Fréttablaðið - 30.05.2005, Page 12

Fréttablaðið - 30.05.2005, Page 12
12 30. maí 2005 MÁNUDAGUR Ein uppá- fer› í viku Nautin á Nautastöðinni á Hvanneyri eru einu sinni í viku leidd á bröndótta gervikú sem kölluð er Branda. Það er eins gott að nautin fáist til uppá- ferðar því annars bíður þeirra slátrarinn. „Það er hægt að plata flest naut- in til að stökkva á Bröndu,“ segir Ingimar Einarsson, starfsmaður á Nautastöðinni á Hvanneyri, en Branda þessi er gervikú sem kemur nautunum til. Þá stökkva þau á hana í æxlunarham en Sveinbjörn Eyjólfsson, forstöðu- maður Nautastöðvarinnar, stekk- ur þá til með svokallaða fuðu og setur yfir lim nautsins og safnar sæðinu. Hylki með sæðinu er svo sett í frysti þar sem það er geymt í fljótandi köfnunarefni við 196 gráðu frost. En ef nautin láta hins vegar ekki til leiðast með Bröndu eru örlög þeirra ráðin því þeim er slátrað. Eins fer fyrir þeim naut- um sem láta tilleiðast en fást ekki til sæðisláts eða þá ef sæðis- frumurnar þola ekki frost- geymsluna. „Þau eru afskaplega fljót að þessu, þetta er eiginlega bara einn, tveir og bingó,“ segir Ingi- mar kankvís. „Það er því eins gott að Sveinbjörn hafi hröð handtök með fuðuna.“ Hvert naut er leitt á Bröndu einu sinni í viku og er tekið úr hverju nauti 6.600 skammtar en svo er því slátrað. Kúabændum eru sendir þúsund skammtar og svo er beðið eftir því hvernig kvígurnar reynast sem undan koma. Kynbótanefnd metur af- raksturinn og ef kálfarnir stand- ast ekki kröfur hennar er sæðinu hent. „Það er ýmislegt sem þessi kynbótanefnd verður að taka mið af, til dæmis er skap þeirra met- ið en þessi kynbótavinna hefur meðal annars skilað því að kýrn- ar eru mun skapbetri í dag en þær voru áður. Það kann að hljóma undarlega en lundarfarið skipti miklu máli, það getur ver- ið hræðilegt að eiga við þær ef skapgerð þeirra er þannig,“ segir Ingimar. En Nautastöðin er ekki ær og kýr Ingimars því að tónlistin á hug hans allan. Hann lætur af störfum í júlí eftir 33 ár í Nauta- stöðinni og ætlar að njóta þess að hafa meiri tíma til að syngja og leika á harmonikuna. „Ég tek stundum lagið hérna þegar bændurnir koma í heimsókn og þá taka þeir yfirleitt duglega undir,“ segir Ingimar sem er þegar farinn að kenna nýjum starfsmanni að lokka nautin á Bröndu. jse@frettabladid.is Í FYRRA SIGLDU 63 ÍSLENSKIR SEGL- BÁTAR UM HEIMSINS HÖF. Heimild: Hagstofan SVONA ERUM VIÐ Í fjöldamörg ár mátti á þjóðhátíðardegi hvers Norðurlands sjá fána viðkomandi lands blakta á þökum strætisvagna sem keyrðu um götur borgarinnar. Hörður Gíslason, aðstoðarframkvæmdastjóri Strætó bs., segir að langt sé síðan sú hefð hafi verið lögð af. Líklega hafi verið tekin ákvörðun um að hætta þessu fyrir um tíu árum. Hörður er ekki viss hvenær þessi hefð skapaðist. Hann tel- ur þó líklegt að það hafi verið gert í samnorrænu átaki á sjötta áratugnum. Hins vegar hafi fyrirtækið verið að end- urnýja búnað og þá var tekin ákvörðun um að endurnýja ekki fánana enda þoldi tauið illa íslenska veðráttu. Þá hafi Íslendingar líka verið þeir einu sem héldu í þessa hefð. Styttra er síðan Strætó hætti að flagga íslenska fánanum. Hörður segir það hluta af nútímavæðingu fyrirtækisins. Talsverð fyrirhöfn hafi verið að setja upp flöggin