Fréttablaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 28.05.2005, Blaðsíða 6
6 28. maí 2005 LAUGARDAGUR ISLAMABAD, AP Í það minnsta tutt- ugu manns biðu bana í sjálfmorð- sprengjuárás í Islamabad, höfuð- borg Pakistans, í gær. Talið er að illindi á milli trúarhópa í landinu sé kveikja tilræðisins. Maður gyrtur sprengjubelti gekk inn á helgistað sjía í úthverfi höfuðborgarinnar og sprengdi sjálfan sig í loft upp. Í það minnsta tuttugu manns fórust í tilræðinu og um 150 eru sagðir særðir. Mikill fjöldi fólks var á helgistaðnum til að minnast dauða píslavottar sem grafinn er þar. Sprengjan tætti í sundur sum lík- anna, svo öflug var hún. Til átaka kom á milli reiðra sjía á staðnum og lögreglu sem reyndi að rýma til fyrir sjúkrabílum. „Niður með Bandaríkin,“ hrópaði fólkið. Enginn hefur lýst tilræðinu á hendur sér en talið er að öfga- menn úr hópi súnnía hafi staðið fyrir því. Þorri Pakistana að- hyllist súnní-sið og stundum skerst í odda á milli sjía og súnnía í landinu. Í mars síðastliðnum biðu 46 sjíar bana í sprengjutil- ræði í Balúkistan-héraði sem er í vesturhluta landsins. Pervez Musharraf, forseti Pakistans, fordæmdi árásina harðlega í ávarpi sínu til þjóðar- innar og hvatti fólkið til að sam- einast gegn trúarátökum og hryðjuverkum. ■ Tollstjórinn í Reykjavík: Afla›i uppl‡singa í heimildarleysi PERSÓNUVERND Persónuvernd hef- ur kveðið upp þann úrskurð að Tollstjóranum í Reykjavík hafi verið óheimilt að afla upplýsinga í málaskrá lögreglu um einstak- ling sem sótti um starf hjá emb- ættinu. Um var að ræða starfsmann í lögfræðideild Tollstjóraembætt- isins sem sótti um annað starf innan deildarinnar. Í starfsviðtali var honum gert að undirrita yfir- lýsingu þess efnis að tollstjóra væri heimilt að afla upplýsinga um sig úr málaskrám lögreglu og tollstjóra. Þegar svo í ljós kom að um- sókn starfsmannsins var hafnað sökum þess að nafn hans var að finna í málaskrá lögreglunnar, kvartaði hann til Persónuverndar vegna ólögmætrar öflunar per- sónuupplýsinga. Persónuvernd kemst að þeirri niðurstöðu að þessi upplýsinga- öflun hafi verið óheimil og bend- ir á að persónuupplýsingar í málaskrá lögreglunnar geti verið óáreiðanlegar og jafnvel villandi. Skráðir Íslendingar í mála- skrá lögreglu voru liðlega 200 þúsund um miðjan þennan mán- uð. - ssal Efast um lögmæti stu›nings vi› Farice Eftirlitsstofnun EFTA rannsakar hvort stjórnvöld hafi broti› ákvæ›i EES-samn- ingsins um ríkisstyrki flegar flau veittu Farice ríkisábyrg› og juku hlut sinn í fyrirtækinu sem á og rekur sæstrenginn. RANNSÓKN Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur hafið formlega rann- sókn á því hvort stuðningur ís- lenskra stjórnvalda við lagningu Farice sæstrengsins standist ákvæði samningsins um evrópska efnahagssvæðið. Starfsmenn eftirlitsstofnunar ESA hafa haft stuðning stjórn- valda við Farice til skoðunar frá í febrúar í fyrra. Þeir telja að þar kunni tvennt að stangast á við reglur evrópska efnahagssvæðis- ins um ríkisstyrki og hófu því formlega rannsókn í fyrradag. Annars vegar vefst ríkisábyrgð á lánum Farice fyrir ESA. Hins veg- ar lýsa þeir efasemdum um að hlutafjáraukning íslenskra stjórn- valda í Farice sé í samræmi við það sem einkaaðilar hefðu gert í sambærilegri aðstöðu. Það kom Guðmundi Gunnars- syni, framkvæmdastjóra Farice, nokkuð á óvart að Eftirlitsstofnun EFTA tæki stuðning íslenskra stjórnvalda við verkefnið til form- legrar rannsóknar. „Þetta mál er búið að vera í gangi í á annað ár og við vissum af þeirri rannsókn. Við áttum varla von á því að þetta færi í þessa formlegu rannsókn samt sem áður. Guðmundur segir of snemmt að segja til um hver áhrifin af rann- sókninni kunni að verða. „Við verð- um að sjá til hver niðurstaðan verður.