Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.05.2005, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 28.05.2005, Qupperneq 2
2 28. maí 2005 LAUGARDAGUR Flest bendir til að Frakkar hafni stjórnarskránni: Óákve›nir gætu rá›i› úrslitum PARÍS, AP Fátt bendir til að Frakk- ar muni leggja blessun sína yfir stjórnarskrársáttmála Evrópu- sambandsins í þjóðaratkvæða- greiðslunni sem haldin verður á morgun þrátt fyrir mikinn þrýst- ing frá innlendum og erlendum stjórnmálamönnum. Nýjustu skoðanakannanir benda til þess að andstæðingar sáttmálans hafi heldur sótt í sig veðrið undanfarna daga, 55 pró- sent kjósenda virðast ætla að segja nei í atkvæðagreiðslunni en 45 prósent já. Enn eru þó margir óákveðnir og bindur Jacques Chirac Frakklandsforseti vonir við að hinir óákveðnu muni á end- anum snúast á sveif með sér. Chirac hélt sitt síðasta sjón- varpsávarp fyrir atkvæða- greiðsluna í fyrrakvöld en þar varaði hann landa sína eindregið við að hafna plagginu. Jose Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, kom til Frakklands í gær til að hvetja Frakka til að segja já á sunnudag- inn. Hið sama gerði Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, en fyrr um daginn hafði þýska sambandsþingið staðfest sátt- málann. Valerie Giscard d'Estaing, fyrrverandi forseti Frakklands og helsti arkitekt stjórnarskrár- sáttmálans, útilokaði ekki að greitt yrðu atkvæði að nýju ef Frakkar segðu nei en því hefur hingað til verið hafnað. ■ Fylgdarmaður í mansalsmáli: Gæsluvar›hald framlengt LÖGREGLUMÁL Gæsluvarðhald yfir fylgdarmanni fjögurra kín- verskra ungmenna sem komu hingað á leið til Bandaríkjanna á dögunum hefur verið framlengt um viku. Maðurinn er grunaður um skipulagt mansal. Að sögn Jóhanns R. Benedikts- sonar, sýslumanns á Keflavíkur- flugvelli, var varðhaldið fram- lengt þar sem málið er enn í rann- sókn. Stúlkurnar þrjár sem komu með manninum eru nú á vegum barnaverndaryfirvalda enda allar undir lögaldri. Sveinn Andri Sveinsson, verj- andi mannsins, segir manninn ekki hafa mótmælt framlenging- unni og býst fastlega við því að kæra verði gefin út og dæmt í málinu strax í næstu viku, slíkur sé vaninn í málum sem þessum. Maðurinn hefur enn ekki játað sök. Ef um skipulagt mansal er að ræða hafa íslensk stjórnvöld ný- verið undirgengist Evrópusátt- mála um að hefta mansal. Þar er sérstaklega tiltekið að sýna skuli réttindum fórnarlamba mansals og aðstæðum þeirra sérstaka virðingu. -oá Tengsl milli blindu og stinningarlyfja rannsöku› Bandaríska matar- og lyfjastofnunin rannsakar nú hvort 42 flarlendir karlmenn hafi or›i› blindir af neyslu stinningarlyfja. Ekki hefur veri› tilkynnt um nein slík tilvik hérlendis. VIAGRA Grunur leikur á að stinn- ingarlyf á borð við Viagra geti valdið blindu. Bandaríska matar- og lyfjaeftirlitið hefur nú til skoð- unar 42 tilvik þar sem menn sem neyttu slíkra lyfja urðu blindir. Engar tilkynningar um slíkt hafa borist Lyfjastofnun Íslands. Bandarískir embættismenn á vegum matar- og lyfjaeftilitsins, FDA, rannsaka nú hvort mögulegt sé að svonefnd stinningarlyf geti valdið blindu. Þeim hafa borist 42 tilkynningar um karlmenn sem hafa neytt lyfjanna og síðan misst sjónina. 38 þeirra höfðu tekið Vi- agra en fjórir Cialis. Susan Cruz- an, talskona FDA, sagði í samtali við fréttamenn að enn væru engar óyggjandi sann- anir fyrir því að lyfin hefðu vald- ið blindunni. „Við tökum þetta hins vegar mjög alvarlega,“ bætti hún við. Blindan sem mennirnir fengu er af sérstakri tegund sem einkum leggst á hjarta- og sykursjúklinga en getu- leysi er jafnframt fylgikvilli þess- ara sjúkdóma sem aftur fylgir neysla stinningarlyfja. Þetta er í annað sinn á skömm- um tíma sem grunur vaknar um hættulegar aukaverkanir á lyfi sem er í nokkuð almennri notkun. Á síðasta ári kom í ljós að svo- nefndir COX-2 hemlar sem eink- um eru notaðir af gigtarsjúkling- um leiddu til hjarta og æðasjúk- dóma. Þannig var lyfið Vioxx tek- ið af markaðnum þegar það upp- götvaðist. Rannveig Gunnarsdóttir, for- stjóri Lyfjastofnunar, segir að engar tilkynningar hafi borist til stofnunarinnar um blindu af völd- um stinningarlyfja. Hún bendir hins vegar á að FDA taki málið ekki upp nema rík ástæða þyki til. Þá sé jafnframt afar líklegt að fyrst FDA hafi lyfin til skoðunar þá sé slík athugun einnig í gangi hjá lyfjagátanefnd Evrópusam- bandsins en þar eiga Íslendingar sæti. „Ekkert lyf er án áhættu, þau valda öll einhverjum auka- verkunum. Hlutverk lyfjayfir- valda er að meta hvort ávinning- urinn sé meiri en áhættan. Þess vegna er svo mikilvægt að heil- brigðisstarfsmenn tilkynni um aukaverkanir. Þeir mættu standa sig betur í því,“ segir Rannveig. sveinng@frettabladid.is ÚRSLITANNA BEÐIÐ Valery Giscard d'Esta- ing, fyrrverandi forseti Frakklands og einn höfunda stjórnarskrárinnar, hlýddi á um- ræðurnar í efri deild þýska þingsins. Stjórnarskrá ESB: Sta›fest á fl‡ska flinginu BERLÍN, AP Þýska sambandsþingið staðfesti stjórnarskrársáttmála Evrópusambandsins í gær með afgerandi hætti. Aðeins eitt sambandsríkjanna sextán hafnaði honum og alls fékk hann 66 atkvæði af 69. Nú bíður hann formlegrar staðfest- ingar frá Horst Köhler Þýska- landsforseta. Leiðtogar Þýskalands vonast til að hin afdráttarlausa at- kvæðagreiðsla muni styrkja franska stuðningsmenn stjórnar- skrársáttmálans fyrir atkvæða- greiðsluna á morgun. ■ LÉST ER BÁTUR STRANDAÐI SKAMMT FRÁ BOLUNGARVÍK Hér sést bátur Landhelgis- gæslunnar koma að landi í Bolungarvík eftir árangurslausa björgunartilraun. Sjóslys: Brá›kvaddur í bát sínum VESTFIRÐIR Eldri maður lést um borð í bát sínum sem strandaði í fjöru um þrjár sjómílur frá Bol- ungarvík í gærmorgun. Talið er að maðurinn hafi orðið bráðkvaddur. Björgunarbátar voru kallaðir út frá Bolungarvík og Ísafirði með lækni og sjúkralið innan- borðs. Maðurinn var einn um borð og reyndist látinn þegar björgun- arbátar komu á svæðið laust fyrir klukkan ellefu. Ekki hefur verið greint frá nafni hins látna. - jsk Málsvörn Magnúsar: Ba› um hjálp vi› a› deyja DÓMSMÁL Magnús Einarsson, sem ákærður er fyrir að hafa myrt eiginkonu sína, sagði við aðal- meðferð í málinu í gær að hún hefði komið til hans og beðið um hjálp við að deyja. Magnús sagði Sæunni Páls- dóttur, konu sína, hafa komið inn í herbergi sitt og beðið um hjálp hans. Hún hefði viðurkennt fyrir honum að hafa haldið framhjá honum og honum brugðið mjög við það en hann hefði ekki orðið reiður. Lögregla fann kveðjubréf frá Sæunni til fjölskyldu sinnar sem Magnús kvaðst ekki kannast við. Stöð 2 greindi frá. - bþg Banaslys í Hvalfirði: Lést í bílslysi UMFERÐARSLYS Karlmaður á þrí- tugsaldri beið bana í umferðar- slysi í Hvalfirði í gærmorgun. Slysið átti sér stað þegar flutn- ingabíll og fólksbíll rákust saman. Hinn látni var ökumaður fólks- bílsins. Bílstjóra flutningabílsins sakaði ekki, en bíllinn hafnaði utan vegar. Áreksturinn var mjög harkalegur og var veginum um Hvalfjörð lokað í um tvær klukku- stundir vegna slyssins. Áreksturinn varð skammt frá Meðalfellsafleggjara. Orsakir hans liggja ekki fyrir og málið er í rannsókn hjá lögreglu. Hinn látni var 24 ára gamall og úr Reykjavík. Ekki er unnt að greina frá nafni hans að svo stöddu. -GRS SPURNING DAGSINS Vigfús, ertu í sk‡junum? „Ég er að minnsta kosti í upphæðum.“ Séra Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur í Grafar- vogskirkju, þjónar fyrir altari á morgun í fyrstu flugmessu sem haldin hefur verið hér á landi. ÁRÓÐURSSTRÍÐIÐ Í HÁMARKI Fleiri Frakkar virðast ætla að greiða atkvæði gegn stjórnar- skrársáttmálanum en með honum í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun. SVEINN ANDRI SVEINSSON Sveinn Andri er verjandi fylgdarmannsins. Maðurinn hefur enn ekki játað sök í mansalsmálinu. VIAGARA Grunur leikur á að 42 bandarískir karlmenn hafi orðið blindir vegna aukaverk- ana stinningarlyfja. RANNVEIG GUNN- ARSDÓTTIR Ekkert lyf er án áhættu, þau valda öll ein- hverjum aukaverk- unum. ÞYRLA SKOTIN NIÐUR Tveir banda- rískir hermenn fórust þegar þyrla þeirra hrapaði eftir að hafa orðið fyrir skotum uppreisnarmanna nærri Buhriz, skammt norður af Bagdad í gær. Auk þeirra fórust fimm Írakar í árásum gærdagsins. Uppreisnarmenn unnu þar að auki spellvirki á olíuleiðslum í útjaðri höfuðborgarinnar og kviknuðu miklir eldar af þeim sökum. ÍRAK
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.