Fréttablaðið - 30.05.2005, Page 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
64,60 64,90
117,69 118,27
80,88 81,34
10,87 10,93
10,12 10,18
8,79 8,85
0,60 0,60
95,84 96,42
GENGI GJALDMIÐLA 27.05.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
112,50 -0,01%
4 30. maí 2005 MÁNUDAGUR
Ari Edwald furðar sig á ummælum Runólfs Ágústssonar við útskrift í Bifröst:
Marklaust tal um launamun
JAFNRÉTTI Ari Edwald, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segir að rektor Viðskipta-
háskólans á Bifröst hafi að öllum
líkindum viljað vekja athygli á út-
skriftinni og stofnun rannsóknar-
miðstöðvar, með þeim ummælum
sínum að íslenskt atvinnulíf meti
konur ekki til jafns við karlmenn
með sömu menntun.
Runólfur Ágústsson rektor
sagði í útskriftarræðu sinni á
laugardag að hann skammaðist
sín fyrir þessi skilaboð og byggði
orð sín á könnun um stöðu og störf
nemenda sem hafa útskrifast frá
Bifröst. Þar kom fram að þrátt
fyrir að konur tvöfaldi laun sín
eftir námið muni samt nær fimm-
tíu prósentum á launum þeirra og
launum karla.
„Þessi könnun gæti aldrei talist
vera könnun á launamun milli
kynja því hún gerir enga tilraun
til að bera saman laun fyrir sam-
bærilegan vinnutíma í sambæri-
legum störfum,“ segir Ari sem
telur þó ljóst að til sé óútskýrður
launamunur en hann sé almennt
ekki eins mikill og kemur fram í
könnuninni. Könnunin geti þó ver-
ið vísbending um ýmislegt annað
sem áhugavert væri að skoða
frekar, eins og starfsval nýút-
skrifaðra og hvernig fólk verð-
leggi sig. - sgi
Vilja opinbera rannsókn
Stjórnarandsta›an segir greinar Fréttabla›sins sta›festa vafasöm vinnubrög› ríkisstjórnarinnar vi›
einkavæ›ingu bankanna. Forsætisrá›herra og utanríkisrá›herra voru úti á landi og flví ná›ist ekki í flá.
STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður Vinstri-grænna,
segir greinar Fréttablaðsins um
sölu ríkisbankanna staðfesta það
sem Vinstri-grænir héldu fram
um að pólitísku handafli hefði
verið beitt við söluna. Hann seg-
ir greinarnar varpa skýrara ljósi
á ýmislegt í ferlinu og telur
nauðsynlegt að þetta mál verði
kannað betur. „Mér finnst eðli-
legt að það fari fram óháð og op-
inber rannsókn á þessum vinnu-
brögðum. Þetta eru svo alvarleg-
ar ásakanir um ámælisverð
vinnubrögð að þetta verður að
rannsaka til hlítar og svipta af
þessu leyndarhnjúpnum,“ segir
Steingrímur.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar,
segir greinar Fréttablaðsins
renna stoðum undir það sem
menn töldu sig vita að einkavæð-
ingarferli bankanna hefði verið
handstýrt af hálfu ráðherranna.
Hún segir líka að fara þurfi betur
ofan í saumana á málinu í fram-
haldinu. Þar horfir hún til fjár-
laganefndar sem vinnur að rann-
sókn málsins að kröfu fulltrúa
Samfylkingarinnar. „Ég tel að
fjárlaganefnd eigi að halda yfir-
ferð sinni um málið áfram og
framhaldið ræðst síðan af því
hvernig hún stendur að skoðun
málsins og tekur á því sem rann-
sóknin leiðir í ljós.“
Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra sem sat í
ráðherranefnd ríkisstjórnarinnar
við undirbúning að sölu ríkisbank-
anna, vildi ekki tjá sig um skrif
Fréttablaðsins um einkavæðing-
arferlið þegar eftir því var leitað
en vísaði til pistils á heimasíðu
sinni frá 18. apríl síðastliðnum.
