Fréttablaðið - 28.05.2005, Side 52
Iron Maiden hefur starfað meðhléum í um þrjátíu ár og er einaf þekktustu þungarokkssveit-
um heimsins, með slagara á borð
við Run to the Hills og The Number
of the Beast á afrekaskránni.
Hljómsveitin hélt síðast tón-
leika hér á landi í Laugardalshöll
sumarið 1992 og því kominn tími
til að hún láti sjá sig hér á nýjan
leik, enda á hún fjölmarga að-
dáendur hér sem og annars staðar.
Söngvari sveitarinnar, Bruce
Dickinson, gekk aftur til liðs við
sína gömlu félaga árið 1999 eftir
að hafa einbeitt sér að sólóferli
sínum í nokkur ár. Náði hann
meðal annars vinsældum fyrir
sína útgáfu á David Bowie-laginu
All the Young Dudes. Síðan þá
hefur Iron Maiden gefið út tvær
hljóðversplötur, þá síðustu fyrir
tveimur árum sem heitir Dance
of Death.
Sýnir ferðamönnum Bláa lónið
Dickinson hefur verið nokkuð í
fréttunum hérlendis undanfarin
misseri, ekki fyrir tónlistariðk-
un, heldur fyrir flugmanns-
hæfileika sína. Hann er nefni-
lega lærður flugmaður og
flaug um tíma á vegum
Iceland Express milli Kaup-
mannahafnar og Íslands.
Hann er reyndar hættur að
fljúga hingað til lands, en þó
ekki alveg, því fyrir tónleik-
ana í Egilshöll ætlar hann að
fljúga með 186 aðdáendur
Iron Maiden til Íslands. „Við
ætlum að fljúga á stórri
Boeing 747 frá London. Við
gerðum þetta reyndar líka í
síðustu tónleikaferð þegar
við fórum með aðdáendur til
Dublin og Parísar en mér
fannst þetta gott tækifæri
núna því mér líkar svo vel við
Ísland og mig langaði að sýna
þeim dálítið af landinu,“ segir
Dickinson í samtali við Frétta-
blaðið. „Við lendum um miðjan
dag þannig að þeir fá nokkrar
klukkustundir til að fara í Bláa
lónið og kannski skoða landslagið
í leiðinni. Ég flaug einu sinni
alltaf til Íslands með Iceland Ex-
press og ég á meira að segja ís-
lenskan fisk í frystinum mínum
sem ég veiddi sjálfur.“
Dickinson man vel eftir síðustu
tónleikum Iron Maiden á Íslandi.
„Svo sannarlega, ég skemmti mér
konunglega og það sem meira er
þá svaf ég ekki í 24 klukkustundir
því dagsljósið hélt mér vakandi.“
Tónleikaferðin hefst í kvöld
Iron Maiden hefur tónleikaferð
sína um heiminn í Prag í kvöld og
hlakkar Dickinson mikið til. Ferð-
in er meðal annars
farin til að kynna DVD-disk með
öllum myndböndum sveitarinnar.
„Aðalástæðan fyrir tónleikaferð-
inni er samt sú að okkur finnst
alveg frábært að fara í tónleika-
ferð yfir sumartímann. Við mun-
um bara spila lög af fyrstu fjórum
plötunum okkar á tónleikunum
þannig að þetta verður í fyrsta og
eina skiptið sem fólk getur heyrt
okkur flytja öll þessi lög í einu,“
segir hann.
Aðspurður um hljómsveitirnar
Foo Fighters og Queens of the
Stone Age, sem spila í Egilshöll
tæpum mánuði á eftir Iron
Maiden, segist Dickinson fíla þær
vel. „Mér finnst eldri lög Foo
Fighters samt betri en þetta
nýjasta lag frá þeim en þeir eru
samt mjög góðir á tónleikum.
Queens of the Stone Age er öflug
líka. Á Duran Duran að spila líka?
Ég verð ekki þar,“ segir rokkarinn
Dickinson, sem er greinilega lítið
gefinn fyrir eitís-poppið.
„Ég elska Ísland“
Dickinson lét að lokum flakka
þessi skilaboð til íslenskra Iron
Maiden-aðdáenda: „Ég elska Ís-
land og hlakka mikið til að koma.
Ég ætla að koma með alla vini
mína,“ segir hann og hlær. „Og við
ætlum að skemmta okkur frábær-
lega.“
freyr@frettabladid.is
36 28. maí 2005 LAUGARDAGUR
Flýgur með alla vini sína til Íslands
Rokksveitin heimsfræga Iron Maiden heldur tónleika
í Egilshöll 7. júní. Freyr Bjarnason sló á flrá›inn til
söngvarans og Íslandsvinarins Bruce Dickinson,
sem á meira a› segja íslenskan fisk í frystinum
heima hjá sér.
Fréttin um að Kylie Minogue hefði greinst með
krabbamein fór eins og eldur um sinu um allan
heim enda söngkonan elskuð og dáð. Hún er þó
ekki eina stjarnan sem hefur greinst með
krabbamein því að margar stjörnur hafa háð
þetta sama stríð.
Olivia Newton-John, samlandi Kylie, barðist
við brjóstakrabbamein og sigraðist á því árið
1992. Söngkonan Anastacia lét gera myndband
með sér aðeins degi eftir að hún greindist með
sama sjúkdóm. Sharon Osbourne greindist með
krabbamein nánast í beinni útsendingu þátt-
anna um Osbourne-fjölskylduna.
Meðal annarra kvenkyns stjarna sem hafa
háð þessa baráttu og haft sigur má nefna fyrr-
verandi kærustu Andrésar prins, Koo Stark, og
leikkonuna Cybil Shepard. Af karlkyns stjörn-
um sem hafa fengið krabbamein en unnið bug
á því má nefna Rod Stewart, Robert DeNiro,
Roger Moore og
knattspyrnuhetj-
una Bobby
Charlton.
Sá sem hefur
verið öllum þess-
um stjörnum
fyrirmynd í bar-
áttunni er hins
vegar nóbelsverð-
launahafinn Nel-
son Mandela, sem
greinst hefur með
krabbamein þrí-
vegis frá árinu
1984 og ávallt haft
sigur.
HELSTU PLÖTUR IRON
MAIDEN:
1980 – Iron Maiden
1981 – Killers
1982 – Number of the Beast
1983 – Piece of Mind
1988 – Seventh Son of a
Seventh Son
2000 – Brave New World
2003 – Dance of Death
Í FLUGBÚN-
INGNUM Bruce
Dickinson ætlar
að fljúga til Ís-
lands með 186
Iron Maiden-að-
dáendur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
GREASE-STJARNAN
OLIVIA NEWTON-
JOHN Þessi samlandi
Minogue greindist með
brjóstakrabbamein og
vann sigur árið 1992.
Stjörnurnar sem höf›u betur
NELSON MANDELA Hefur þrívegis sigrast á þessum illviga
sjúkdómi frá árinu 1984.
SÖNGKONAN KOO STARK Bati þessarar þokkagyðju var mjög góður og
ætti að vera Kylie hvatning.
IRON MAIDEN Rokksveitin Iron Maiden ætlar að spila öll gömlu og góðu lögin í Egilshöll 7. júní.