Fréttablaðið - 30.05.2005, Side 20
„Þetta er nú bara gamall hjallur,“
segir Örn Ingólfsson hógvær
þegar Möllershúsi er hrósað fyrir
snoturleika. Hann stendur við að
mála glugga eitt lognvært síðdegi
við fjörðinn.
Möllershús nálgast það að
verða eitt hundrað ára gamalt að
sögn Arnar. Það virðist hinsvegar
enginn hjallur vera enda er það
eitt af hinum vinalegu húsum á
Hjalteyri sem vel hefur verið
haldið við. Örn segir galvaníser-
uðu klæðninguna ótrúlega sterka
og endingargóða. „Hún þarf al-
veg sáralítið viðhald,“ segir hann.
Nú er Möllershús sumarbústaður
Arnar og konu hans Elsu Val-
garðsdóttur og reyndar segir Örn
frúna eiga húsið.
30. maí 2005 MÁNUDAGUR
Stigar, allar gerðir
Innihurðir
Parket
Verkstæðisþjónusta
Trésmíði og lökkun
Imex ehf.
Lyngháls 3
Árbæjarhverfi
Sími 567 1300
www.imex.is
„Ég er búinn að eiga þennan bát í
þrjú ár og hef varið miklum tíma í
að taka hann í gegn enda er ég
með bátadellu,“ segir Héðinn
brosandi, þegar blaðasnápar hitta
hann við Grandagarð. Hann tekur
þeim vel og dregur bátinn að
bryggjunni svo þeir komist um
borð. „En ég hefði nú ekki verið í
þessum galla ef ég hefði átt von á
gestum,“ segir hann glaðlega.
Héðinn er Austfirðingur og
kveðst hafa verið orðinn skip-
stjóri á Eskifirði 12 ára. Skrúðs-
nafnið er að austan en samt er
báturinn norðan úr landi, smíðað-
ur á Akureyri 1975 og er eitt síð-
asta verkið í íslenskri tréskipa-
smíði, að því er Héðinn upplýsir.
„Báturinn er 23 tonn og var gerð-
ur út frá Húsavík í 30 ár og hét
Fanney ÞH. Það var sómafólk sem
átti hann enda er hann með sál,“
segir hann.
Skrúður er fjölskyldufleyta og
meðfram hliðunum er net til að
barnabörnin detti síður í sjóinn.
Þegar Héðinn er spurður hvort
þetta sé gott sjóskip svarar hann
fastmæltur: „Já, þetta er sjó-
borg.“
Undir bláum kassa fram á
dekki eru þrjár handfærarúllur,
smíðaðar í Færeyjum. Þær má
Héðinn nota til að veiða sér í soð-
ið en engan á hann kvótann. „Þeg-
ar ýsan bítur á þá er konan með
pottinn tilbúinn hérna niðri,“ seg-
ir hann hlæjandi og býður til
stofu.
„Þetta er nú herbergið sem
þorskurinn var hafður í,“ segir
hann þegar komið er niður í lest.
Nú er þar allt í senn, stofa, hjóna-
herbergi og eldhús. Rennandi
vatn er í krananum og Héðinn
bendir á styttu af sel, sposkur.
„Selurinn sér um vatnið. Hann er
vatnsveitustjóri.“ Frammi í lúkar
er vistlegt herbergi fyrir barna-
börnin, kojur og bekkir og í
brúnni kveðst Héðinn vera með
öll bestu siglingatæki veraldar-
innar. Meira að segja astek. „Þeg-
ar varnarliðið fer þá tek ég örugg-
lega að mér kafbátaeftirlitið,“
segir hann hlæjandi.
gun@frettabladid.is
Fljótandi sumarbústaður
fjölskyldunnar
Lystiskipið Skrúður liggur í Reykjavíkurhöfn tilbúið til sjóferða undir stjórn eigandans Héðins Emils-
sonar. Báturinn er 23 tonn og er nú sannkölluð fjölskyldufleyta.
Héðinn kveðst búinn að verja miklum tíma í að taka Skrúð í gegn enda er hann
bæði fínn og flottur.
Sterk klæðning og endingargóð
Möllershús á Hjalteyri er eitt þeirra húsa á Norðurlandi sem klætt er galvaníseraðri klæðningu.
Möllershús var byggt á öndverðri 20. öld og ber aldurinn vel.
„Það þarf öðru hvoru að mála glugg-
ana,“ segir Örn og nostrar við verkið.
Héðinn sýnir hvar björgunarbáta og öryggisbúnað er að finna.
Selur eftir Guðmund frá Miðdal er vatnsveitustjóri.
Eldhúsið er snoturt í Skrúði.
Í lúkarnum er plássið fyrir farþegana.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
U
N
.