Fréttablaðið - 30.05.2005, Blaðsíða 1
James Bond-
bíll til sölu
BÍLA-BERGUR SELUR:
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
PARÍS, AP Frakkar höfnuðu stjórn-
arskrársáttmála Evrópusam-
bandsins með afgerandi hætti í
þjóðaratkvæðagreiðslunni sem
fram fór í gær. Úrslitin eru reið-
arslag fyrir Jacques Chirac, for-
seta landsins, og draga auk þess
úr líkunum á að sáttmálinn taki
gildi í óbreyttri mynd.
Kjörsókn var prýðileg í kosn-
ingunum í gær, um sjötíu prósent
þjóðarinnar neyttu atkvæðisrétt-
ar síns. Þegar 83 prósent at-
kvæða höfðu verið talin í gær-
kvöld tilkynnti franska innanrík-
isráðuneytið að 57,26 prósent
hefðu sagt nei en aðeins 42,74
prósent hefðu sagt já.
Stuttu síðar flutti Chirac stutt
sjónvarpsávarp þar sem hann
viðurkenndi ósigur sinn. „Frakk-
land hefur sagt sína skoðun á lýð-
ræðislegan hátt. Þetta er sjálf-
stæð ákvörðun ykkar og ég virði
hana,“ sagði hann en bætti við að
staðfestingarferlið yrði að halda
áfram í öðrum ríkjum Evrópu-
sambandsins.
Philippe de Villiers, leiðtogi
andstæðinga stjórnarskrársátt-
málans, sagði að úrslitin þýddu
að sáttmálinn væri nú dautt plagg
og skoraði á Chirac að segja af
sér.
Úrslitin í Frakklandi auka lík-
urnar á að Hollendingar hafni
sáttmálanum í sinni atkvæða-
greiðslu sem haldin verður á mið-
vikudag. Sjá síðu 6
Afgerandi úrslit í þjóðaratkvæðagreiðslunni:
Frakkar höfnu›u sáttmálanum
Mest lesna
Fasteignablaðið
Íslendingar 18-49 ára
29%
43%
*
*Lestur fasteignablaða.
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup maí 2005
BJART MEÐ KÖFLUM Hætt við
lítilsháttar þokusúld vestan til og
síðdegisskúrum víða um land. Hiti víðast 7-
15 stig, hlýjast til landsins. VEÐUR 4
MÁNUDAGUR
30. maí 2005 - 144. tölublað – 5. árgangur
FH vann í Vesturbænum
FH-ingar unnu
góðan sigur á KR,
0–1, á KR-vellinum
í gær. Hafnfirð-
ingar hafa fullt
hús stiga
þegar deildin
fer í lands-
leikjafrí.
ÍÞRÓTTIR 20
Hægrisókn frá vinstri
Hugmyndir sjálfstæðismanna
um byggð í eyjunum við
Reykjavík sýna að þeir eru
reiðubúnir að sækja gegn R-
listanum á forsendum
sem vinstrimenn
ættu að setja fram
segir Guðmundur
Andri Thorsson.
UMRÆÐAN 16
Kann best vi› sig á
Laugaveginum
ÁSTHILDUR KJARTANSDÓTTIR:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● hús ● fasteignir
▲
ÚRSLITUNUM FAGNAÐ Andstæðingar stjórnarskrársáttmálans komu saman á Bastillu-torginu í París í gærkvöld og fögnuðu úrslitunum
vel og innilega. Þótt flest benti til að Frakkar myndu hafna sáttmálanum í þjóðaratkvæðagreiðslunni þá var niðurstaðan meira afgerandi
en reiknað hafði verið með. Jacques Chirac Frakklandsforseti viðurkenndi ósigur sinn í sjónvarpsávarpi þegar hugur Frakka var orðinn
ljós.
Stjórnarsamstarfi› lagt
undir í átökunum um VÍS
Halldór Ásgrímsson hóta›i Daví› Oddssyni a› hætta vi› einkavæ›ingu bankanna fengi Samson a› kaupa
VÍS me› Landsbankanum. Daví› hef›i flá sliti› ríkisstjórnarsamstarfinu. Eigendurnir, S-hópurinn og
Landsbankinn, tókust á um yfirrá›in í VÍS. S-hópurinn kalla átökin „Sex daga strí›i› um VÍS“.