kvöldið fyrir 17. júní. Hins vegar eru flöggin stundum sett á nokkra bíla þegar tilefni þykir til. Íslenski fáninn mun því ekki prýða strætisvagna á höf- uðborgarsvæðinu á þjóðhátíðardegin- um í ár. Hættir a› flagga me› öllu EFTIRMÁL: STRÆTÓ FLAGGAR Á ÞJÓÐHÁTÍÐARDEGI NORÐURLANDAÞJÓÐA Haustakur Hvannakur Hjálmakur Jafnakur Krossakur Kaldakur Kornakur Nánari upplýsingar um lóðirnar, stærðir þeirra og nýtingu, einnig upplýsingar um hvernig væntanlegir kaupendur bera sig að við tilboðsgerð er að finna á vefsíðu Akralands www.akraland.is Þar er einnig að finna nauðsynleg gögn sem tilboðsgjafar þurfa að kynna sér, s.s. tilboðsskilmála, tilboðsskrá og sölu- og skipulagsskilmála. 23 lóðir í Akrahverfi, Garðabæ. Byggingarhæfar á haustmánuðum 2005. Tilboðum skal skila eigi síðar en föstudaginn 3. júní kl. 15:00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Akralands þar sem allar nánari upplýsingar eru veittar um lóðirnar. Fasteignasölurnar Borgir og Eignamiðlun munu einnig annast milligöngu um sölu lóðanna og geta þeir sem hafa áhuga snúið sér þangað. gullmolinn á höfuðborgarsvæðinu Akraland ehf, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík sími 599 4000, fax 599 4001 Tilboðsfrestur útrunninn, var 20. maí Tilboðsfrestur 03. júní hz et a www.akraland. is Síðar i h lut i Kjúklingur sem sektaður var fyr- ir að ganga yfir götu hefur krafs- að sér leið út úr ógöngunum. Kjúllinn hafði verið sektaður um 54 dollara í mars síðastliðnum fyrir að hamla umferð þegar hann rambaði inn á götu í Jóhannesar- borg í Kaliforníu. Lögfræðingur eigenda hans, Moore-hjónanna, hélt í frammi þeirri vörn að umræddur kjúklingur væri í raun gæludýr og gæti því ekki verið ákærður sem húsdýr. Í lögum Kaliforníu- ríkis er kveðið á um bann við um- ferð húsdýra á þjóðvegum en slíkt á ekki við um gæludýr. Moore-hjónin héldu því fram að þau hefðu einvörðungu verið sektuð þar sem þau mótmæltu að lítið hefði verið gert til að hafa hendur í hári háværra farartækja utan vegar. Lögregluyfirvöld segja þó sektina ekkert hafa með það að gera. Það breytir þó ekki því að fall- ið var frá sektinni og kjúklingur- inn getur lifað lífi sínu áhyggju- laus, nema auðvitað Moore-hjónin séu sólgin í kjúklingasúpu. - sgi Í STRÆTÓ Fánar á strætisvagni voru barn síns tíma að mati Strætó bs. Eitt af sérkennilegri orðtökum sem við Íslendingar eigum er að leika á als oddi, sem má segja að merki að vera í gríðarlegu stuði. Alur er lítill stingur eða handbor og að leika á oddi hans er jafngilt því að leika við hvern sinn fingur, þótt einkennilegt megi virðast. Enn ein málbirtingarmynd þessa jákvæða ástands er að leika alsolla. Sollur er einhvers konar glaumur eða kæti en merkingin getur þó verið allt niður í svall eða spilltan félags- skap, enda geta partíin farið ræki- lega úr böndunum í sollinum. magnus@frettabladid.is ALSTUÐ ÁSTKÆRA YLHÝRA INGIMAR STENDUR VIÐ BRÖNDU Þessi bröndótti barmur kemur nautunum til. Sveinbjörn verður þá að hafa hröð handtök með fuðuna en á innfelldu mynd- inni má sjá að hann kann á henni hand- tökin. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /J Ó N S IG U RÐ U R Dómur í Kaliforníu: Kjúklingur slapp vi› sekt

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.