Fréttablaðið - 28.05.2005, Page 54
38 28. maí 2005 LAUGARDAGUR
Aðdáendur Radiohead ættu að
hafa auga með bandaríska píanó-
leikaranum Christopher O’Riley
og píanóútgáfum hans á meistara-
verkum hljómsveitarinnar. Í apríl
síðastliðnum kom út geisladiskur-
inn Hold Me to This: Christopher
O’Riley Plays Radiohead þar sem
O’Riley gefur lögum eins og Sail
to the Moon af disknum Hail to
the Thief og Like Spinning Plates
af Amnesiac nýjan búning. Oft er
erfitt að koma rokktónlist í píanó-
form og þarf lítið til að útkoman
verði þunn lyftutónlist. O’Riley
þykir komast hjá þessu á nýja
disknum með frumlegum útsetn-
ingum. Reyndar hjálpar til að um
þriðjungur disksins er af b-hlið-
um ýmissa platna Radiohead svo
tónlistin verður ekki klisjukennd.
Þetta er ekki fyrsta tilraun
O’Rileys til að gera píanóútgáfur
af Radiohead því árið 2003 sendi
hann frá sér geisladiskinn True
Love Waits undir merki Sony
Classical. Hann inniheldur fleiri
klassísk Radiohead-lög sem allir
ættu að kannast við, svo sem
Karma Police af OK Computer. Sá
diskur hlaut misgóða dóma og eru
menn ósammála um það hvort
hann sé meistaraverk eða lyftu-
tónlistarflatneskja. Sannir Radio-
head-aðdáendur eru óánægðir
með sumar útsetningar O’Rileys á
True Love Waits en Rolling Stones
gaf plötunni 4 stjörnur svo sitt
sýnist hverjum. Það hlýtur þó að
teljast afrek hjá O’Riley að ná
fram dýptinni í flóknum útsetn-
ingum Radiohead í tveimur hönd-
um á lyklaborði.
O’Riley hefur vakið mikla at-
hygli fyrir Radiohead-útgáfur sín-
ar en sem klassískur píanóleikari
þykir hann ekki síðri og hefur
hann hlotið fjölda verðlauna fyrir
klassískan píanóleik. Einnig hefur
hann gert píanóútgáfur af argent-
ínskri tangótónlist og gert tónlist-
arútgáfu af nokkrum sögum rúss-
neska rithöfundarins Antons
Tsjekov. Radiohead-aðdáendur í
Bandaríkjunum hafa tekið þess-
um fjölbreytta tónlistarmanni
opnum örmum og þykja tónleikar
O’Rileys einstök upplifun. Sumir
hafa líkt tónleikum O’Rileys sem
skemmtilegri blöndu af Radio-
head og Sigur Rós, svo ekki er
ólíklegt að nýja platan Hold Me to
This falli íslenskum tónlistarunn-
endum í geð.
Núna um helgina lýkur sýningu á ljósmyndum eftir ferðalanginn
Frederick W.W. Howell, sem var hér á ferð á árunum 1890 til 1901 og
tók þá afar athyglisverðar myndir af landi og þjóð. Á síðasta ári kom út
vegleg bók með ljósmyndum Howells, sem listfræðingurinn Frank
Ponzi hafði veg og vanda af. Ponzi hefur nú stækkað myndirnar og sett
upp á veggi í sýningarsal bókasafnsins í Mosfellsbæ. Sýningin hefur
verið opin á opnunartíma safnsins, en í dag og á sunnudag verður hún
opin þótt bókasafnið sjálft sé lokað.
CHRISTOPHER O’RILEY Tónlist O’Rileys er í anda Sigur Rósar og Radiohead.
Píanóútgáfur af
snilldarlögum Radiohead
SIGRÍÐUR Í BRATTHOLTI Sýningu á Íslandsmyndum Howells í Bókasafni Mosfellsbæjar
lýkur nú um helgina.
Ljósmyndir úr Íslandsfer›