Fréttablaðið - 30.05.2005, Blaðsíða 76
FÓTBOLTI KR og FH mættust í
fyrsta stórleik sumarsins í Frosta-
skjóli í gær. Það sást greinilega í
þeim leik hvort liðið er á toppnum
og hvort liðið á langt í land með að
ná sama klassa. FH vann enn eitt
árið í Frostaskjólinu og er búið að
stinga KR af í deildinni eftir að-
eins fjórar umferðir.
Það var þó ljóst strax á fyrstu
mínútu að Íslandsmeistararnir
áttu erfitt verkefni fyrir höndum.
KR-ingar mættu gríðarlega
grimmir til leiks, þjörmuðu
hressilega að Hafnfirðingum við
hvert tækifæri og Gunnar Krist-
jánsson fékk gult spjald fyrir
fyrsta brot leiksins.
Þrátt fyrir mikinn vilja fór lít-
ið fyrir færunum og fyrri hálf-
leikur einkenndist að mestu af
gríðarlegri stöðubaráttu þar sem
ekki var gefin tomma eftir. FH-
ingar voru fljótlega pirraðir og
mátti litlu muna að upp úr syði.
Þótt KR stýrði leiknum að mestu
gekk liðinu ekkert að skapa sér
færi. Spilamennska liðsins var
ekki vænleg til árangurs – há-
loftaspyrnur og flinkir strákar á
borð við Arnar Gunnlaugsson og
Grétar Hjartarson voru algjör-
lega sveltir og fengu boltann lítið
sem ekkert í fæturna. Þar að auki
var vængspil ekki til staðar hjá
liðinu.
FH-ingar voru að sama skapi
alltaf líklegir þótt þeim gengi illa
að opna sterka vörn KR. Það var
síðan einkennandi fyrir leik liðs-
ins í sumar að þeir skyldu taka
forystuna með marki rétt fyrir
hlé. Siim tók aukaspyrnu og Jón
Þorgrímur skallaði knöttinn í net-
ið.
Fyrstu 20 mínútur síðari hálf-
leiksins voru lítið fyrir augað. FH
féll aðeins til baka og svitnaði
ekkert sérstaklega við að stöðva
máttleysislegar sóknir heima-
manna. Þegar 25 mínútur voru
eftir af leiknum skiptu KR-ingar
um tvo leikmenn og færðu Sig-
mund Kristjánsson framar á völl-
inn. Þær skiptingar breyttu ná-
kvæmlega engu því KR skapaði
ekkert það sem eftir var. Tvisvar
sinnum vildi liðið fá vítaspyrnu en
fékk ekki. Þar með er ógn heima-
manna í seinni hálfleik upptalin.
FH-ingar eru komnir með væn-
lega stöðu eftir leikinn og sér
maður vart að nokkurt lið geti
skákað þessu gríðarlega sterka
liði. Þeir eru með frábæra vörn,
þétta miðju, stórskemmtilega
sóknarmenn og eru alltaf líklegir
til að skora og gera það oftar en
önnur lið hér á landi. FH er besta
lið landsins í dag og það má mikið
gerast ef það hampar ekki titlin-
um á ný í haust. KR verður að
gera róttækar breytingar á sókn-
arleik sínum, sem er ekki boðleg-
ur, ætli liðið sér einhverja hluti í
sumar. Vörnin er fín, miðjan sterk
varnarlega en miðjumennirnir
skapa sama sem ekkert og KR fær
enga nýtingu út úr Grétari Hjart-
arsyni sem er einn og týndur í
fremstu víglínu.
„Ég hef bara náð að skora fram
hjá Stjána tvisvar þannig að þetta
var mjög skemmtilegt,“ sagði
hetja FH-inga, Jón Þ. Stefánsson.
„Þetta var rosalega harður leikur
og mikið um tæklingar. Það var
allt í gangi.“ -hbg, óój
30. maí 2005 MÁNUDAGUR
> Við finnum til með ...
... Sævari Þór Gíslasyni sem óttast er að
hafi slitið krossbönd í leik Fylkis og Vals á
fimmtudaginn
síðastliðinn. Sævar hefur
ekki náð að klára heilan
leik vegna meiðsla í
vor og svo virðist sem
að honum hafi ekki
verið ætlað að leika
knattspyrnu í sumar.
Því miður.
Búið spil hjá Sævari?
Fylkismenn hafa orðið fyrir miklu áfalli en
óttast er að Sævar Þór Gíslason hafi slitið
krossbönd í leik Fylkis og Vals á
fimmtudag sem Fylkir reyndar tapaði,
2–1. Ljóst er að þetta er mikil blóðtaka
fyrir Fylki sem sárlega vantar
markaskorara fyrir átökin í sumar.
sport@frettabladid.is
20
> Við hrósum ...
.... FH-ingum fyrir sigur einn eitt árið í
Vesturbænum og undirstrikar svo ekki verði
um villst að þar fer
besta knattspyrnulið
landsins í dag. Liðið
hefur fullt hús stiga
eftir fjórar umferðir og
hefur aðeins fengið á
sig eitt mark til þessa.
FH hefur stungi› KR af í Landsbankadeildinni eftir sannfærandi sigur í Frostaskjóli, 1-0. FH er í sérflokki
á Íslandi í dag og ver›ur vart velt af stalli.
