Fréttablaðið - 28.05.2005, Síða 65

Fréttablaðið - 28.05.2005, Síða 65
Bandarískri niðurhalssíðu hefur verið lokað eftir að 10.000 gestir hennar höluðu niður nýju Star Wars-myndinni á tölvurnar sínar áður en myndin var frumsýnd. Þetta er í fyrsta skipti sem lög- reglan leggur í þessar aðgerðir í Bandaríkjunum en alríkislög- reglumenn í tíu borgum tóku þátt í þessari aðgerð. Heimasíðan hef- ur verið vinsæl meðal þeirra sem nota hið svokalla Bit torrent kerfi sem gerir netverjum kleift að hala niður stórar skrár eins og kvikmyndir á mjög skjótan hátt. Yfir hundrað og þrjátíu þúsund netverjar voru skráðir sem með- limir síðunnar og hafa þeir getað halað niður kvikmyndir frá síð- unni. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir kvikmyndaiðnaðinn í Banda- ríkjunum sem hefur lengi barist fyrir því að gera þessar síður ólöglegar og segja þessa tækni kosti iðnaðinn mörg hundruð milljarða. Svíar hafa reyndar tek- ið þetta skref til fullnustu og bannað slíkar síður frá og með 1.júlí, fyrstir allra þjóða. ■ 49LAUGARDAGUR 28. maí 2005 r alla fjölskylduna Rollerblade AERO 90 Skel: Triforce Lite. Extra Vented perforated toe. Sokkur: PFS Specialized XV, Coolmax® í tungu Lokun: Hraðreimar, smellur og kraftstrappar Rammi: Ál Hjól: 90 mm/84A Rollerblade Legur: ABEC 7 Einnig til í dömuútfærslu Verð 19.990 kr. Rollerblade Geoblade 1.3 Skel: Bio Dynamic Triforce Sokkur: PFS Comfort Lokun: Hraðreimar, smellur og kraftstrappar Rammi: Trefjaplast Hjól: 78 mm/80A Rollerblade Legur: ABEC 5 Einnig til í dömuútfærslu Verð 9.990 kr. Rollerblade Geoblade 1.5 Skel: Bio Dynamic Triforce Sokkur: PFS Training Lokun: Hraðreimar, smellur og kraftstrappar Rammi: Trefjaplast Hjól: 78 mm/80A Rollerblade Einnig til í dömuútfærslu Verð 13.990 kr. Rollerblade AERO 6W Skel: Triforce Lite Sokkur: PFS Training Lokun: Smellur og kraftstrappi Rammi: Ál Hjól: 80 mm/80A Rollerblade LITE Legur: ABEC 5 Einnig til í herraútfærslu Verð 15.990 kr. ade Microblade XT Microblade XT barnaskautar aplast 0A 3 4, 33-37,5 og 36-40 990 kr. í Hagkaupum Nýtt Ni›urhalssí›u loka› NIÐURHAL Á STAR WARS STÖÐVAÐ Bandarískri niðurhalssíðu sem gerði net- verjum kleift að hala niður Star Wars- myndinni áður en hún kom í bíó hefur verið lokað. Damon Albarn er snillingur. Maðurinn er alltaf að þróa stíl sinn lengra og virðist búa yfir ótæmandi sköpunarkrafti. Hann er líka búinn að finna leið til þess að halda sér í framlínu poppsins, án þess að andlit hans þurfi að vera framan á öllum tónlistarblöðunum, eða stans- laust í sjónvarpinu. Bara til þess að hafa það á hreinu, þá er Gorillaz nær alfarið sólóverk- efni Blur-söngvarans sem hann dulbýr sem teiknimyndahljóm- sveit. Svona getur hann leyft sér að gera popptónlist blandaða hiphoppi og elektróník án þess að nokkur kippi sér upp við það. Hin nýja plata Gorillaz er nær fullkomin. Hún er stórkost- leg og heilsteypt poppsmíð sem gengur upp. Sumarslagarinn Feel Good Inc er aðeins eitt horn af risastóru og litríku málverki. Hér blandar Albarn saman kór- um við hiphoptakta, söguupp- lestur við dub-grúf og ég veit ekki hvað og hvað. Það er ekki eitt lag á þessari plötu sem er ekki magnað. Næsti slagari verður líklegast Dirty Harry og svo koll af kolli. Mér gæti persónulega ekki verið meira sama um þessar teiknimyndafígúrur. Þær eru svo sem flottar og hugmyndin skemmtileg, en þær eru aukaat- riði. Tónlistin er aðalatriðið, og tónlistin er stórkostleg. Hugsan- lega hin fullkomna poppplata. Til hamingju Damon. Birgir Örn Steinarsson Meistarastykki Albarns GORILLAZ: DEMON DAYS NIÐURSTAÐA: Damon Albarn reynir að gera hina fullkomnu poppplötu. Niðurstaðan er per- sónulegt meistarastykki, það besta sem hann hefur skilað af sér á löngum og blómlegum ferli. [ TÓNLIST ] UMFJÖLLUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.