Ekki tókst að ná í Halldór Ás-
grímsson forsætisráðherra; að-
stoðarmaður hans sagði hann úti á
landi og ekki hægt að ná í hann.
Sömu sögu var að segja af Davíð
Oddssyni utanríkisráðherra, sem
var í sumarbústað sínum.
Þá tókst ekki heldur að hafa
uppi á Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra en hann var þó ekki ut-
anbæjar. - ssal@frettabladid.is
Trúlaus prestur í Danmörku:
Kominn aftur
í hempuna
TÅRBÆK, AP Danski presturinn
Thorkild Grosbøll, sem í blaða-
viðtali í fyrra
sagðist ekki
trúa á Guð,
fékk hlýjar
móttökur frá
söfnuði sín-
um þegar
hann sneri
aftur til
starfa í gær.
Honum var
vikið úr emb-
ætti eftir að
blaðaviðtalið
birtist, en
endurnýjaði
vígsluheit sitt fyrr í þessum
mánuði.
Hann verður þó áfram undir
sérstöku eftirliti biskups, enda
tók presturinn fram að afstaða
sín til Guðs hefði ekkert breyst.
Presturinn nýtur hins vegar
mikillla vinsælda í söfnuði sín-
um og þykir ná einstaklega vel
til aldraðra jafnt sem unga
fólksins. ■
Átján Ísraelar:
Gruna›ir um
njósnir
JERÚSALEM, AP Átján manns hafa
verið handteknir í Ísrael vegna
gruns um iðnaðarnjósnir.
Margir hinna handteknu eru
háttsettir yfirmenn í ísraelskum
fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækj-
um. Þeim er gefið að sök að hafa
með sérstökum forritum, svo-
nefndum Trójuhestum, brotist inn
í tölvur hjá keppinautum sínum
og sölsað þannig undir sig við-
kvæm gögn.
Ekki liggur fyrir hversu mik-
inn ágóða fólkið hafði af sínum
meintu glæpum en lögregla telur
að um mikið fé sé að ræða. ■
THORKILD GROSBØLL
Fær að vera prestur
áfram þótt hann trúi
ekki á Guð.
VEÐRIÐ Í DAG
ARI EDWALD Telur könnun sem rektor
byggir ummæli sín á ekki mæla launamun
milli kynja.
LÖGREGLUFRÉTTIR
TVEIR Á 132 KÍLÓMETRA HRAÐA
Lögreglan á Hvolsvelli stöðvaði
tvo ökumenn á 132 kílómetra
hraða. Annar var á leiðinni
austur en hinn í vestur. Tölu-
verð umferð var vestur í gær
vegna mótorkrossmóts á Vík í
Mýrdal en gekk hún að mestu
leyti vel.
ÞRJÓSKUR ÞJÓFUR Lögreglan í
Vestmannaeyjum hafði afskipti
af heldur þrjóskum þjófi á
laugardagskvöld. Hann braust
inn klukkan níu um kvöldið en
var fljótlega gripinn en síðan
sleppt. Tæpum klukkutíma síð-
ar var hann aftur gripinn eftir
að hafa rænt peningum úr kvik-
myndahúsi bæjarins. Fékk hann
fyrir vikið að eyða laugardags-
nóttinn bak við lás og slá.
DAVÍÐ ODDSSON
Utanríkisráðherra
var í sumarbústað
og ekki hægt að ná
í hann.
HALLDÓR ÁS-
GRÍMSSON Forsæt-
isráðherra var úti á
landi og ekki hægt
að ná í hann.
VALGERÐUR SVERR-
ISDÓTTIR Vildi ekki
tjá sig um málið.
GEIR H. HAARDE:
Var í bænum en
ekki hægt að ná í
hann.
BÚNAÐARBANKINN SELDUR Söluferli ríkisbankanna er harðlega gagnrýnt og ítarlegrar rannsóknar krafist á málinu. Hér sjást (frá vinstri)
Geir H. Haarde fjármálaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Ólafur Ólafsson, sem þá var fulltrúi Kers í S-
hópnum svokallaða, og þýski bankastjórinn Michael Sautter ganga frá viðskiptunum.