Fréttablaðið - 30.05.2005, Side 86
Eftir að hafa setið í Lotusnum hjá
Bergi Guðnasyni, betur þekktum
sem Bíla-Bergi, er ekki erfitt að
skilja hvers vegna hann féll fyrir
bílnum. Sportbíllinn Lotus Elise
111 S er ekki nema 4,7 sekúndur
upp í hundraðið og er 160 hestöfl.
Hann er keyptur í Þýskalandi og
kostaði á sínum tíma 6,4 milljónir.
En allt gott tekur einhvern
tíma enda og Bergur ætlar nú að
selja bílinn. „Ég ætla að kaupa
mér húsbíl og keyra um Evrópu,“
segir hann en það er augljóst að
kveðjustundin verður erfið.“Yfir-
byggingin er mestmegnis úr
plasti og styrktarbitarnir úr kol-
trefjum,“ segir hann en það er
svipað fyrirkomulag og er í For-
múlu eitt-bílum. Þá segir hann bíl-
inn liggja ótrúlega vel á vegi enda
sé hann með mjög lágan vindstuð-
ul.
Bergur segir bílinn vekja at-
hygli alls staðar.“Þegar ég var í
Þýskalandi að taka bensín þá
stoppaði rúta með skólakrökkum
á bensínstöðinni. Þegar ég kom út
sást ekki í bílinn því krakkarnir
höfðu hópast í kringum hann. Þau
vöruðu sig samt á því að snerta
hann og voru mjög passasöm,“
segir hann.
Þetta er ekki fyrsti flotti bíll-
inn sem Bergur eignast því hann
er mikill bíladellukarl. Hann segir
þó þennan alveg einstakan en seg-
ist ekki líða eins og James Bond
þegar hann keyri bílinn þrátt fyr-
ir að leyniþjónustumaðurinn hafi
nokkrum sinnum notast við Lotus-
bíla. „Það er hins vegar alveg
ólýsanleg tilfinning að keyra
hann, í ermalausum bol og góðu
veðri.“ freyrgigja@frettabladid.is
30 30. maí 2005 MÁNUDAGUR
Herra Ólafur Ragnar Grímssonvar í miklum kvennafans á
föstudag þegar hann
bauð tvö hundruð
konum í kampavín og
kransakökur að lokinni
ráðstefnunni Tengsla-
net tvö – völd til
kvenna, sem
haldin var á Bif-
röst á fimmtu-
dag og föstu-
dag. Meðal
þeirra sem létu sjá sig á Bessastöð-
um voru Herdís Þorgeirsdóttir pró-
fessor í lögfræði sem
stóð fyrir ráðstefn-
unni, Katrín Fjeld-
sted læknir, Guð-
rún Pétursdóttir
fyrrverandi forseta-
frambjóðandi,
Katrín Júlíusdóttir
þingkona, Guðrún
Ásmundsdóttir
leikkona, Elísa-
beth Mueller stofnandi og fyrsti for-
maður Evrópusamtaka kvenlögfræð-
inga, Karen Gross prófessor við
lagadeild New York-há-
skóla, Inga Jóna Þórð-
ardóttir fyrrverandi
borgarfulltrúi, Kristrún
Heimisdóttir lögfræð-
ingur, Hildur Jónsdóttir
jafnréttisfulltrúi
Reykjavíkurborgar,
Oddný Mjöll Arn-
ardóttir lögmaður,
Anna
Þórðardóttir endur-
skoðandi og Sif Kon-
ráðsdóttir lögmaður,
Þorgerður Erlends-
dóttir dómstjóri og
Þóra Kristín Ásgeirs-
dóttir fréttakona.
Ólafur Ragnar virtist hinn hress-asti með að hafa svona mikið af
konum í kringum sig en þó var frú
Dorrit Moussaeff fjarri góðu gamni.
Herdís Þorgeirs-
dóttir benti á að
það á hógvær-
an hátt að það
væri alls ekki
óvenjuleg
staða fyrir
Ólaf að hafa
svona falleg-
ar konur í
kringum
sig.
Lárétt: 1 sokkur, 5 oft, 6 drykkur, 7
sólguð, 8 sjór, 9 hrunin bygging, 10 belti,
12 sjáðu til, 13 stunur, 15 silfurtákn, 16
selur, 18 taumar.
Lóðrétt: 1 framhjáhald, 2 pota, 3 í röð, 4
fyrirmenn, 6 skjóða, 8 nagdýr, 11 kassi,
14 arinn, 17 verkfæri.
Lausn.
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
– hefur þú séð DV í dag?
ÁSTMAÐUR
SÆUNNAR DRAP
STJÚPPABBA SINN
FAÐIR SÆUNNAR
LAGÐIST GEGN
SAMBANDINU
Stuttmynda- og heimildarmynda-
hátíðinni Reykjavík Shorts & Docs
var slitið í gærkvöld með verð-
launaafhendingu í Tjarnarbíó. Hef-
ur hátíðin staðið yfir síðan á mið-
vikudag og hafa fimmtán íslenskar
myndir verið frumsýndar, tíu stutt-
myndir og fimm heimildarmyndir.
Veitt voru verðlaun fyrir bestu
stuttmyndina og bestu heimildar-
myndina. Voru það 66 gráður norð-
ur og Íslandsbanki sem gáfu verð-
laun.