Sjáumst síðar, VesturbæingarHVAÐ? HVENÆR? HVAR?
27 28 29 30 31 1 2
Mánudagur
MAÍ
■ ■ LEIKIR
19.15 ÍA og Fylkir mætast á
Akranesvelli í Landsbankadeild karla.
19.15 Grindavík og ÍBV mætast á
Grindavíkurvelli í Landsbankad. karla.
20.00 Fjölnir og Þróttur R. mætast
á Fjölnisvelli í 1. deild kvenna.
20.00 HK/Víkingur og Víðir
mætast á Víkingsvelli í 1. deild kv.
■ ■ SJÓNVARP
12.10 Landsbankadeildin á Sýn.
Leikur KR og FH endursýndur.
13.50 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik West Ham og
Preston en liðin keppa um laust sæti
í ensku úrvalsdeildinni.
16.40 Helgarsportið á Rúv. (e)
16.55 NBA á Sýn. Leikur Detroit og
Miami.
18.55 Landsbankadeildin á Sýn.
Bein útsending frá leik Grindavíkur
og ÍBV.
21.05 Boltinn með Guðna Bergs
á Sýn. Íslenski og erlendi boltinn.
22.00 Olíssport á Sýn.
23.10 Fótboltakvöld á Rúv.
Skagamaðurinn Birgir Leifur Hafþórs-
son stóð sig frábærlega á móti í
áskorendamótaröðinni sem fram fór í
Marokkó. Eftir ekkert sérstakan
fyrsta dag á mótinu átti
Birgir Leifur þrjá
frábæra daga í
röð sem fleyttu
honum í níunda sæti á mótinu sem er
besti árangur Birgis Leifs á mótaröðinni.
„Ég var að spila alveg ógeðslega vel í
dag,“ sagði Birgir Leifur hress og kátur í
sólinni í Afríku. „Ég veit samt að ég get
betur en á þessu móti og því er svolítið
svekkjandi að hafa ekki komist lengra
því að ég veit vel að ég get unnið svona
mót. Það þýðir samt ekki að velta sér
upp úr því heldur verður maður að taka
það jákvæða með sér.“
Birgir Leifur sagð-
ist hafa verið
sérstaklega
ánægður
með sveifl-
una hjá
sér á
mótinu
enda
hefur
hann verið að
gera ákveðnar
breytingar á
henni síðustu
vikur. „Ég
var að slá
alveg
svakalega
vel og hitti
flatirnar oftar en áður. Þessi árangur
gefur mér mikið sjálfstraust og ég held
að þetta sé að smella hjá mér núna,“
sagði Birgir Leifur en hann gat ekki
neitað því að vera pínu svekktur.
„Ég hefði alveg getað unnið þetta mót.
Það hefði ekki mikið þurft að breytast
til að ég kæmist í umspil en það þýðir
ekki að velta sér upp úr því,“ sagði Birg-
ir Leifur en hann fékk um 3.000 evrur
fyrir árangurinn og dugar sá peningur
fyrir kostnaði að þessu sinni. Annars
verður mikið að gera hjá Birgi Leifi í
sumar en hann tekur þátt í fjölda móta
erlendis í júní og júlí en kemur þó heim
til þess að taka þátt í Landsmótinu og
ef hann spilar þar eins og í Marokkó þá
er hann líklegur til afreka.
KYLFINGURINN BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON: STÓÐ SIG VEL Í MAROKKÓ
Besti árangur Birgis Leifs til flessa
0–1
KR-völlur, áhorf: 2407 Ólafur Ragnarsson (7)
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 7–8 (4–3)
Varin skot Kristján 2 – Daði 4
Horn 2–6
Aukaspyrnur fengnar 13–16
Rangstöður 2–6
0–1 Jón Þorgrímur Stefánsson (44.)
KR
*MAÐUR LEIKSINS
KR 4–5–1
Kristján 7
Sigmundur 7
Ágúst Þór 7
Tryggvi 6
Gunnar 6
Bjarnólfur 6
Sigurvin 6
(80. Garðar –)
Rógvi 6
Arnar 3
(64. Sölvi 4)
Matute 4
(64. Jökull 4)
Grétar 4
FH 4–3–3
Daði 7
Guðmundur 7
(70. Ásgeir Gunnar 5)
Auðun 7
Nielsen 7
Freyr 7
Heimir 5
(78. Baldur –)
*Siim 7
Davíð Þór 7
Jón Þorgrímur 6
(86. Atli Viðar –)
Borgvardt 6
Tryggvi 6
FH
Innifali› í 3 ára ábyrg› eru 3 fríar fljónustusko›anir, me› síum og olíuskiptum
3 ára ábyrg›
Nánari uppl‡singar á www.komatsu.is
Sterkur leikur
KRAFTVÉLAR EHF. · Dalvegi 6-8 · 201 Kópavogur · Sími 535 3500 · Fax 535 3509 · www.kraftvelar.is
MARKINU FAGNAÐ UPPI Í STÚKU Jón Þ. Stefánsson fagnar marki sínu gegn KR-ingum í gær á eftirminnilegan máta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI