Fréttablaðið - 30.05.2005, Blaðsíða 21
5MÁNUDAGUR 30. maí 2005
GÓLFEFNIN FÆRÐU
HJÁ OKKUR
BALTIC WOOD
parket
Teppi á stigaganga - í miklu úrvali.
Komum og gerum verðtilboð.
Filtteppi - margir litir.
Verð frá kr. 295,- m2
GEGNHEILAR
FLÍSAR
Verðdæmi:
30 x 30 kr. 1.150,- m2,
t.d.
á bílskúrinn
Rakavarið
Fasað
Þykkt: 8 mm
Kynningarverð: kr. 2.125,- m2
Smellt plastparket
með viðaráferð
Verðdæmi:
Eik Unique 14 mm
Tilboð kr. 2.650,- m2
flísar fyrir vandláta
Fífla er best að stinga upp
með rót og öllu.
Á hverju ári hefst baráttan við
fíflana sem spretta upp í görð-
um fólks og yfirtaka alla gras-
flötina ef ekkert er að gert. Eitt
ráðið er að nota sérstakt fíflaeit-
ur sem úðað er á fíflana og drep-
ur þá án þess að skaða grasið.
Gallinn við eitrið er að það hef-
ur slæm áhrif á umhverfið og
það skilur eftir sig bletti á gras-
flötinni sem tekur smá tíma að
jafna sig.
„Ég ráðlegg fólki að stinga
upp fíflana að vori þegar þeir
eru vel sjáanlegir og viðráðan-
legri en þegar líða tekur á sum-
arið,“ segir Kristín Karlsdóttir,
garðyrkjufræðingur hjá
Gróðrastöðinni Storð í Kópa-
vogi.
„Hægt er að nota kantskera
eða svokallaðan fíflabana til
verksins en mestu skiptir að ná
upp rótinni,“ segir Kristín. Hún
tekur það fram að verið sé að
reyna að minnka eiturefnanotk-
un í görðum og þetta því ein-
faldasta og besta leiðin.
Fíflabani er notaður til að stinga upp
fíflana. Hann fæst í Garðheimum og
kostar 2.250 kr.
Baráttan við fíflana
Fíflarnir eru duglegir að breiða úr sér og yfirtaka grasflötina.
Nú er um að gera að nýta tímann og
dytta að því sem hefur farið illa í vetur.
Ekki gleyma
blómunum
Nú er sumarið loksins komið og
meiri tími gefst til að dytta að
hinu og þessu á heimilinu.
Farðu vel og vandlega yfir húsið
þitt að utan og gerðu lista yfir það
sem þú þarft að lagfæra.
Í heitu veðri fara skordýrin á
kreik. Hafðu augun opin fyrir
geitungabúum í þakrennum eða
öðrum óæskilegum skordýrum og
láttu eitra fyrir þeim strax.
Lappaðu upp á málninguna ef
hún er farin að flagna af eða upp-
litast og sparslaðu í þær sprungur
sem hafa myndast í kuldanum. Ef
þú ert með sólpall sem er orðinn
slappur ættirðu að taka hann í
gegn og lakka og gera fínan fyrir
sumarið því umferðin um hann er
auðvitað mun meiri á sumrin en
veturna. Stingdu mosann upp úr
hellunum og ekki gleyma því mik-
ilvægasta – fáðu þér fullt af fal-
legum sumarblómum til að gleðja
augað.
Trjágrein
undir þakið
Ekki búa allir svo vel að eiga
garð en margir eru með svalir og
þeim er hægt að breyta í lítinn
sælureit með smá lagni og miklu
hugmyndaflugi. Þeir sem dreym-
ir um að hafa tré geta fest stóra
trjágrein fyrir ofan svalirnar en
flestar svalir hafa þak. Í greinina
er hægt að hengja kertastjaka,
luktir eða falleg hengiblóm og
með því breytt ásýnd og stemmn-
ingu svalanna í einni svipan. Jafn-
vel væri hægt að mála loftið ofan
við trjágreinina í fallegum lit.