Fréttablaðið - 09.06.2005, Síða 68
40 9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
VEITINGASTAÐURINN
LA PRIMAVERA
AUSTURSTRÆTI 9, 101 REYKJAVÍK
Spergilkálið og blómkálið snyrt og skipt í
kvisti. Soðið í saltvatni í 3-4 mínútur og
síðan látið renna vel af því. Olía,
hvítlaukur, rósmarín, pipar og salt sett í
skál og hrært saman. Spergilkálið og
blómkálið sett í skálina og blandað vel.
Látið standa nokkra stund og hrært öðru
hverju. Grillið hitað. Kálið sett í
wok-pönnu fyrir grill (með götum), í
vírgrind eða á grillbakka úr áli og grillað
við góðan hita í nokkrar mínútur, eða þar
til það er farið að brúnast og komið
grillbragð af því. Hrært eða snúið
nokkrum sinnum á meðan. Borið fram
heitt með grilluðu kjöti, kjúklingi eða fiski.
400 g spergilkál
400 g blómkál (nota má
eingöngu aðra tegundina)
salt
4 msk. ólífuolía
1 hvítlauksgeiri, pressaður
2 tsk. ferskt rósmarín
eða 1/2 tsk. þurrkað
nýmalaður pipar
Fleiri ljúffengar uppskriftir og fróðleikur á www.islenskt.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
G
RA
2
85
65
06
/2
00
5
Grillaðspergilkál
og blómkál
Hvernig er stemningin: La Prima-
vera er flottur staður með glæsilegt
útlit en engu að síður er þar létt og
óformleg stemning. Þar er boðið
upp á norður-ítalskan mat og létt
djasstónlist gerir andrúmsloftið
þægilegt. Bæði er boðið upp á fjöl-
breyttan hádegismatseðil og spenn-
andi kvöldverð. Staðurinn státar
einnig af einstöku úrvali ítalskra
vína.
Matseðillinn: Fjölbreytni er lykil-
orðið og breytist kvöldverðarmatseð-
illinn að meðaltali á eins og hálfs
mánaðar fresti. Meðal þess sem
finna má á matseðlinum er ekta
ítalskt góðgæti eins og ferskt heima-
lagað pasta, risotto og gnocchi.
Einnig er boðið upp á fisk, fugl og
villibráð og fer úrvalið eftir því
ferskasta hverju sinni.
Vinsælast: Grillaður skötuselur
með parmesan risotto, vorlauk,
stökku beikoni og rauðvínsjus er vin-
sælasti réttur staðarins í dag.
Réttur dagsins: Í hádeginu er
boðið upp á súpu dagsins og fisk
dagsins. Á kvöldin er fimm rétta
valmatseðill matreiðslumeistarans
og breytist innihald hans frá degi til
dags.
Ítölsk matarger› úr íslensku hráefni
Uppáhalds uppskrift Valentínu
Björnsdóttur, framkvæmdastjóra
Móður náttúru, er suðrænn sil-
ungur með góðu meðlæti. „Það er
samt árstíðabundið hvað er í upp-
áhaldi hjá mér. Nú er silunga-
veiðitíminn og þá er svo gaman að
elda hann,“ segir Valentína. Móðir
náttúra er fyrirtæki sem fram-
leiðir grænmetisrétti sem seldir
eru í matvöruverslunum, á spítöl-
um og leikskólum. Hvatinn að
stofnun fyrirtækisins var einfald-
lega sá að Valentínu finnst svo
óskaplega gaman að gefa fólki að
borða. Hún hefur alltaf haft mik-
inn áhuga á matargerð og byrjaði
að elda aðeins tíu ára gömul. „Mat-
argerð er sköpun og ég fæ ákveðna
útrás fyrir sköpunarþörfina í eld-
húsinu,“ segir Valentína. Henni
finnst gaman að gera mat úr því
sem til er, því það mikilvægasta sé
að leggja alúð við matseldina. Til
að eldamennskan heppnist vel
finnst henni skipta mestu máli að
eiga vandað hráefni í ísskápnum;
gott grænmeti og góða piparkvörn.
Einnig finnst henni gaman að leika
sér með ýmsar tegundir olíu og ed-
iks út á salat. „Ég borða mikið sal-
at og það er hægt að gera salat á
svo margan hátt, allt eftir hráefn-
inu og dressingunni.“ Valentína
segir að þótt hún sé með silung í
uppskriftinni þá passi meðlætið
einnig mjög vel með kjúklingi eða
grænmetisbuffum. Hún segir að
grænt salat eigi líka mjög vel með
réttinum.