Það var Ninna Hafliðadóttir frá
66 gráður norður sem veitti verð-
laun fyrir bestu heimildarmynd-
ina. Það reyndist vera mynd Helgu
Brekkan, Rithöfundur með mynda-
vél, sem bar sigur úr býtum. Bygg-
ir myndin á Super 8 kvikmyndum
rithöfundarins Guðbergs Bergs-
sonar frá Spáni, Portúgal, Azoreyj-
um og Íslandi. Það var Hrönn Sig-
urðardóttir, framleiðandi myndar-
innar, sem veitti verðlaununum
viðtöku í fjarveru leikstjórans sem
var í Svíþjóð á leiðinni heim.
Birna Gunnlaugsdóttir frá Ís-
landsbanka afhenti verðlaun fyrir
bestu stuttmyndina. Það kom fáum
á óvart að það reyndist vera mynd-
in Slavek the Shit eftir Grím Há-
konarson en hún var sýnd á Cann-
es-hátíðinni við góðar undirtektir.
Fjallar hún um klósettvörð sem
verður ástfanginn af kvenkyns kló-
settverði. ■
Slavek the Shit valin besta stuttmyndin
GRÍMUR HÁKONARSON Kvikmynd hans, Slavek the Shit, var valin besta stuttmyndin
og kvikmynd Helgu Brekkan, Rithöfundur með myndavél, besta heimildarmyndin.
BERGUR OG BÍLLINN GÓÐI Allt gott tekur einhvern tímann enda og Bergur ætlar að selja bílinn.
Ætlar að kaupa sér húsbíl og keyra um Evrópu.
BÍLA-BERGUR: SELUR LOTUSINN
Ætlar að kaupa sér húsbíl
FRÉTTIR AF FÓLKI
Á laugardag hefst Hátíð hafsins í tilefni sjómanna-
dags og stendur fram á sunnudagskvöld. Að hátíð-
inni standa sjómannadagsráð, Reykjavíkurhöfn og
Reykjavíkurborg og verður mikið um dýrðir og há-
tíðahöld.
Guðmundur Hallvarðsson, formaður sjómannadags-
ráðs, segir íslenska sjómanninn enn sannan dáða-
dreng, því enn sé er mikilvægi sjómannastéttarinnar
ljóst, þjóðin þurfi á þeim að halda og störf þeirra
séu mikilvæg.
„Almennt er borin mikil virðing fyrir sjómönnum, en
menn verða meira varir við þá virðingu úti á landi.
Mér hefur fundist að því meir sem byggist frá sjó og
lengra inn í landið á höfuðborgarsvæðinu, því meir
fjari út áhugi fólks á sjómennsku.“
Fyrsti sjómannadagurinn var haldinn hátíðleg-
ur árið 1938, í því augnamiði að minna á mik-
ilvægi sjómannastéttarinnar og minnast þeirra
sem týnt höfðu lífi á sjó.
„Í þá daga var dánar- og slysatíðni sjómanna
mikil, en sem betur fer hefur dauðaslysum
fækkað verulega á móti því sem var þegar
hátt á fjórða tug sjómanna fórust á milli sjó-
mannadaga. Dánartíðnin var hæst þegar tog-
arar fórust með allri áhöfn, en einnig í seinni
heimsstyrjöldinni þegar fórust nærri 240 ís-
lenskir fiski- og farmenn. Á sjómannadaginn
minnumst við þeirra týndu og látnu, bæði
með minningarguðþjónustu í Dómkirkjunni og í at-
höfn við Minningaröldurnar í Fossvogsgarði, en frá
1938 er talið að á fimmta hundrað sjómanna hvíli í
votri gröf,“ segir Guðmundur og bætir við
að læknisfræðilegar rannsóknir sýni að sjó-
menn eyði 25 prósentum meiri orku við
vinnu sína en þeir sem vinna með fast
land undir fótum.
„Það var ekki fyrr en 1987 að sett var í
landslög að öll fiskiskip ættu að vera
heima á sjómannadaginn, en áður höfðu
þau oft verið send út á veiðar daginn fyrir
hátíðina. Sjómenn voru mjög ósáttir og
höfðu á orði að dagurinn væri enginn sjó-
mannadagur heldur gleðidagur fyrir land-
fólk, því þeir væru sjálfir fjarri góðu gamni,“
segir Guðmundur sem sjálfum finnst hátíðlegast við
sjómannadaginn sjómannahóf á Broadway, minning-
arathafnir og hefðbundin ræðuhöld og heiðranir.
GUÐMUNDUR HALLVARÐSSON, FORMAÐUR SJÓMANNADAGSRÁÐS, SEGIR ÍSLENDINGA BERA VIRÐINGU FYRIR SJÓMÖNNUM.
SÉRFRÆÐINGURINN
GUÐMUNDUR
HALLVARÐSSON
Formaður sjó-
mannadagsráðs.
Sjómenn enn sannir dá›adrengir
....fær sjónvarpsstöðin Sýn fyrir
að búa til sérstakt myndband til-
einkað Liverpool-liðinu sem vann
frækilegan sigur á AC Milan í úr-
slitaleik Meistaradeildarinnar.
HRÓSIÐ
Lárétt: 1 hosa,5ótt,6te,7ra,8mar, 9
rúst,10ól,12sko,13más,15ag,16
urta, 18ólar.
Lóðrétt: 1 hórdómur, 2ota,3st,4her-
togar, 6taska,8mús,11lár, 14stó,17al.
Sumar gjafir skipta
öll börn máli!
Gefum börnum góða sumargjöf
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/PJETU
R
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/SIG
U
R
JÓ
N