Fréttablaðið - 30.05.2005, Blaðsíða 8
8 30. maí 2005 MÁNUDAGUR
Erill var hjá lögreglu í miðbæ Reykjavíkur í fyrrinótt:
Margir slógust í Hafnarstræti
LÖGREGLUFRÉTTIR Hópslagsmál
brutust út fyrir framan skemmti-
staðinn Ópus í Hafnarstræti í
Reykjavík aðfaranótt sunnudags
og var fjöldi lögreglumanna
sendur á vettvang til að skakka
leikinn.
Nokkuð greiðlega gekk að
ráða niðurlögum slagsmálanna
fyrir utan að einn slagsmála-
seggjanna sinnti ekki tilmælum
lögreglunnar og var hann því
handtekinn. Hann var færður í
fangageymslur lögreglunnar þar
sem honum var gefið tækifæri til
að láta renna af sér.
Síðar sömu nótt þurfti lög-
regla að hafa afskipti af manni
sem lá á bekk á Austurvelli. Sá
brást hinn versti við og réðst að
einum lögreglumanna þannig að
lögreglumaðurinn féll við og
slasaðist. Árásarmaðurinn var
handtekinn en lögreglumaðurinn
færður á slysadeild þar sem gert
var að sárum hans.
Fjölmennt var í miðbæ
Reykjavíkur aðfaranótt sunnu-
dags. Sérstaklega settu stúdentar
með hvíta kolla svip á borgina
þar sem þeir fögnuðu útskrift
sinni. - fgg
Íslenskukrafan ekki
til a› stjórna fólki
Dómsmálará›herra segir íslensk lög sem var›a íslenskukunnáttu innflytjenda
ekki ströng. Framkvæmdastjóri Fjölmenningar segir lélega íslenskukunnáttu
nota›a til a› hindra framgang innflytjenda í starfi.
Tveir á slysadeild:
Beinbrotinn í
samkvæmi
LÖGREGLUFRÉTTIR Lögreglan í Hafn-
arfirði var kölluð til að íbúðarhús-
næði á Dalshrauni rétt fyrir
klukkan sex á laugardagskvöldið.
Þar hafði slegið í brýnu með fimm
einstaklingum sem sátu þar að
sumbli.
Tveir voru slasaðir eftir átökin
og voru þeir fluttir á slysadeild-
ina, þar kom í ljós að annar þeirra
reyndist handleggsbrotinn. Þrír
voru færðir í fangageymslur lög-
reglunnar í Hafnarfirði þar sem
þeir sváfu úr sér. Þeir voru síðan
yfirheyrðir á sunnudagsmorgun-
inn og sleppt um hádegisbilið að
yfirheyrslum loknum. -fgg
Costa del Sol
M
all
or
ca
Sóla
rlottó
Síð
ustu
sætin í
sólina í júní og júlí.
• Þú velur áfangastað og ferðadag
og tekur þátt í lottóinu
um hvar þú gistir.
• Viku fyrir brottför
staðfestum
við gististaðinn.
Sama sólin, sama fríið
en á verði fyrir þig.
*Innifalið er flug, gisting
í 7 nætur, flugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.
á mann miðað við 2 eða 4
í stúdíói eða íbúð.
Enginn barnaafsláttur.
Spilaðu með!
Krít
6. 27. júní, 4. og 21. júlí
Mallorca
25. maí, 15. júní, 6. 13. júlí
og 17. ágúst
Costa del Sol
2. 9. 16. 23. 30. júní
7. og 21. júlí
Portúgal
20. 27. júní, 4. 11.18. júlí
og 22. ágúst
STARFI
NÁM
S A M H L I Ð A
Skrautlegir mótorkrossmenn:
Málu›u Vík rau›a
VEÐUR Spámennirnir á Veðurstofu
Íslands sjá ekki fram á neinar
breytingar á veðrinu næstu vik-
una og rúmlega það.
„Það verður mjög rólegt veður,
væntanlega mjög bjart en engin
veruleg hlýindi að sjá enn sem
komið er,“ segir Theódór Her-
varsson veðurfræðingur. „Hitinn
gæti náð í 14 eða 15 gráður yfir
daginn og það má alltaf reikna
með einhverju skúraveðri, en
enga hressilega vætu er þó að sjá
í þessu.“
Ástæðuna fyrir þessu stöðuga
veðri segir hann vera hæðar-
hrygg sem hafi plantað sér niður
umhverfis landið og sé alls ekkert
á förum á næstunni. Engar lægðir
eigi minnsta möguleika á að vinna
á henni í bráð.
- gb
LÖGREGLUFRÉTTIR Lögreglan á Vík í
Mýrdal þurfti að hafa talsverð af-
skipti af gestum á mótorkrossmóti
sem þar fór fram.
Þrjú fíkniefnamál hafa komið
upp í kringum mótið. Á laugardag
var lagt hald á töluvert magn af
fíkniefnum, þrjú grömm af am-
fetamíni, ellefu grömm af kókaíni,
fjögur og hálft gramm af marijúana
og ellefu e-töflur. Sjö einstaklingar
voru handteknir en þeim sleppt að
loknum yfirheyrslum.
Eitthvað var um pústra á laugar-
dagskvöld þegar mótinu var slitið
en enginn kærður fyrir líkamsárás.
Í gærmorgun var svo tilkynnt um
innbrot, lögreglan stóð þjófana að
verki og handtók fjóra.
Að sögn Björns Hjörleifssonar,
varðstjóra lögreglunnar í Vík í
Mýrdal, hafði lögreglan yfirdrifið
nóg að gera. Bæjarbúar eyddu
sunnudeginum í að þrífa en Björn
sagði umgengnina ekki vera mótor-
krossmönnum til mikils sóma.
Heimferð þeirra gekk að mestu vel
en þó sagði Björn að lögregla hefði
stöðvað ökumann á 166 kílómetra
hraða. Sá hefði ekki verið fyrr kom-
inn með sektina í veskið en hann var
stöðvaður aftur, þá á 122 km hraða.
Má hann búast við þriggja mánaða
ökusviptingu og hárri fjársekt. - fgg
HAFNARSTRÆTI Hópslagsmál brut-
ust í Hafnarstræti aðfaranótt sunnu-
dags og var fjöldi lögreglumanna
kallaður til til að skakka leikinn.
INNFLYTJENDAMÁL Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra er ósammála
þeirri skoðun Guðrúnar Guð-
mundsdóttur mannfræðings,
sem kom fram í Fréttablaðinu í
gær, að krafan um íslenskukunn-
áttu sé leið til að hafa betri
stjórn á fólki. Kannanir sýni að
innflytjendum sé mikið kapps-
mál að fá
tækifæri
til að
læra ís-
lensku og
telji það
s j á l f i r
b e s t u
leiðina
til að
laga sig
að íslensku
þjóðfélagi.
„ Í s l e n s k
l ö g
verða ekki talin ströng í þessu
tilliti miðað við það sem víða
gerist,“ segir Björn sem telur
ekki sjálfgefið að fjármögnun ís-
lenskunáms eigi að lenda á skatt-
greiðendum.
Ingibjörg Hafstað, fram-
kvæmdastjóri Fjölmenningar
ehf., telur framsetningu Guð-
rúnar svolítið einfalda. Eina
krafan sem sett sé fram í lögum
sé sú að ljúka þurfi 150 íslensku-
tímum til að fá búsetuleyfi, eng-
ar kröfur séu settar fram um
hversu mikið þurfi að kunna.
Hins vegar hafi hún heyrt út-
lendinga halda því fram að þeir
nái ekki framgöngu á vinnustað
vegna ónægrar íslenskukunn-
áttu.
Ingibjörg telur lögin um ís-
lenskukunnáttu nokkuð einhliða,
útlendingar eigi að ná sér í þessa
íslenskutíma hvort sem þeir
standi til boða eða ekki. Hún seg-
ir að vinnustaðir þurfi að bera
meiri ábyrgð á því að gera fólki
kleift að læra en yfirvöld þurfi
þó að gefa tóninn og tryggja að
öllum standi til boða íslensku-
námskeið við hæfi.
Ingibjörg er sammála Guð-
rúnu um að gerðar
séu allt of
miklar kröf-
ur um
m á l -
f r æ ð i -
l e g a
kunnáttu,
það snúi
þó að al-
menningsá-
liti og komi
lögum ekki
við.
-sig
Voldug hæð yfir landinu tryggir gott veður:
Svipa› ve›ur áfram
VÍK Í MÝRDAL Lögreglan á svæðinu hafði
yfirdrifið nóg að gera í sambandi við mót-
orkrossmótið sem haldið var í bænum.
INGIBJÖRG HAFSTAÐ Vill að
yfirvöld tryggi að öllum
standi til boða íslensku-
námskeið við hæfi.
BJÖRN BJARNASON
Segir að krafan um ís-
lenskukunnáttu sé
ekki leið til að hafa
betri stjórn á fólki.