EINKAVÆÐING Átökin milli eigenda-
hópanna tveggja í tryggingafélag-
inu VÍS urðu til þess að ríkis-
stjórnarsamstarf Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks var í
hættu. Halldór Ásgrímsson hótaði
Davíð Oddssyni því að ef VÍS yrði
selt Samson með Landsbankanum
myndi hann hætta við einkavæð-
ingu bankanna. Með því að stöðva
einkavæðingarferlið væri hann að
brjóta gegn stjórnarsáttmálanum
og Davíð Oddsson hefði slitið rík-
isstjórnarsamstarfinu.
S-hópurinn átti helming í VÍS á
móti Landsbankanum. Mikilvægi
VÍS hvað varðar bankasöluna
felst helst í því að tryggingafélag
á borð við VÍS er mjög öflugur
bakhjarl í fjárfestingum.
Þetta kemur fram í þriðju
fréttaskýringu Fréttablaðsins í
greinaflokki um einkavæðingu
Landsbankans og Búnaðarbank-
ans sem birtist í blaðinu í dag.
Þar segir einnig að Landsbank-
inn hafi gerst brotlegur gegn S-
hópnum með því að selja um 7
prósenta hlut í VÍS eftir að S-hóp-
urinn hafði afturkallað söluumboð
sem hann hafði veitt Landsbank-
anum um sex vikum áður. S-
hópurinn átti helming af hlutnum
sem Landsbankinn seldi og heldur
því fram að Landsbankinn hafi
selt sjálfum sér hlutinn.
S-hópurinn sagði söluna brot á
lögum um verðbréfaviðskipti, lög-
um um viðskiptabanka og reglum
Kauphallarinnar. S-hópurinn skrif-
aði bréf til Kauphallarinnar og
Fjármálaeftirlitsins þar sem vakin
var athygli á háttsemi Landsbank-
ans og óskaði eftir því að gripið
yrði til viðeigandi ráðstafana og
viðurlaga eftir atvikum.
Mitt í þessum deilum hitti
Björgólfur Guðmundsson, einn
þriggja sem stóðu að Samson sem
sóttist eftir að kaupa Landsbank-
ann eða Búnaðarbankann, Ólaf
Ólafsson úr S-hópnum til að ræða
um VÍS. Þá voru enn tvær vikur í
að framkvæmdanefndin tilkynnti
að hún myndi hefja viðræður við
Samson um kaupin á Landsbank-
anum.
S-hópurinn kallar átökin „Sex
daga stríðið um VÍS“.
- sda/ Sjá síður 4, 10 og 11.
▲
FÓLK 30
ÆTLAR AÐ FÁ SÉR HÚSBÍL
Lekinn í Sellafield:
Ur›u einskis
varir í tæpt ár
BRETLAND Nú er komið í ljós að
83.000 lítrar af mjög geislavirk-
um vökva láku úr ónýtri leiðslu í
Thorp-kjarnorkuendurvinnslu-
stöðinni í Sellafield í allt að níu
mánuði án þess að starfsmenn
hennar yrðu þess áskynja.
Breska dagblaðið The
Independent on Sunday sagði í
gær frá niðurstöðum skýrslu um
lekann sem uppgötvaðist í síðasta
mánuði en í henni eru starfsmenn
Thorp-stöðvarinnar harðlega
gagnrýndir fyrir aðgæsluleysi
sitt.
Ráðamenn viðurkenna í sam-
tali við blaðið að hugsanlegt sé að
stöðin verði ekki opnuð framar en
hún hefur verið lokuð síðan lekinn
uppgötvaðist. Þótt lokunin verði
kærkomin gæti hún kostað skatt-
greiðendur milljarða punda. ■
VEÐRIÐ Í DAG
Fádæma vinsældir Lost
Lokaþátturinn í
Lost fékk meira
áhorf í BNA en
lokaþáttur
bandaríska
Idolsins.
SJÓNVARP 25
M
YN
D
/A
FP