Fréttablaðið - 30.05.2005, Blaðsíða 73
A› falla í
fyrstu lotu
17MÁNUDAGUR 30. maí 2005
Þegar síðasta nýjungin í íslenskri
blaðamennsku, „Blaðið“, hóf að aug-
lýsa sig í sjónfjölmiðlum, var áhersla
lögð á hve hlutlaust málgagnið yrði í
öllum fréttaflutningi. Ekki var tekið
fram að málgagnið hygðist ekki vera
hlutlaust í leiðurum sem að sið
Fréttablaðsins eru nefndir skoðun.
Einhver helsta frétt „Blaðsins“
þessa upphafsdaga þess hefur verið
„fréttir“ af einum atburði á lands-
fundi Samfylkingarinnar: kjöri vara-
formanns flokksins þar sem 28 ára
gamall þingmaður, Ágúst Ólafur
Ágústsson, bar sigurorð af öðrum
þingmanni, Lúðvíki Bergvinssyni,
með miklum atkvæðamun; Ágúst
hlaut rúm 500 atkvæði þingfulltrúa
en Lúðvík tæp 300.
Þriðjudaginn 24. maí birti „Blað-
ið“ fregnir þess efnis að Ágúst hefði
sennilega sigrað með svikum. Þau
áttu að felast í þessu: Mjög ungt fólk
hefði verið „lokkað“ í Samfylkinguna
með loforðum um bjór og pizzu til að
kjósa Ágúst; því hefði síðan verið
ekið á landsfundinn í rútum en þar
sem fáir hefðu mætt (þrátt fyrir rút-
urnar, pizzurnar og bjórinn!) hefði
verið gripið til þess ráðs að láta
stuðningsmenn Ágústar á landsfund-
inum kjósa margsinnis undir mis-
munandi kennitölum.
Síðastnefnda ásökunin, sem var
tvíendurtekin í „Blaðinu“ miðviku-
daginn 25. maí, bæði í „frétt“ og í
leiðara, var raunar ekki síst hörð
árás á framkvæmdastjórn Samfylk-
ingarinnar og starfsfólk landsfund-
arins, hún hafði áður komið fram og
verið ítarlega svarað í fjölmiðlum,
nema í „Blaðinu“ sem birtir engar
leiðréttingar í þessu sérstæða máli.
Ég hringdi í fréttastofu „Blaðs-
ins“ seinni hluta dagsins þriðjudag-
inn 24. maí og átti langt og vinsam-
legt samtal við einn starfsmann
blaðsins. Ég flutti honum annars veg-
ar frétt og hins vegar skýringu og
byggði ég mál mitt bæði á setu minni
sem fulltrúi á landsfundinum og ára-
tugareynslu af stjórnmálum.
Fréttin fólst í því að í lok lands-
fundarins föstudaginn 20. maí, dag-
inn fyrir varaformannskosninguna,
hefði Lúðvík Bergvinsson sent öllum
þingfulltrúum sérstakt boð í tilefni
kosninganna þar sem „léttar veiting-
ar“ yrðu í boði. Með hliðsjón af „pizz-
um og bjór Ágústar“ fyrir eitthvert
ungt fólk (og sem enginn virðist
kannast við) taldi ég rétt að getið
yrði boðs mótframbjóðanda hans. Í
samtali mínu við Karl Garðarson, rit-
stjóra, daginn eftir, 25. maí, taldi
hann umrætt boð Lúðvíks vera í alla
staði eðlilegt, það væri engin frétt,
en allt öðru máli gegndi um „pizzurn-
ar og bjórinn“ enda hefðu „nokkrar
mæður“ kvartað undan því með
SMS-skilaboðum!
Skýring mín fólst í því að segja
frá því mati mínu að atkvæðamuninn
milli þeirra Ágústar og Lúðvíks
mætti að mestu leyti útskýra með að-
stæðum sem hefðu ekkert beint við
keppnina milli þeirra tveggja að
gera. Staðreyndin væri sú að Lúðvík
hefði lengi verið í baráttu við Mar-
gréti Frímannsdóttur um efsta sæti
Samfylkingarinnar í Suðurkjör-
dæmi, sem hann tapaði 2003, og þar
með keppni um hugsanlegan ráð-
herrastól eftir næstu kosningar.
Margrét væri mjög vinsæl í Sam-
fylkingunni og oft bent á það að án
atbeina hennar væri sá flokkur ekki
til. Hún var raunar sérstaklega hyllt
fyrir þetta frumherjahlutverk á
landsfundinum. Margir stuðnings-
menn Margrétar sáu í framboði Lúð-
víks ógnun við stöðu hennar í flokkn-
um og studdu því Ágúst í varafor-
mannsbaráttunni.
Nú er það svo að undirritaður
kaus Lúðvík Bergvinsson í umræddu
varaformannskjöri þrátt fyrir kokk-
teilboðið. Hins vegar er mér annt um
sannleikann og illa við tilbúnar frétt-
ir um leið og þagað er um aðrar.
Mjög ljóst er hins vegar að „Blaðið“
hefur nú á fyrstu starfsdögum sínum
fallið rækilega í markmiði sínu um
hlutlausan fréttaflutning.
GÍSLI GUNNARSSON
PRÓFESSOR Í SAGNFRÆÐI
UMRÆÐAN
„BLAÐIГ OG
LANDSFUNDUR
SAMFYLKINGAR-
INNAR