Fréttablaðið - 28.05.2005, Side 44

Fréttablaðið - 28.05.2005, Side 44
Vesturbær Reykjavíkur, Seltjarnarnes og Snæfellsjökull á góðum degi. / Ljósmynd: GVA SJÓNARHORN 28. maí 2005 LAUGARDAGUR 16 ROPE YOGA Bæjarhraun 22 / 220 Hafnarfjörður / 3. hæð til vinstri Kennari Guðbjörg Ósk Friðriksdóttir. Skráning er hafin í síma 555-3536 eða 695-0089 ropeyoga@internet.is stöðin Bæjarhrauni 22 Frábært sumartilboð kr. 7.900 ótakmörkuð mæting í júní. Byggir upp eðlilega flóru í maga og meltingarvegi Framúrskarandi fyrir MELTINGUNA Fæst í apótekum, heilsubúðum og matvöruverslunum H Á G Æ Ð A A M E R ÍS K F Æ Ð U B Ó T A R E F N I KOLVETNABLOKKARI Minnkar sykurlöngun og virkar vatnslosandi H Á G Æ Ð A A M E R ÍS K F Æ Ð U B Ó T A R E F N I 2 hylki fyrir kolvetnaríka máltíð Fæst í apótekum,heilsubúðum og matvöruverslunum NÆTURBRENNSLA Undraverður árangur H Á G Æ Ð A A M E R ÍS K F Æ Ð U B Ó T A R E F N I 3 hylki fyrir svefn Fæst í apótekum,heilsubúðum og matvöruverslunum Rólegheit og afslöppun á suðrænum slóðum Erna Hrönn Ólafsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar Bermuda, hefur haft mikið að gera undanfarið og væri meira en til í eina rólega helgi. „Draumahelgin myndi snú- ast um rólegheit og ferðalög í faðmi fjölskyldunnar. Mér þætti frábært að geta stokkið upp í flug- vél, slökkt á símanum og farið eitthvert á hlýjan og sólríkan stað þar sem ég þyrfti ekkert að gera nema slappa af,“ segir Erna. Erna á kærasta og tvö börn sem hún myndi að sjálfsögðu taka með sér í fríið. „Ég myndi vilja fara eitthvert í sól og hita þar sem fjölskyldan gæti dundað sér sam- an. Ítalía væri t.d. tilvalinn staður – nú eða bara einhver eyja þar sem eru rólegheit og sól. Ég sé fyrir mér að ég myndi liggja í sól- inni, krakkarnir léku sér í sandin- um og það væru engar áhyggjur til að stressa mann. Svo þegar ég hugsa þetta betur sé ég að eigin- lega þyrfti ég að hafa barnapíu með mér. Þá gætum við kærast- inn átt rómantískar stundir saman þegar börnin væru sofnuð á kvöldin.“ „Ég veit þetta hljómar kannski voðalega klisjulega og vissulega væri líka gaman að gera eitthvað villt eins og að safna öllum vinum mínum saman á eyju og halda stórt partí. Það er hins vegar búið að vera mjög mikið að gera hjá mér undanfarið þannig að akkúrat núna væri draumurinn sá að fá frið og rólegheit,“ segir Erna. Erna hefur nýlokið prófum í Há- skóla Íslands, hún vinnur á dag- inn og spilar þess á milli með hljómsveitinni Bermuda. „Það er mikið að gera hjá hljómsveitinni núna. Við erum að gefa út okkar fyrsta lag og höfum spilað mikið undanfarið, til dæmis í félagsmið- stöðvum og á skólaböllum. Stefn- an er tekin út á land á næstunni og það verður nóg að gera hjá okkur í sumar. Þess vegna væri al- veg frábært að fá eina afslöppun- arhelgi þar sem ég gæti stungið af fyrirvaralaust og hlaðið batterí- in. Það væri algjör draumur.“ DRAUMAHELGIN „Draumurinn væri sá að geta slappað af á góðum stað, laus við allt stress,“ segir Erna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.