Fréttablaðið - 09.06.2005, Síða 72
44 9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Þessi plata er búin að hræra svo
upp í heilanum á mér að ég hef
lent í því að eiga erfitt með að tjá
mig eftir hlustun á henni. Hún er
svo mikið áreiti á heyrnina að það
tekur nokkrar hlustanir að gleypa
hana og fleiri til þess að melta al-
mennilega.
Þegar ég sá Four Tet á Airwa-
ves-hátíðinni núna síðast fannst
mér hann leiðinlegur, sem var
undarlegt í ljósi þess að ég var
mjög hrifinn af Rounds-plötunni.
Ég sá hann svo aftur hérna í
London síðasta laugardag þar sem
hann barðist meira fyrir að
skemmta þeim sem voru mættir,
og var miklu skemmtilegri fyrir
vikið.
Á þessari nýju plötu sinni, Ev-
erything Ecstatic, setur hann
sjálfum sér ný viðmið. Segir skilið
við kassagítarelektróník Rounds-
plötunnar og nær að matreiða full-
kominn sambræðing tilraunasargs
og melódískrar raftónlistar. Þetta
er ótrúlega heilsteypt verk og
vandað. Kieren Hebden, sem gef-
ur út undir listamannanafninu
Four Tet, er jafn mikill hljóðlista-
maður og hann er tónlistarmaður.
Hann er líka magnað tónskáld.
Tónarnir verða til í kollinum á
honum og í gegnum tölvuna nær
hann að móta hugmyndir sínar í
hljóðheiminn. Ég er viss um að ef
hann yrði blindur gæti hann ekki
haldið áfram að gera tónlist.
Tölvuskjárinn er of mikilvægur
aðstoðarmaður til þess.
Þetta er ótrúleg plata, líklega
ein sú besta sem við eigum eftir að
heyra á þessu ári. Kieren er
nokkrum kílómetrum á undan öðr-
um tónlistargrúskurum. Hann er
undrabarn sem barnabörn okkar
munu lesa um í sögubókum.
Birgir Örn Steinarsson
Tímamótaplata
FOUR TET: EVERYTHING ECSTATIC
NIÐURSTAÐA: Ekki bara ein magnaðasta plata
sem hefur komið út á þessu ári, heldur ein
magnaðasta plata sem hefur verið gefin út í
sögu raftónlistar. Fullt hús stiga.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Fimm stúlkur úr Listdansskóla
Íslands mynda danshópinn Svið-
group en þær eru einn af þeim
hópum sem hlutu styrk til að
vinna að Skapandi sumarstarfi
Hins hússins. „Okkur fannst
gaman að hafa bæði tilvísun í
danssviðið og sviðahausinn þjóð-
lega,“ segir Katrín, einn af döns-
urum hópsins, um nafngiftina.
„Svo er group-nafnið svona til að
tolla í tískunni því „group“ er
inni núna,“ segir hún og hlær.
Þær hafa allar unnið saman áður
og stóðu meðal annars að dans-
verkinu Mar sem var sýnt á Vetr-
arhátíð í Reykjavík. Markmið
þeirra er að koma dansinum á
framfæri við borgarbúa og sér-
staklega að kynna nútímadans. Í
október tóku þær upp á því að
dansa niður Laugaveginn í sama
tilgangi. „Við ætlum að dansa
mikið úti á götu í sumar, á Föstu-
dagsflippum Hins hússins, í leik-
skólum og á elliheimilum,“ segir
Katrín. Þær stefna líka að því að
vera með alls kyns óvæntar upp-
ákomur sem verða eins konar
dansgjörningar. Ef veður leyfir
ætla þær svo að hafa æfingar á
Austurvelli eða í Laugardalnum
en Íslenski dansflokkurinn leyfir
þeim einnig að æfa með sér. „Við
vinnum frá átta til fjögur en
þetta er svona vinna sem maður
tekur með sér heim því við erum
alltaf að velta fyrir okkur hug-
myndum“. Næst á dagskrá þess-
ara ungu kvenna er að semja
verk fyrir 17. júní en þá munu
þær sýna niðri í bæ. Þær sjá um
allt sem viðkemur þeirra dans-
uppákomum, hvort sem það eru
búningar, tónlist, hugmynda-
vinna eða kynningarstarf. Þær
eru Hinu húsinu þakklátar fyrir
að veita ungum listamönnum
svona frábært tækifæri til að
vinna að list sinni í fullu starfi en
það er alveg á hreinu að stúlkurn-
ar munu glæða menningarlíf
borgarinnar í sumar.
Svi›-group hópurinn hefur innrei›
sína í íslenskt menningarlíf
SVIÐ-GROUP Svið-group hópurinn samanstendur af Katrínu, Melkorku, Vigdísi, Ásgerði og Ragnheiði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
VIKUNNAR »
Óskarsverðlaunahafinn Anne
Bancroft lést á mánudaginn úr
krabbameini, 73 ára gömul.
Bancroft fékk fimm tilnefningar
til Óskarsverðlauna á ferlinum en
þekktust var hún fyrir að leika á
móti Dustin Hoffman í The
Graduate. Leikstjóri The Gradu-
ate sagði á sínum tíma að
Bancroft væri frábær leikkona.
„Þessi blanda af gáfum, húmor,
hreinskilni og skynsemi var ein-
stök meðal listamanna,“ sagði
hann. „Fegurð hennar lagaði sig
að nýjum hlutverkum, og af því að
hún tók öll hlutverk alvarlega
breyttist hún gífurlega í hvert
skipti.“ Bancroft kvartaði yfir því
að hlutverkið fröken Robinson í
The Graduate hefði skyggt á önn-
ur hlutverk hennar, en í myndinni
lék hún konu sem dregur kærasta
dóttur sinnar á tálar. Á þriðjudag-
inn voru ljósin á Broadway-leik-
húsunum slökkt um tíma til að
minnast leikkonunnar en hún fékk
einmitt Tony-verðlaunin á sjötta
áratugnum.
ANN BANCROFT Þrátt fyrir að hafa hlotið Óskarinn fyrir leik sinn í Miracle Worker var
hennar ávallt minnst sem hinnar tælandi frú Robinson í The Graduate.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
ET
TY
Ann Bancroft látin