SUÐRÆNN SILUNGUR
MEÐ GÓÐU MEÐLÆTI
Silungsflök
Olía
Hvítlaukur (magn fer eftir
smekk)
Sítróna
Grófmulinn svartur pipar
Salt
Berið olíu á silunginn, setjið
grófsaxaðan hvítlaukinn, svartan
pipar og sítrónusafa yfir og látið
marinerast í 30 mínútur. Sjóðhitið
olíu á pönnu og steikið fiskinn
fyrst með roðhliðina upp.
Saltið eftir á og kreistið
sítrónusafa yfir.
TÓMAT OG PAPRIKUSÓSA
ÆTTUÐ FRÁ MIÐJARÐARHAFINU
Fyrir ca. 4
Olía
1 vænn laukur sneiddur
6-7 tómatar skornir í bita
1 rauð paprika sneidd
1 græn paprika sneidd
1 lúka steinselja
salt
svartur pipar
Hitið olíu í potti, setjið laukinn
út í og steikið hann í 5 mínútur,
hrærið í af og til. Bætið restinni
af grænmetinu út í pottinn og lát-
ið malla saman í ca. 30 mínútur
með lokið á pottinum. Hrærið í
með ást og umhyggju. Salt og pip-
ar eftir smekk.
SELLERÍMÚS
Fyrir ca. 4
1 Selleryrót
Mjólk
Smjörklípa
Smá hvítur pipar
Salt
Afhýðið sellerírótina, skerið
hana í litla bita og setjið í pott.
Bætið mjólkinni út í svo rétt fljóti
yfir. Látið sjóða á lágum hita í um
það bil 30-40 mínútur. Þegar sell-
erírótin er orðin mjúk er þetta
stappað saman. Svo er smjörinu
bætt við, saltað og piprað eftir
smekk. Það er best að mauka
þetta saman í matvinnsluvél.
Hjartað slær í eldhúsinu
VALENTÍNA getur gleymt sér tímunum saman við að finna upp nýja rétti og eldar ávallt með ást og umhyggju.
Hvaða matar gætir þú síst verið án?
Ég nota rauðlauk og svartan pipar
mikið til bragðbætingar. En án osts
gæti ég ekki verið. Osturinn er lúmsk-
ur og þá er ég að tala um allar gerðir
af ostum alveg frá kotasælu og í vel
geymdan þroskaðan ost. Það er hægt
að nota hann í matargerð af öllu tagi
til að gefa bragð.
Fyrsta minningin um mat? Þegar ég
var lítil þá elskaði ég grænar baunir og
ég man eftir því að hafa fundist nauta-
tunga góð.
Besta máltíð sem þú hefur fengið?
Ég hugsa að allur matur sé lostæti sé
hann eldaður rétt en það sem skiptir
höfuðmáli að mínu mati er stemmn-
ingin. Þarafleiðandi eru það hátíðir
með fjölskyldu og vinum sem gera
matinn sérstakan og minnisverðan.
Er einhver matur sem þér finnst
vondur? Amma kenndi mér að
smakka áður en ég dæmi. Ég elska að
smakka nýjan mat og finnst í rauninni
voða fátt vont. En ég á mjög erfitt
með að borða mat þar sem ég
sé andlitið á dýrinu eins og
svið. En mér finnst kjötið virki-
lega gott og sviðasulta lostæti.
Leyndarmál úr eldhússkápn-
um? Töfratækið mitt er án efa
kekkjutryllir.
Hvað borðar þú þegar þú
þarft að láta þér líða
betur? Ég geri sérstakan
snakkrétt með alls konar
sósum, ostum og
kryddi. Svo geri ég
heimatilbúinn bragð-
aref með fullt af
súkkulaði og lostæti.
Hvað áttu alltaf í ískápnum?
Ég vil alltaf eiga nóg af ávöxt-
um og er einmitt þessa dag-
ana að prufa mig áfram í hinum ýmstu
tegundum ávaxta.
Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvaða
rétt myndir þú taka með þér?
Ég tæki rétt sem Adda mamma
væri búin að að fylla af sinni
föngulegu piparostasveppa-
allskonarsósu.
Hvað er það skrítnasta
sem þú hefur borðað?
Það var án efa þegar ég var
í Kína. Þar þykir mikil óvirð-
ing að bragða ekki á því
sem manni er boðið. Ég
hafði ekki hugmynd um
hvað það var sem ég setti
upp í mig, en það var virki-
lega furðulegt í laginu og
mjög undarlegt á bragðið.
En eins og ég lærði af
ömmu gömlu þá á maður
víst að smakka áður en mað-
ur dæmir.
MATGÆÐINGURINN HALLDÓRA RUT BJARNADÓTTIR DAGSKRÁRGERÐAKONA
Elska›i grænar baunir sem barn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I