALDSSON 7
Skoraði gott mark sem kom Íslendingum
á sporið og lagði upp mark númer tvö. Var
annars í strangri gæslu og fékk úr fremur
litlu að moða. (63., Hannes Þ.
Sigurðsson, –): Nýtti sínar mínútur vel.
TRYGGVI GUÐMUNDSSON 8
Maður leiksins. Átti frábæran dag, lagði
upp tvö mörk og skoraði eitt sjálfur, auk
þess að skjóta tvisvar í tréverkið. Tryggvi
naut sín til hins ýtrasta og var hrein unun
að fylgjast með honum.
ALLIR MARKASKORARNIR SAMANKOMNIR Markaskorarar Íslands í gær, Tryggvi Guðmundsson (til hægri), Gunnar Heiðar Þorvaldsson,
Veigar Páll Gunnarsson (7) og Eiður Smári Guðjohnsen (9) fagna marki þess síðastnefnda ásamt Grétari Rafni Steinssyni (2)
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR