Fréttablaðið - 09.06.2005, Síða 78
9. júní 2005 FIMMTUDAGUR
BruceDickinson og
félagar í
rokksveitinni
Iron Maiden
héldu tónleika í
Egilshöll í
fyrradag. Góður
rómur var gerður
að tónleikunum
og virtust
Íslendingar sem
og þeir 190
útlendingar sem
komu með
sveitinni hingað
til lands
skemmta sér hið besta. Eins og
kunnugt er starfar Bruce Dickinson
sem atvinnuflugmaður meðfram
rokkinu og flaug hann um tíma fyrir
Iceland Express, þar á meðal hingað
til lands. Eitthvað virðist
upplýsingaflæði innan sveitarinnar
þó vera af skornum skammti því á
heimasíðu
hennar, þar sem
tónleikarnir í
Egilshöll eru
auglýstir, er það
tekið skýrt fram að
Icelandair,
aðalkeppinautur
Iceland
Express, sé eina
flugfélagið sem fljúgi
hingað til lands og voru þeir
aðdáendur sem hugðust leggja land
undir fót og koma á tónleikana hér
beðnir um að hafa samband við
skrifstofu flugfélagsins í nærliggjandi
borgum.
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Opið laugardaga frá 10-14.30
SIGIN GRÁSLEPPA
OG SJÓ SIGINN
FISKUR
SIGIN
RÁSLEPPA
OG KÆST SKATASTÓR H M R
,
ÞARF ÞETTA AÐ
VERA EINS OG
ÞETTA ER?
Eins og kunnugt er hófst miðasal-
an á Snoop Dogg tónleikana á
mánudaginn. Það var margt um
manninn og margir vöknuðu
snemma eða voru vakandi alla
nóttina til þess að tryggja sér
miða. Að sögn Ísleifs Þórhallsson-
ar hjá event.is, sem flytur Snoop
inn, hafði aðeins hægt á miðasöl-
unni í gær eftir sprengjuna á
mánudeginum. „Það er að verða
uppselt, það er aðeins tímaspurs-
mál hvenær en ekki hvort,“ sagði
Ísleifur, léttur í bragði.
Það hefur oft verið hefð fyrir
því að stórstjörnur í líkingu við
Snoop komi með kröfur sem eru
oft hálfundarlegar og nánast
óframkvæmanlegar. „Listinn sem
Snoop lét okkur hafa var ekki
flókin,“ segir Ísleifur. „Þeir koma
hingað í einkaþotu sama dag og
tónleikarnir eru svo við þurfum
ekki að panta far fyrir þá,“ bætir
Ísleifur við. Snoop verður þó með
sína hæð og svítu fyrir sig. „Það
verður að vera pláss fyrir fjöl-
skylduna og lífverðina,“ segir Ís-
leifur og hlær.
Þrátt fyrir að þessir hlutir hafi
ekki verið flóknir var einn hlutur
sem Snoop varð að hafa áður en
hann stígur á sviðið í Egilshöll-
inni. „Hann vildi fá körfuboltavöll
því honum finnst fínt að geta hit-
að upp í körfu áður en hann byrj-
ar sýninguna,“ segir Ísleifur og
bætir við að því hafi verið komið í
kring. „Hann verður því í góðu
formi.“
freyrgigja@frettabladid.is
Snoop fer í körfubolta fyrir tónleikana
SNOOP DOGG Það eru kannski ekki
margir sem vita það en Snoop er mikill
íþróttaunnandi.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Bruce Dickinson.
Notts County.
Í Borgarfirði.
Ingvar E. Sigurðsson leikari er
höfundur dansverksins Integrate
sem er hluti af sýningunni 25
TÍMAR dansleikhús/samkeppni í
Borgarleikhúsinu í kvöld. Þetta
er í fyrsta skipti sem hann lætur
til sín taka sem danshöfundur.
„Þetta var bara hugmynd sem
fékk brautargengi. Nú hefur hún
þróast í þetta verk,“ segir Ingv-
ar, ánægður með útkomuna.
„Þetta var mjög skemmtilegt,
gat ekki verið betra.“
Að sögn Ingvars kom reynslu-
leysi hans sem danshöfundur
ekki að sök. „Þetta er dansleik-
hús og eru í rauninni tvö form
sem blandast saman. Ég sem
fagmaður nota kannski meira
verkfæri leikhússins og ég lít
meira á þetta sem leikverk held-
ur en dansverk. En þetta er
„abstrakt“ leikverk,“ segir hann.
Ingvar fékk þrjá leikara, þau
Björn Inga Hilmarsson, Hörpu
Arnardóttur og Kötlu Margréti
Þorgeirsdóttir til að sýna verk-
ið, auk dansaranna Peter Ander-
son og Steve Lorenz úr Íslenska
dansflokknum. Ingvar segir að
það reyni ekki meira á dansar-
ana í verkinu en leikarana.
„Þetta er miklu meira abstrakt
„situation“ milli karaktera held-
ur en dans. Í rauninni nota ég
bara annan dansarann meira lík-
amlega, af því að hann er með
svarta beltið í karate og ég nota
það svolítið.“
Verk Ingvars fjallar um
fimm einstaklinga sem þekkjast
ekkert og samskiptaörðugleika
þeirra, sem endurspeglast í því
að hann notar texta á fimm
tungumálum í verkinu – á
sænsku, íslensku, ensku, þýsku
og spænsku. Integrate er sýnt í
Borgarleikhúsinu í kvöld klukk-
an átta, ásamt verkum átta ann-
arra höfunda.
rosag@frettabladid.is
DANSHÖFUNDURINN INGVAR Hann mun etja kappi við aðra danshöfunda í Borgarleikhúsinu í kvöld.
LEIKARI FER NÝJAR SLÓÐIR: TEKUR ÞÁTT Í KEPPNI Í BORGARLEIKHÚSINU
Ingvar semur dansverk
AÐ MÍNU SKAPI
HELGI VALUR ÁSGEIRSSON, TRÚBADOR
TÓNLISTIN Saul Williams er minn upp-
áhaldstónlistarmaður því hann lætur
ekki festa sig í eitthvert ákveðið svið.
Á póstmódernískan hátt fléttar hann
saman öllu því besta í tónlist. Svo er
eitthvað heillandi við mann sem syngur
illa, en syngur samt.
BÓKIN Hard Boiled Wonderland and
the End of the World eftir japanska rit-
höfundinn Murukami er bók að mínu
skapi. Mér finnst sérstaklega skemmti-
legt hvernig hann skiptir um stíl í öðr-
um hverjum kafla og virðist vera jafn-
vígur á rómantík og raunsæi, og jafnvel
vísindaskáldskap. Svo skemmir ekki fyrir
að aðalsöguhetjan hlustar á Dylan.
BÍÓMYNDIN Sideways er frábær bíó-
mynd því hún endurspeglar hversu mis-
heppnaðir einstaklingar eru í rauninni,
og hversu frábært það er.
BORGIN Kaupmannahöfn er heillandi
borg því þar heilsast fólk inni í kynlífs-
búðum þótt það þekkist ekki neitt.
Svo er Strikið töfrandi í margbreytileika
sínum.
BÚÐIN Vídeóljónið er sjoppa í miklu
uppáhaldi því þar fær maður persónu-
lega þjónustu.
VERKEFNIÐ Nýlega kom út fyrsta sóló-
platan mín; Demise of
Faith, en utan þess að
vera trúbador starfa
ég á leikskólanum
Sæborgu þar sem
unnið er skapandi
starf með krökkum.
Að átta sig á að því
meira sem maður
lærir, því minna veit
maður, er erfitt en af-
skaplega gefandi. Ný-
lega var sýning á lista-
verkum sem krakkarn-
ir höfðu skapað í Ráð-
húsi Reykjavíkur, sem
hét Úlfastubbur í Ráð-
húsinu.
Saul Williams, Murukami, Vídeóljóni› og Striki›
...fá Bruce Dickinson og félagar í
Iron Maiden sem sýndu það og
sönnuðu í Egilshöll að þeir kunna
svo sannarlega að rokka.
HRÓSIÐ
Eyþór Arnalds lýsiryfir stuðningi við
Gísla Martein Bald-
ursson á baksíðu DV í
gær. Eyþór var um tíma
heitasta borgar-
stjóraefni sjálfstæð-
ismanna en tók
viðskiptalífið fram
yfir stjórnmálin. Það gerir hann enn
og borgarmálin kitla ekki sem áður.
Eyþór fór á sínum tíma í prófkjörs-
baráttu sjálfstæðismanna í samfloti
við þau Guðlaug Þór Þórðarson,
Ágústu Johnson og Baltasar Kor-
mák Baltasarsson. Hópurinn kynnti
stefnumál sín
sameiginlega
og nú mun
ekkert vera
eftir af hópn-
um að Guð-
laugi Þór
undanskild-
um í hringiðu
stjórnmál-
anna.
FRÉTTIR AF FÓLKI
50
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
M
YN
D
:G
ET
TY
Lárétt: 1 þrætir, 6 ergileg, 7 í röð, 8
íþróttafélag, 9 hvíldi, 10 slæm, 12 slæ, 14
smábýli, 15 gjamm, 16 fisk, 17 skel, 18
bæli.
Lóðrétt: 1 þéttan reyk, 2 skjóta, 3 tveir
eins, 4 ríkidæmi, 5 á Ö og stúi, 9 fiskur,
11 skattheimtu, 13 djarfar fyrir, 14 þukl,
17 bardagi.
Lausn.
Lárétt: 1 möglar, 6örg,7uú,8ka,9áði,
10ill,12lem,14kot,15gó,16ál,17
aða,18flet.
Lóðrétt: 1mökk,2öra,3gg,4auðlegð,
5rúi,9áll,11toll,13móar, 14káf, 17at.