Fréttablaðið - 28.05.2005, Síða 55

Fréttablaðið - 28.05.2005, Síða 55
Ég var fjögurra ára þegar ég byrjaði að glíma við Tinna. Bróðir minn er tveim- ur árum eldri og ég fylgdi honum í öllu. Varð að læra að lesa um leið og hann. Tinni var ægilega mikil hetja. Ævintýra- maður, fullur af réttlætiskennd. Hann byrjaði snemma að ferðast um heim- inn, fór meðal annars til Tíbet og tunglsins, og það hafði ótrúleg áhrif á mig. Heimspekin að baki ævintýrunum er skemmtileg og úthugsuð. Hundur- inn Tobbi var besti vinur Tinna og við ræddum mikið hvort Tobbi væri sam- kynhneigður. Komumst að þeirri niður- stöðu seinna, því Tobbi er þannig karakter meðan Tinni sjálfur er kyn- laus. Ég man aldrei eftir Tinna á kvennafari eða full- um eins og Kol- beinn kafteinn átti til. Bæði kona og karl bjuggu innra með honum, en án þeirra grunnhvata mannsins sem lúta að ást og kynlífi. Það er merkilegt og gerir Tinna ómannlegan, því á erfiðum stundum vildi maður óska að vera þeim kostum búinn. Sjálfur á ég marga „gay“ vini sem komu í stað gæðablóðsins Tobba og eins hetjunnar Tinna. Tinni var góður og mikill fyrirmyndar- drengur. Í bernsku minni var ekkert barnasjónvarp nema Stundin okkar í klukkutíma á sunnudögum, svo við bræðurnir lágum í Tinnabókunum, allt þar til ósómi unglingsáranna tók við og maður fór að líta hýru auga til hins kynsins. Við lituðum af kostgæfni ofan í svarthvítar myndir bókanna, lásum þær, fíluðum og skildum. Ég uppgötvaði snemma að fótspor Tinna voru þau sem ég vildi feta í. Ég þráði að kanna heiminn sjálfur og hitta bæði gott og vont fólk. Það hefur gengið eftir. Ég á að vísu eftir að fara til tunglsins, en hef ferðast á flesta staðina hans Tinna. Ekki markvisst heldur ómeðvitað og haft á bak við eyrað að Tinni hafði líka verið þar. Hann hafði svo mótandi grunnáhrif á persónu mína að það smitar allt lífið. Ég ætti kannski að koma upp alvöru styttu af Tinna í garðinum því hann er góð fyrirmynd sem allir mættu læra af. Ég held að mikill Tinni búi innra með mér. Get allavega ekki annað en von- að að svo sé. LAUGARDAGUR 28. maí 2005 39 Fótboltakappinn Garðar Gunnlaugsson og feg- urðardísin Ingunn Sig- urpálsdóttir völdu þrjá ómissandi hluti. Garðar Gunnlaugsson er að gera góða hluti í Val með meistaraflokki karla en þess á milli vinnur hann sem deildarstjóri heimilistækja í versluninni Expert, Skútuvogi. Fjölskyldan er ofar- lega í huga Garðars, enda svindlaði hann og nefndi kærustuna og börnin sem mikilvægustu hlutina: Fyrsti ómissandi hluturinn, ég hugsa að það sé bara konan, Ásdís Rán. Hún er algjör- lega ómissandi, sér alveg um mig. Ég hugsa að ég gæti ekki komist af án hennar. Svo eru það strákarnir mínir, Daníel Ingi og Róbert. Svo er einn á leiðinni, við eigum von á hon- um 5. ágúst. Þriðji hluturinn? Mér dettur eiginlega ekkert í hug. Á ég ekki bara að segja hárið? Og stríða bræðrunum aðeins? Ingunn Sigurpálsdóttir varð í öðru sæti í Fegurðarsamkeppni Íslands um síðustu helgi. Hún vinnur í Sautján í Kringlunni þessa dagana en brúnkan mun ekki fölna á henni þrátt fyrir inni- veruna því framundan er útskriftarferð til Majorku með Verzlun- arskólanum 1. júní. Ingunn útskrifast af hagfræðibraut Verzló á laugardaginn. Fyrsti hluturinn eru sandalar. Ég er rosalega mikil sandala- manneskja, á ófáa sandala. Þeir eru svo þægi- legir á sumrin. Svo er það hárgel sem er svo gott fyrir krullurnar. Ég er búin að nota lengi rosa- lega gott hárgel frá Indola sem heitir Cool Gel. Þriðji hluturinn er hlýrabolur. Ég nota síða hlýra- boli rosalega mikið, er í þeim undir öllu. Ég á hlýraboli í alls konar litum. GARÐAR OG INGUNN Hár og hárgel ÓMISSANDI ÁHRIFAVALDAR ARI ALEXANDER ERGIS LEIKSTJÓRI Fyrirmyndardrengurinn Tinni FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.