“ Hann segir að ef ekki hefði fengist ríkisábyrgð á hluta af lánum Farice á sínum tíma hefði það líklega orðið til þess að lánin hefðu fengist á lakari kjörum, fjár- mögnun verkefnisins þar með orð- ið óhagkvæmari. Engin viðbrögð fengust frá ís- lenskum stjórnvöldum í gær. Í samgönguráðuneytinu var vísað á fjármálaráðuneytið og ekki náðist í Geir H. Haarde fjármálaráðherra. Rannsakað verður hvort stuðn- ingur Íslands við Farice-sæstreng- inn sé innan þeirra marka sem samningurinn um evrópska efna- hagssvæðið kveður á um. Þar kann að ráða úrslitum hvort stofnunin taki undir það sjónarmið íslenskra stjórnvalda að Farice-verkefnið hafi verið nauðsynlegt til að tryggja góð fjarskipti við umheim- inn. brynjolfur@frettabladid.is Útkall: Vélarvana vi› Látrabjarg VESTFIRÐIR Björgunarskip Slysa- varnarfélagsins Landsbjargar á Patreksfirði, Vörður, var í gær- morgun kallað út vegna vélar- vana báts eina og hálfa sjómílu suður af Látrabjargi. Tveir voru um borð og heils- ast þeim vel. Báturinn, sem er sex tonna plastbátur, var tekinn í tog og var siglt með hann til Pat- reksfjarðar. Aðstæður voru góð- ar, hæglætisveður og sjógangur lítill. -jsk BANDARÍKIN FLÚÐI UPP Í KRANA Lögregla í Atlanta í Georgíuríki í Bandaríkj- unum reynir nú að fá mann nokkurn niður úr himinháum krana en maðurinn er grunaður um að hafa banað unnustu sinni. Hann flúði undan lögreglunni á miðvikudaginn og klifraði þá upp á topp kranans sem er jafnhár og átján hæða hús. Plastefni: Hamla fósturflroska NEYTENDUR Vísindamenn í Banda- ríkjunum telja sig loks hafa sannað að algeng efni sem notuð eru til framleiðslu hversdags- legra hluta á borð við snyrtivara og leikfanga geta hamlað þroska karlkynsfóstra í móðurkviði. Lengi hefur verið vitað að hátt hlutfall efna sem finnast í fjöldaframleiddum plastvörum hafa áhrif á karldýr í dýraríkinu og þá helst að því leyti að dýrin verða kvenlegri auk þess sem sæðisframleiðsla minnkar og náttúruleysi getur orðið vanda- mál. ■ MÆÐGURNAR FAÐMAST Móðir Schapelle Corby huggar dóttur sína eftir að dómur- inn féll. Áströlsk stúlka: Tuttugu ára dómur INDÓNESÍA Indónesískur dómstóll hefur dæmt hina áströlsku Schapelle Corby í tuttugu ára fangelsi fyrir smygl á fíkniefnum. Corby, sem er 27 ára, var handtek- in á flugvellinum í Bali með fjög- ur kíló af marijúana í október. Hún kveðst saklaus og telur að flugvallarstarfsmenn hafi staðið á bak við smyglið. Fjölskylda Corby segir að dómnum verði áfrýjað. Mál henn- ar hefur vakið mikla samúð í Ástr- alíu. Stjórnvöld þar í landi hafa heitið henni lagalegri aðstoð og ætla jafnframt á næstu dögum að hefja viðræður við indónesísk stjórnvöld um að hún fái að af- plána dóminn í Ástralíu. ■ edda.is „Skáldið er í ham ... Bítlaávarpið er skemmtileg saga, stráksleg og gosaleg í sprúðlandi stílnum.“ Páll Baldvin Baldvinsson, DV „Mikið vor og glettni í þessari bók ... skemmtilestur.“ Gauti Kristmannsson, RÚV KILJA Tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2004 4. sæti Skáldverk – kiljur Penninn Eymundsson og Bókabú›ir MM 18. – 24. maí Notfærir þú þér yfirdráttarlán? SPURNING DAGSINS Í DAG: Á að reisa íbúðabyggð í Viðey, Engey, Akurey og á Geldinganesi? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 52,0% 48,0% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN TOLLSTJÓRAEMBÆTTIÐ Tollstjóra var óheimilt að afla persónuupplýsinga í málaskrá lög- reglu vegna starfsumsóknar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P LEGA FARICE-STRENGSINS Farice-strengurinn tengir Ísland og Færeyjar við Skotland. Hann á að tryggja fjarskiptasamband Íslands við um- heiminn betur en CANTAT-3 sæstrengurinn. Utanríkisráðherra: Skipa›i tvo sendiherra UTANRÍKISÞJÓNUSTA Davíð Oddsson utanríkisráðherra hefur skipað þá Helga Gíslason og Svein Á. Björnsson sendiherra frá og með næstu áramótum. Helgi hóf störf í utanríkisþjón- ustunni árið 1970 og hefur undir það síðasta verið prótokollstjóri. Sveinn hóf að vinna við utanríkis- viðskipti árið 1970. - bþg HLÚÐ AÐ SÆRÐUM Á annað hundrað manns slasaðist í sprengingunni í gærmorgun. Þar á meðal voru mörg börn. Spenna ríkir á milli pakistanskra sjía og súnnía: Tuttugu t‡ndu lífi í sprengjutilræ›i FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.