Fréttablaðið - 28.05.2005, Page 64

Fréttablaðið - 28.05.2005, Page 64
Sögusagnirnar um Brad Pitt og Angelinu Jolie deyja seint. Það styttist líka óðum í að myndin þeirra um morðóðu Smith-hjónin kemur til landsins. Það er næsta víst að kvikmyndahúsagestir af báðum kynjum eiga eftir að flykkj- ast á hana í von um að greina ein- hvern neista þeirra á milli. Jolie segist þó ekki vilja sofa hjá Brad á meðan hann er enn giftur Jennifer Aniston en þau eru ekki enn lögformlega skilin. Jolie segir ástæðuna vera þá að faðir hennar, Jon Voight, hafi haldið svo mikið framhjá móður hennar að hún vilji ekki vera hjásvæfa eins og svo margar konur í lífi föður hennar. „Ég gæti ekki litið í speg- il daginn eftir ef ég myndi gera eitthvað slíkt,“ sagði Jolie en var fljót að bæta því við að henni fyndist Brad æðislegur náungi og mjög jarðbundinn. ■ 48 28. maí 2005 LAUGARDAGUR Línuskautar fyrir Vigor ABEC 7 Vel búnir línuskautar á ótrúlegu verði Lokun: Reimar og kraftstrappar Rammi: Ál Hjól: Uretan 72 mm/80 mm eftir stærð Legur: ABEC 7 Stærðir frá 35 Tilboð 6.390 kr. Var áður 7.990 kr. Vigor barnaskautar Stækkanlegir barnaskautar Hjól: Uretan Legur: ABEC 3 Stærðir: 30-33 og 34-37 Tilboð 3.190 kr. Var áður 3.990 kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U TI 2 85 38 04 /2 00 5 SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 Rollerblade TRS A3 Góðir palla og „street“ skautar Sokkur: PFS Specialized. Lokun: Málmsmellur, reimar og kraftstrappar Rammi: Rollerblade UFS Nylon og trefjaplast Hjól: Rollerblade 55mm/89A Legur: ABEC 5 Verð 19.990 kr. Rollerb Rollerblade Stækkanleg Rammi: Tre Hjól: 72mm Legur: ABE Stærðir: 30 Verð 9. VIGOR línuskautarnir eru vel búnir og á afar hagstæðu verði. 20% afslát tur Fyrsta sólóplata Bigital BIGITAL Birgir Örn Steinarsson er að ljúka upptökum á sinni fyrstu sólóplötu. Tónlistarmaðurinn Birgir Örn Steinarsson, sem hefur gert garð- inn frægan með hljómsveitinni Maus, er um þessar mundir að ljúka upptökum á sinni fyrstu sólóplötu. Birgir hefur búið í London und- anfarna mánuði og gefur plötuna út undir listamannsnafninu Bigi- tal. Upptökustjóri er hinn þekkti Tim Simenon sem tók m.a. upp plötuna Ultra með Depeche Mode, sem er ein af uppáhaldsplötum Birgis, og lagið Play Dead með Björk. „Það er mjög auðvelt að vinna með honum og það hafa engir árekstrar orðið okkar á milli. Ég fæ eiginlega að gera það sem ég vil og hann fínpússar það svo,“ segir Birgir. Á meðal þeirra sem hafa lagt Birgi lið á plötunni eru Roger O’Donnell úr The Cure, Halli úr Botnleðju, Gaukur úr Quarashi, Toggi úr Skyttunum og Smári „Tarfur“ Jósepsson, liðs- maður Hot Damn! Platan, sem kemur út í júlí eða ágúst, hefur fengið vinnuheitið I Surrender og er að sögn Birgis mjög ólík því sem Maus hefur gert í gegnum tíðina. Hann hefur nýlok- ið við að smala saman í nýja hljóm- sveit og stefnir á að spila á fyrstu tónleikunum í London í ágúst. Síð- an er stefnan sett á Iceland Air- waves í haust. „Við byrjum að æfa í júlí. Það er leiðinlegt að hafa ekki hljómsveit núna til þess að spila því ég er byrjaður að sakna þess að vera á sviði,“ segir Birgir. Maus verður í pásu á meðan Birgir einbeitir sér að sólóferli sínum en auk hans er Daníel, trommuleikari Maus, einnig að vinna að sinni fyrstu sólóplötu. ■ Vill ekki ver›a eins og pabbinn Það styttist í að kviðdómendur í réttarhöldunum yfir poppkóngin- um Michael Jackson dragi sig í hlé og úrskurði hvort Jackson sé sekur eða saklaus. Saksóknarinn reynir af öllum mætti að sann- færa þá um að Gavin Arvizo sé trúverðugt vitni eftir að fjöldi frægra vina söngvarans hafði lýst yfir efasemdum sínum um heil- indi drengsins og móðurinnar. Dómarinn í málinu hefur nú leyft að kviðdómnum verði sýnt mynd- band með yfirheyrslum yfir Gavin í von um að sanna að framburður Gavins hafi ekkert breyst í tímans rás eins og lögfræðingar Jacksons halda fram. Þeir hafa farið fram á að móðirin, Gavin og sálfræðingur sem móðirin réð, verði til taks sem vitni þegar myndbandið hefur ver- ið sýnt. Ljóst er að ekki eru öll kurl komin til grafar í málinu sem senn fer að ljúka. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY I M AG E / N O R D IC P H O TO S Vi›snúningur í réttarhöldunum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.